Norður-Kórea
1 2 3 4 5 6 7 … 24 ›
Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kristi Noem, ríkisstjóri Suður-Dakóta í Bandaríkjunum, sem hefur verið nefnd sem mögulegt varaforsetaefni Donalds Trump á ekki sjö dagana sæla. Hún liggur undir þverpólitísku ámæli fyrir að hafa drepið hundinn sinn og þarf nú að draga til baka frásögn um að hún hafi fundað með Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Erlent 3.5.2024 23:54
Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Eldflaug sem lenti á borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu þann 2. janúar var af gerðinni Hwasong-11 og kemur frá Norður-Kóreu. Kaup Rússa á skotflaugunum frá Norður-Kóreu eru í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um bann við vopnakaupum frá einræðisríkinu. Erlent 30.4.2024 13:24
Kim keyrði skriðdreka á æfingu Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, tók nýverið þátt í æfingu með hermönnum sínum, þar sem þeir voru að æfa sig á nýrri gerð skriðdreka. Kallaði hann eftir frekari undirbúningi svo herinn væri tilbúinn í mögulegt stríð. Erlent 14.3.2024 10:23
Prófuðu neðansjávardróna sem getur borið kjarnorkuvopn Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með neðansjávardróna sem borið getur kjarnorkuvopn. Tilraunin er sögð hafa verið gerð í mótmælum við sameiginlegum heræfingum Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu sem fara fram í þessari viku. Erlent 19.1.2024 12:37
Telja að verið sé að leggja drög að því að dóttir Kim taki við völdum Öryggisyfirvöld í Suður-Kóreu telja líklegt að verið sé að undirbúa Kim Ju Ae, dóttur Kim Jong-un, til að taka við af föður sínum þegar hann fellur frá. Ekki sé þó útilokað að þessar fyrirætlanir muni breytast. Erlent 5.1.2024 08:32
Kvarta yfir „forsýningu“ á kjarnorkustyrjöld Langdrægri eldflaug, sem gæti drifið til allra Bandaríkjanna, var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Var þetta annað tilraunaskotið frá einræðisríkinu á nokkrum klukkustundum. Erlent 18.12.2023 11:59
Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil. Erlent 13.12.2023 08:00
Fullyrða að njósnagervitungl hafi myndað Hvíta húsið og Pentagon Yfirvöld í Norður-Kóreu fullyrða að gervitungl, sem þau skutu nýlega á loft, hafi náð mjög skýrum ljósmyndum bæði af Hvíta húsinu, bandaríska varnarmálaráðuneytinu og bandarískum flugmóðurskipum. Kim Jong-un leiðtogi landsins segist hafa skoðað myndirnar. Erlent 28.11.2023 08:31
Fengu gervihnattatækni í skiptum fyrir sprengikúlur Sérfræðingar Leyniþjónustu Suður-Kóreu telja að nágrannar þeirra í norðri séu að undirbúa þriðju tilraunina til að skjóta gervihnetti á braut um jörðu. Geimvísindamenn Norður-Kóreu eru sagðir hafa fengið tæknilega aðstoð frá Rússum. Erlent 1.11.2023 13:54
Gengur illa að auka framleiðslu skotfæra Ætlanir Evrópusambandsins varðandi sendingar skotfæra til Úkraínu virðast ekki ætla að ganga eftir. Vandræði Evrópuríkja við að auka framleiðslu skotfæra gæti komið niður á vörnum Úkraínumanna og veitt Rússum ákveðið forskot. Erlent 26.10.2023 13:18
Ákæra bandaríska hermanninn sem flúði yfir til Norður-Kóreu fyrir liðhlaup Bandarískur hermaður sem flúði yfir landamæri Suður-Kóreu, yfir til Norður-Kóreu, hefur verið ákærður fyrir liðhlaup, misneytingu og vörslur barnakláms. Norður-Kóreumenn handsömuðu hermanninn eftir liðhlaupið í júlí á þessu ári en slepptu honum eftir tvo mánuði. Erlent 20.10.2023 18:12
Travis King vísað frá Norður-Kóreu Yfirvöld í Norður-Kóreu ætla að vísa Travis King, bandarískum hermanni sem flúði til Norður-Kóreu í sumar, úr landi. Hann hefur verið í haldi frá því í júlí. Erlent 27.9.2023 10:58
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segjast hafa rofið varnir Rússa við Bakhmut Gagnsókn Úkraínumanna heldur áfram en hefur enn sem komið er skilað litlum árangri í formi frelsaðs landsvæðis. Úkraínskir hermenn sækja þó fram, bæði í suðurhluta landsins og í austri en töluverð óvissa ríkir um mannfall hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum. Erlent 20.9.2023 09:00
Kim heitir Pútín fullum stuðningi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, heitir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, „fullum og skilyrðislausum“ stuðningi. Leiðtogarnir einangruðu funduðu í rúma fjóra tíma í dag og eru þeir sagðir hafa rætt samvinnu á sviði hernaðar og efnahags. Erlent 13.9.2023 18:18
Viðræður Pútín og Kim hafnar og „allt á borðinu“ Formlegar viðræður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og Kim Jong-un leiðtoga Norður-Kóreu hófust í morgun í geimferðamiðstöðinni í Amur í Rússlandi, þar sem Soyuz geimflaugunum er skotið á loft. Erlent 13.9.2023 06:58
Kim heldur til Rússlands til fundar við Pútín Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu hefur staðfest að leiðtogi landsins, Kim Jong-un, sé kominn til Rússlands þar sem hann mun síðar funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 12.9.2023 06:49
Kim í lest á leið til Pútíns Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, mun á næstu dögum funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Einræðisherrann er sagður vera lagður af stað til Valdivostok í Rússlandi á brynvarinni lest sinni. Erlent 11.9.2023 17:56
Sjósettu kafbát sem borið getur kjarnorkuvopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu opinberaði í vikunni nýjan kafbát sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Kóreumenn hafa lengi unnið að þróun slíkra kafbáta. Erlent 8.9.2023 15:10
Segir að Kim muni gjalda fyrir vopnasendingar Jake Sullivan, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og ríkið allt muni gjalda fyrir mögulega vopnasendingar til Rússlands. Hann segir að sendi Kóreumenn vopn til Rússlands sem notuð yrði í Úkraínu, kæmi það niður á Norður-Kóreu á alþjóðasviðinu. Erlent 6.9.2023 14:27
Funda og freista þess að eiga viðskipti með vopn og gjaldeyri Erlendir miðlar segja Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Kim Jon-un, leiðtoga Norður-Kóreu, munu funda síðar í þessum mánuði. Talið er líklegt að þeir muni hittast í borginni Vladivostok. Erlent 5.9.2023 06:53
Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24
Mistókst aftur að koma gervihnetti á braut um jörðu Geimvísindamönnum og verkfræðingum Norður-Kóreu mistókst aftur í dag að koma njósnagervihnetti á braut um jörðu. Gera á þriðju tilraunina í október, samkvæmt yfirvöldum í einræðisríkinu. Erlent 23.8.2023 22:08
Lætur yfirhershöfðingjann fjúka og boðar aukin hernaðarumsvif Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur látið æðsta hershöfðingja landsins fjúka. Varnarmálaráðherra landsins, Ri Yong-gil, hefur tekið við stöðunni. Erlent 10.8.2023 10:00
Kim Yong Wings í Vogunum: „Þetta verður á milli tannanna á fólki“ Tveir Hafnfirðingar eru að opna veitingastaðinn Kim Yong Wings í Vogum á Vatnsleysuströnd í næstu viku. Þar verður boðið upp á kóreska vængi, súrdeigspizzur og heimilismat. Þeir vissu að nafnið yrði umdeilt en óttast ekki umtalið. Viðskipti innlent 4.8.2023 12:01
Viðurkenna að þau hafi Travis í haldi Norður-kóresk stjórnvöld hafa viðurkennt í fyrsta sinn að þau hafi bandaríska hermanninn Travis King í haldi. Um er að ræða fyrstu svör þeirra við fyrirspurnum Sameinuðu þjóðanna um það hvar hermaðurinn sé niðurkominn. Erlent 3.8.2023 23:30
Norður-Kóreumenn sýndu „bandaríska“ herdróna Norður-Kóreumenn efndu til sérstakrar hersýningar í gærkvöldi. Þar sýndu þeir nýjan búnað og voru þar í fyrirrúmi nýir herdrónar sem taldir eru keimlíkir bandarískum drónum, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian. Erlent 28.7.2023 07:43
Fulltrúi rússneska alræðisins heiðrar einræðisstjórnina í Norður Kóreu Sergei Shoigu varnarmálaráðherra alræðisstjórnarinnar í Rússlandi ásamt sendinefnd heiðraði vini sína í einræðisríkinu Norður Kóreu með nærveru sinni í dag. Erlent 26.7.2023 19:30
Enda einangrun með heimsókn frá Rússlandi og Kína Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa boðið sendinefndum frá Rússlandi og Kína til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna þess að á morgun verða sjötíu ár liðin frá því skrifað var undir vopnahlé í Kóreustríðinu. Einræðisríkið hefur verið mjög einangrað á undanförnum árum vegna faraldurs Covid. Erlent 26.7.2023 08:14
Viðræður við Norður-Kóreu hafnar Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sem stýra einu landamærastöð Norður- og Suður-Kóreu segjast í samskiptum við yfirvöld í norðri vegna bandarísks hermanns sem hljóp yfir landamærin í síðustu viku. Hingað til höfðu ráðamenn í Pyongyang neitað að taka upp tólið. Erlent 24.7.2023 13:38
Virða að vettugi allar tilraunir til samskipta Norður-kóresk yfirvöld hafa virt að vettugi allar tilraunir þeirra bandarísku til þess að eiga í samskiptum vegna bandaríska hermannsins sem nú er í haldi Norður-Kóreu. Spennan á Kóreuskaga er gríðarleg og samskiptin lítil sem engin. Erlent 20.7.2023 23:31