Rússland
1 2 3 4 5 6 7 8 … 98 ›
Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21.10.2024 07:03
Vopnakaup eru landráð Vopnakaup Alþingis og þátttaka í stríði úti í heimi stangast á við Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Varnarmálalög nr. 34/2008 og Almenn hegningarlög nr. 19/1940 og brýtur beinlínis gegn þeim. Ísland er nú orðið beinn þátttakandi í stríði og þar með hernaðarskotmark. Með þessum ráðstöfunum sínum hafa íslenskir ráðamenn framið landráð. Skoðun 20.10.2024 21:30
Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19.10.2024 13:36
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18.10.2024 15:31
Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur ákveðið að senda fjögur stórfylki, eða um tólf þúsund hermenn, til aðstoðar Rússa við innrás þeirra í Úkraínu. Kim sendi hóp sérveitarmanna tli Rússlands í ágúst þar sem þeir fengu fölsk skilríki og hljóta þjálfun, áður en þeir verða sendir til Úkraínu. Erlent 18.10.2024 09:51
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22
Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Rússneskur faðir sem var sakfelldur fyrir óhróður um herinn vegna myndar sem dóttir hans teiknaði er laus úr fangelsi eftir eins og hálfs árs vist. Skólastjóri stúlkunnar tilkynnti lögreglu um teikninguna á sínum tíma. Erlent 15.10.2024 15:49
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 15.10.2024 14:14
Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. Erlent 15.10.2024 08:01
Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur engar skýringar á dauða Viktoriiu Roshchynu, úkraínskrar blaðakonu, í rússnesku fangelsi. Blaðakonan, sem var 27 ára gömul, hvarf í hernumdri Austur-Úkraínu í ágúst í fyrra. Erlent 13.10.2024 10:00
Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, hefur staðfest fullyrðingar blaðamannsins Bob Woodward, sem greinir frá því í nýjustu bók sinni að Donald Trump hafi sent Vladimir Pútín Rússlandsforseta Covid-próf þrátt fyrir skort í Bandaríkjunum. Erlent 11.10.2024 07:41
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins. Erlent 9.10.2024 22:34
Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Leyniþjónustur Rússlands vinna að því að valda miklum usla á götum Evrópu. Útsendarar GRU, leyniþjónustu rússneska hersins, eru sértaklega kræfir og hafa staðið að sífellt fífldjarfari árásum og leyniaðgerðum. Erlent 8.10.2024 23:19
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8.10.2024 19:32
Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, sendi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, tæki til þess að greina kórónuveirusmit þegar skortur var á þeim í heiminum árið 2020. Pútín bað Trump um að halda sendingunni leyndri. Erlent 8.10.2024 15:10
Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Flugmaður rússneskrar herþotu skaut á laugardaginn niður sjaldgæfan rússneskan dróna yfir Úkraínu. Svo virðist sem að Rússar hafi verið að nota drónann, sem er búinn tækni svo hann sést verr á ratsjám, til að varpa svifsprengjum á Úkraínu þegar þeir misstu stjórn á honum. Erlent 7.10.2024 21:33
„Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Viktor Bout, alræmdur vopnasali sem gekk lengi undir nafninu „Sölumaður dauðans“ er aftur farinn að selja vopn, tæpum tveimur árum eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Bandaríkjunum. Honum var sleppt í fangaskiptum en Rússar slepptu þá körfuboltakonunni Brittney Griner, sem hafði verið dæmd í níu ára fangelsi fyrir að vera með smávægilegt magn af hassolíu í farangri sínum. Erlent 7.10.2024 20:03
Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma. Erlent 7.10.2024 14:16
Versnandi ástand í Pokrovsk Rússar gera ítrekaðar árásir á bæinn Pokrovsk í austurhluta Úkraínu og eru helstu innviðir bæjarins, þar sem um þrettán þúsund manns búa, ónýtir. Hersveitir Rússa eru um sjö kílómetra frá bænum, sem er mikilvæg birgðamiðstöð fyrir úkraínska herinn og óbreytta borgara í Dónetsk-héraði. Erlent 4.10.2024 15:12
Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar Mjaldurinn Hvaldímír drapst í kjölfar bakteríusýkingar sem hann fékk vegna sárs í munni eftir prik sem sat fast. Það sýna niðurstöður krufningar. Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Engar byssukúlur fundust í mjaldrinum við skoðun. 35 sentímetra langt og þriggja sentímetra breitt prik var fast í munni mjaldursins og er talið að prikið hafi valdið sýkingu sem svo leiddi til dauða hans. Erlent 4.10.2024 09:03
Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1.10.2024 11:30
Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Herforingi í flugher Bandaríkjanna segir rússneska flugmenn hafa hagað sér mjög ófagmannlega þegar bandarískir flugmenn flugu að fjórum rússneskum herflugvélum nærri Alasaka. Flugvélarnar fjórar sáust á ratsjám þann 23. september og voru flugmenn sendir til móts við þær. Erlent 30.9.2024 16:11
Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Utanríkisráðuneytið segir íslensk stjórnvöld ekki hafa neina leið til þess að greina hvernig rússnesk stjórnvöld kjósa að skilgreina siðferðisleg og andleg gildi þjóðar sinnar. Ísland er á lista ríkja sem Rússar telja að hafi viðhorf sem stangist á við gildi sín. Innlent 30.9.2024 13:45
Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, ítrekaði í dag að landið myndi alltaf verja sig fyrir árásum annarra ríkja eftir að einn nánasti ráðgjafi hans kom sér í klandur með því að segja að Ungverjar hefðu ekki tekið til varna ef Rússar hefðu ráðist inn í landið. Erlent 27.9.2024 22:24
Selenskí fundaði með Trump Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði í dag með Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðanda. Trump hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu varðandi varnir þeirra gegn innrás Rússlands. Erlent 27.9.2024 15:51
Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti tillögum um að Úkraínumenn afsali sér landsvæði sínu til þess að kaupa sér frið við Rússa sem hættulegum og óásættanlegum í dag. Það væru ekki friðartillögur heldur uppgjafartillögur. Erlent 26.9.2024 22:27
Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag umfangsmikla hernaðaraðstoð til Úkraínu og sagði hann að stuðningurinn ætti að hjálpa Úkraínu að „vinna“ stríðið gegn Rússum. Hann mun seinna í dag fá Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í heimsókn til Hvíta hússins. Erlent 26.9.2024 13:18
Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði á fundi með öryggisráði sínu í gær að Rússar myndu íhuga að beita kjarnorkuvopnum ef þeim bærust áreiðanlegar upplýsingar um yfirvofandi loftárás með hefðbundnum vopnum. Erlent 26.9.2024 06:26
„Virkið“ Vuhledar að falli komið Hersveitir Rússa eru komnar langleiðina með að ná tökum á bænum Vuhledar í Dónetsk-héraði í Úkraínu. Rússar hafa lagt mikið púður í sóknina að bænum á undanförnum dögum og hafa verjendur hans þurft að hörfa undan þessum áhlaupum. Erlent 25.9.2024 15:05
Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Erindrekar frá Íran hafa komið að viðræðum milli yfirvalda í Rússlandi og Húta í Jemen, sem vilja fá háþróaðar eldflaugar frá Rússum til að sökkva skipum á Rauðahafi. Hútar hafa gert ítrekaðar árásir á skip á svæðinu og óttast er að umræddar eldflaugar gætu aukið getu þeirra til muna. Erlent 25.9.2024 10:15