
Mið-Ameríka

Reka spillingarrannsakendur SÞ úr landi
Jimmy Morales, forseti Gvatemala, studdi upphaflega alþjóðlega rannsóknarnefnd gegn spillingu, en vill nú losna við hana eftir að böndin tóku að berast að honum sjálfum og fjölskyldu hans.

Kúbverskur herforingi úr Svínaflóainnrásinni látinn
Herforinginn tók þátt í að stöðva innrás útlagahers sem Bandaríkjastjórn studdi. Innrásin misheppnaða þótti niðurlæging fyrir ríkisstjórn Johns F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseta.

Blaðamenn handteknir og aðgerðasinnar á flótta undan stjórnvöldum í Níkaragva
Ríkisstjórn Níkaragva er sögð reyna að koma á stjórn ótta og ógnar sem beinist gegn andstæðingum hennar.

Segir dauðsföll barna við landamærin vera Demókrötum að kenna
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það vera Demókrötum að kenna að börn skuli deyja við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Þetta fullyrti forsetinn í Twitter-færslu fyrr í kvöld.

Lögðu hald á hálft tonn af kókaíni
Lögregluyfirvöld í Kosta Ríka hafa lagt hald á nærri hálft tonn af kókaíni sem fannst um borð í bát.

Stefnir að því að komast yfir Atlantshaf í tunnu
Frakkinn Jean-Jacques Savin hefur haldið af stað frá Kanaríeyjum í appelsínugulu tunnulaga hylki og stefnir hann að því að komast yfir Atlantshaf, einungis með aðstoð hafstrauma.


Annað barn lætur lífið í umsjá landamærayfirvalda
Fyrr í mánuðinum lést hin sjö ára gamla Jakelin Caal Maquin vegna ofþornunar í umsjá landamærayfirvalda.

Fulltrúum Níkaragva meinað að sækja innsetningarathöfn Bolsonaro
Verðandi Brasilíu vill með þessu mótmæla ofsóknum stjórnar Daniel Ortega gegn eigin borgurum.

Verður ekki refsað fyrir að fæða barn nauðgara síns
Þungunarrof er ólöglegt undir öllum kringumstæðum í El Salvador og var Cortez ákærð fyrir tilraun til morðs.

„Við vitum öll að hún týndi lífi sökum vægðarlausrar stefnu Trumps“
Jakelin Caal Maquin lést í haldi landamæravarða aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún kom ólöglega til Bandaríkjanna ásamt föður sínum.

Lögregla barði blaðamenn í Níkaragva
Hundruð manns hafa látist í átökum í landinu síðan í apríl.

Rannsaka andlát sjö ára stúlku
Andlát sjö ára stúlku frá Gvatemala sem lést í haldi landamæraeftirlitsins í Bandaríkjunum er nú til rannsóknar.

Sjö ára stúlka lést í haldi landamærayfirvalda
Sjö ára gömul stúlka sem reynt hafði ásamt föður sínum að komast ólöglega yfir landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna lést nokkrum klukkustundum eftir að hafa verið hneppt í varðhald, þegar tilraunin mistókst.

Þúsundir hafa dáið eða horfið á leið til Bandaríkjanna
Margir þeirra voru á flótta frá ofbeldi og glæpum og urðu fórnarlömb þessa á leiðinni til betra lífs.

Bitinn í höfuðið af hákarli
Bandaríkjamaðurinn Will Krause komst í hann krappan í sumar þegar hann var við spjótaveiðar undan ströndum Abacos í Bahamaeyjum.

Lokuðu landamærunum að Mexíkó og skutu táragasi að hælisleitendum
Hópur fólk reyndi að komast yfir landamærin í kjölfar mótmæla gegn því hversu lengi tekur að fara yfir hælisumsóknir þeirra í Bandaríkjunum.

Bróðir forsetans handtekinn fyrir eiturlyfjasmygl
Bróðir hondúrska forsetans Juan Orlando Hernández hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum vegna gruns um eiturlyfjasmygl.

Donald Trump íhugar að loka landamærunum að Mexíkó
Forseti Bandaríkjanna segir ástandið í Tijuana stjórnlaust vegna flóttamannalestar.

Dæmdur í rúmlega fimm þúsund ára fangelsi
Dómstóll í Gvatemala hefur dæmt fyrrverandi hermann í samtals 5.160 ára fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorði á um tvö hundruð bændum árið 1982.

Alríkisdómari lagði tímabundið bann við tilskipun Trump
Alríkisdómari hefur lagt tímabundið bann við tilskipun Bandaríkjaforseta að neita flóttafólki sem kemur til Bandaríkjanna frá Mexíkó með ólöglegum hætti um hæli.

Hundruð úr hópi förufólksins hafa náð landamærunum
Nokkur hundruð úr hópi förufólksins sem hafa farið fótgangandi frá ríkjum í Mið-Ameríku í átt að Bandaríkjunum síðustu vikurnar hafa náð landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna.

Á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi eftir að hún fæddi barn nauðgara síns
Imelda Cortez, 20 ára gömul kona frá El Salvador, á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóms vegna meints þungunarrofs.

Hundruðir halda áfram ferð sinni að landamærunum
Um fimm hundruð flóttamanna héldu í dag frá Mexíkóborg í átt að landamærum Bandaríkjanna. Þúsundir bíða enn færis til þess að komast yfir. Hópurinn byrjaði á því að taka neðanjarðarlest nyrst í borgina og fóru svo gangandi með fram hraðbraut í lögreglufylgd.

Munu ekki geta sótt um hæli í Bandaríkjunum
Fólk sem kemur ólöglega yfir suðurlandamæri Bandaríkjanna mun héðan í frá ekki geta sótt um hæli í Bandaríkjunum.

Trump reifst við fréttamann í beinni: „Þetta er nóg, settu niður hljóðnemann“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Jim Acosta, fréttamaður CNN áttu í snörpum orðaskiptum á blaðamannafundi í Hvíta húsinu nú fyrir stundu eftir að forsetanum mislíkaði spurningar Acosta, ekki síst eftir að Trump var spurður út í Rússarannsóknina svokölluðu.

Umdeilt að senda hermenn að Mexíkó
Flóttamannalestin hélt áfram í átt að Bandaríkjunum í gær. Málið mikið rætt í kosningabaráttunni. 5.000 hermenn verða sendir til að tryggja öryggi á landamærunum við Mexíkó. Trump forseti ætlar að hætta að veita börnum ólöglegra innflytjenda ríkisborgararétt.

Mannkyn valdið 60 prósent fækkunar dýra frá 1970
Mannskepnan hefur þurrkað út sextíu prósent af öllum spendýrum, fuglum, fiskum og skriðdýrum frá árinu 1970.

Bandaríkjastjórn segist ætla að flytja þúsundir hermanna að landamærunum
Aðgerðin virðist liður í tilraunum Trump forseta til að gera innflytjendamál að meginstefinu í baráttunni fyrir þingkosningar sem fara fram í Bandaríkjunum í næstu viku.

Nýr hópur förufólks stefnir á Bandaríkin
Hópurinn lagði af stað frá höfuðborg El Salvador fyrr í dag.