
Skógareldar

Brasilíumenn glíma við mikla kjarrelda
Stór kjarreldur logar nú á votlendissvæðinu Pantanal og er eldurinn um fimmtíu kílómetrar að lengd og hafa um 50 þúsund hektarar gróðurs þegar eyðilagst.

Víðtækt rafmagnsleysi í Kaliforníu
Ástæða er fyrst og fremst sú að raforkufyrirtæki vilja koma í veg fyrir að fallnar raflínur orsaki fleiri elda en að minnsta kosti eitt fyrirtæki, Pacific Gas & Electric er nú þegar til rannsóknar hjá yfirvöldum eftir að það lokaði fyrir rafmagn hjá 970 þúsund eignum í ríkinu og tilkynntu um að til standi að slökkva á 650 þúsund viðskiptavinum til viðbótar.

Neyðarástandi lýst yfir í Kaliforníu vegna kjarreldanna
Eldfimum aðstæðum er áfram spáð fram á morgundaginn.

Um 50 þúsundum gert að flýja heimili sín vegna skógarelda
Enn hafa ekki borist neinar fréttir af manntjóni, en fjöldi heimila hafa eyðilagst frá því að eldarnir hófust.

Hundrað þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda
Miklir skógareldar geisa nú víða í suðurhluta Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum.

Kaliforníubúar búa sig undir rafmagnsleysi
Er ætlunin að taka rafmagnið af um 800 þúsund heimilum, verslunum og skólum í tilraun til að koma í veg fyrir mögulega kjarrelda.

Trump mærir Bolsonaro og lýsir yfir fullum stuðningi
Jair Bolsonaro, forseti Bandaríkjanna, gerði sér lítið fyrir og sendi Trump þumalfingurs-tákn og lýsti yfir velþóknun.

G7-leiðtogar nálgast samkomulag um aðgerðir vegna skógareldanna
Leiðtogar sjö stærstu iðnríkja heims eru taldir nálægt samkomulagi um aðgerðir til að stemma stigu við skógareldunum sem nú geisa í Amazon-regnskógunum.

Ræða um skógareldana í Amason á G7-fundinum
Leiðtogar Frakka og Þjóðverja tjáðu sig báðir í gær um þann metfjölda skógarelda sem hafa geisað í Amasonfrumskóginum í Brasilíu á árinu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði að þetta þyrfti að ræða á fundi G7-ríkjanna um helgina. Algjört neyðarástand hefði skapast.

Netheimar loga vegna skógarelda í Amazon frumskóginum
Miklir skógareldar loga í Amazon frumskóginum og ollu þeir því í gær að það varð rafmagnslaust í brasilísku borginni Sao Paulo. Þúsundir hafa lýst yfir áhyggjum vegna ástandsins í Amazon.

Yfir níu þúsund gert að flýja áframhaldandi skógarelda á Kanaríeyjum
Erfiðlega hefur reynst að ná stjórn á eldinum sem kviknaði seint á laugardag og hafa slökkviliðsmenn lýst honum sem "skrímsli“ sem mjög erfitt sé að eiga við.

Enn kviknar skógareldur á Kanarí
Álag hefur aukist á slökkviliðsmenn á Kanarí-eyjum eftir að þriðji skógareldurinn á rúmri viku á kviknaði á annarri fjölmennustu eyju Kanarí, Gran Canaria.

Mágkonan barði allt að utan til að vara við eldunum
Íslensk kona sem búsett er á eyjunni Gran Canaria á Kanaríeyjum, þar sem miklir gróðureldar hafa geisað síðustu daga, neyddist til að yfirgefa sumarbústað sinn og eiginmanns síns í nótt vegna eldanna.

Eldar geisa á Kanaríeyjum
Miklir skógareldar geisa á annarri fjölmennustu eyju Kanarí, Gran Canaria.

Pútín sigar hernum á skógareldana
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað hernum að taka þátt í baráttunni við skógareldana í Síberíu og öðrum austurhéruðum Rússlands sem brenna nú sem aldrei fyrr.

Níu særðir í skógareldum í Portúgal
Skógareldar brutust út á þremur stöðum í Castelo Branco héraðinu í Portúgal í gær. Í kring um þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við það að reyna að slökkva þá en níu manns hafa slasast vegna þeirra.

Óvissustigi aflýst á Vesturlandi
Þessi ákvörðun er byggð á því að rignt hefur víðast hvar á Vesturlandi undanfarið og næstu daga er einnig spáð úrkomu.

Mannskæð hitabylgja herjar enn á Evrópubúa
Þótt hitabylgjur séu ekki nýjar af nálinni hafa loftslagsvísindamenn bent á að loftslagsbreytingar af mannavöldum geri ástandið mun verra.

Tveir látnir á Spáni vegna hitabylgjunnar
Maðurinn var við störf á akri þegar hann fann skyndilega fyrir miklum svima vegna hitans. Hann greip til þess ráðs að hoppa í kalda sundlaug til að kæla sig niður en þá fékk hann krampakast. Verkamaðurinn var úrskurðaður látinn á Reina Sofía-spítalanum klukkan 13:25 að staðartíma í dag.

Sextíu prósent bíla í París tekin úr umferð vegna hitabylgjunnar
Borgaryfirvöld fundu sig knúin til að takmarka umferð vegna hitabylgjunnar í Evrópu.

Hættuleg hitabylgja hrellir Evrópubúa og er ekki á förum
Hiti fór víða yfir fjörutíu stig í álfunni í gær. Hitamet fallið og enn gæti hitnað yfir helgina. Ástandið rakið til vinda frá Norður-Afríku og þurrar jarðar. Loftslagsbreytingar sagðar gera ástandið enn verra. Skógareldar á Spáni.

Rauð viðvörun vegna hitans
Líklegt er talið að hitamet verði slegið í Frakklandi síðar í dag en þá gæti hitinn farið vel yfir 44 gráður í landinu.

Hundruð slökkviliðsmanna glíma við kjarrelda í Katalóníu
Hundruð slökkviliðsmanna í Katalóníu berjast nú við mestu kjarrelda svæðisins í rúm tuttugu ár.

Miklir skógareldar í Svíþjóð og Noregi
Slökkviliðsmenn í Svíþjóð og Noregi berjast nú við skógarelda á nokkrum stöðum í löndunum. Erfiðlega gengur að ráða niðurlögum eldanna sökum hvassviðris og þurrka.

Skógareldur á Norður-Írlandi
Slökkviliðsmenn á Írlandi hafa náð tökum á skógareldum sem brunnu í Mourne fjöllunum í Down héraði í Írlandi í nótt.

Tveir nemar fá milljarða sektir vegna skógarelds
Tveir ítalskir nemar þurfa að greiða ítalska ríkinu hver um sig 13,5 milljónir evra vegna skógarelds sem þeir voru fundir sekir um að hafa valdið.

Þúsundir yfirgefa heimili sín vegna skógarelda
Yfirvöld óttast að umfang eldana gæti aukist til muna í dag.

Milljarður í sekt eftir að hafa valdið skógareldi með kynafhjúpunarsprengju
Hinn 37 ára gamli bandaríski landamæravörður Denis Dickey þarf að greiða himinháa sekt eftir að hafa orðið valdur af umfangsmiklum skógareldi í Arizona á síðasta ári.

Hundraða er enn saknað
Að minnsta kosti 631 er enn saknað í norðurhluta Kaliforníu vegna Camp-skógareldanna sem þar hafa riðið yfir. Tala látinna hækkar hvern einasta dag og stóð í 63 í gær.

Mun fleiri saknað en áður var talið
Fjöldi þeirra sem saknað er eftir Camp eldinn í Norður Kalíforníu er nú talinn vera 631 en í gær stóð talan í um 300.