Hryðjuverk í London
6 7 8 9 ›
Sjónarvottar segja fleiri látna Breska útvarpið, BBC, segir að árás hafi verið gerð á Lundúnir. Yfirvöld vilja ekki segja neitt um hvað kann að hafa gerst en engir aðrir velkjast í vafa um að hryðjuverkaárásir hafi verið gerðar. Fjöldi fólks hefur slasast og og staðfestu hefur verið að tveir féllu. Sjónarvottar sem breskir fjölmiðlar ræða við greina frá mun fleiri föllnum. Erlent 13.10.2005 19:28
Hið minnsta 37 látnir Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum í dag. Tala þeirra sem fórust hefur verið mjög á reiki í dag. Reuters-fréttaþjónustan hefur heimildir fyrir því að fjörutíu og fimm hafi farist. Erlent 13.10.2005 19:28
Tíu létust við King´s Cross CNN greindi rétt í þessu frá því að tíu hefðu farist í árásinni við King´s Cross stöðina. Ferðir Eurostar-lesta um Ermasundsgöngin hafa verið felldar niður í kjölfar árásanna. Víðar í Evrópu berast fregnir sem ýta undir óttann: tvær stórar verslunarmiðstöðvar hafa til að mynda verið rýmdar í Búdapest og í Varsjá varð mikið uppnám vegna bruna í megin stjórnarbyggingunni þar. Erlent 13.10.2005 19:28
37 látnir; al-Qaida ábyrg Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásum í Lundúnum í dag. Hópur tengdur al-Qaida kveðst bera ábyrgð á sjö sprengingum á fjórum stöðum í borginni. Erlent 13.10.2005 19:28
Blair verður áfram í Skotlandi Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun ekki yfirgefa G8-fundinn í Skotlandi þrátt fyrir atburðina í Lundúnum að sögn talsmanns ráðherrans. Blair mun flytja ávarp klukkan ellefu að íslenskum tíma. Erlent 13.10.2005 19:28
45 látnir og 1000 slasaðir Að minnsta kosti 45 eru sagðir látnir og 1000 særðir eftir sprengingarnar í Lundúnum í morgun. Um tvö þúsund Íslendingar eru búsettir í borginni en ekki hafa borist fregnir af því hvort einhver þeirra sé á meðal látinna eða slasaðra. Utanríkisráðuneytið hefur opnað upplýsingasíma vegna atburðanna. Númerið er 545 9900. Erlent 13.10.2005 19:28
Fjöldi slasaðra í Lundúnum Innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke, sagði í samtali við fjölmiðla fyrir stundu að þó nokkur fjöldi fólks hefði slasast í sprengingunum í Lundúnum í morgun. Talsmaður lögreglunnar vill ekki fullyrða að um hryðjuverkaárás sé að ræða á þessari stundu. Erlent 13.10.2005 19:28
Háannatími valinn fyrir árásirnar Á tæpri klukkustund tókst hryðjuverkamönnum að valda meiri glundroða í Lundúnum en dæmi eru um síðan frá stríðslokum. Sprengjur sprungu á fjórum stöðum og í það minnsta 38 manns týndu lífi. Erlent 13.10.2005 19:28
Í nafni Al-Qaida Áður óþekkt samtök hafa lýst sprengingunum í Lundúnum á hendur sér í nafni Al-Qaida. Samtökin kalla sig "Leynisamtök heilags stríðs Al-Qaida í Evrópu" í tilkynningu sem birt var á íslamskri vefsíðu fyrir skömmu. Erlent 13.10.2005 19:28
Múslimar harma árásirnar Ahmed Sheikh, forseti félags múslima í London fordæmir árásirnar í London og segist óttast að múslimar þurfi að gjalda fyrir hryðjuverkin. Hann segist hafa mestar áhyggjur af konum sem bera höfuðslæður og mæltist til þess við alla múslima að þeir færu varlega næstu daga og létu lítið fyrir sér fara. Erlent 13.10.2005 19:28
Tala látinna enn á reiki Tala þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á Lundúnaborg í morgun er enn mjög á reiki. Reuters-fréttaþjónustan hefur heimildir fyrir því að fjörutíu og fimm hafi farist; staðfest tala frá Lundúnalögreglunni er þrjátíu og þrír. Slasaðir eru sagðir á bilinu hundrað og fimmtíu, sem eru alvarlega slasaðir, til eitt þúsund. Erlent 13.10.2005 19:28