Rússland
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 98 ›
Vetur nálgast og Pútín er að mistakast Þar sem Pútín hefur misst alla raunverulega möguleika á að vinna hernaðarsigur, hefur hann nú gripið til þess að stöðva orkusölu til Evrópu í þeirri von að harður vetur á meginlandi Evrópu muni draga úr stuðningi við Úkraínu. Sú aðgerð felur í sér annan dómgreindarbrest ráðamanna í Kreml. Umræðan 24.9.2022 10:31
Toyota lokar verksmiðju sinni í Rússlandi Fyrirtækið mun áfram þjónusta Toyota eigendur í Rússlandi en ekki framleiða neina bíla þar. Fyrirtæki hafa mörg hver yfirgefið Rússland í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Nú hefur Toyota bæst við á þann lista. Bílar 24.9.2022 07:00
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. Erlent 23.9.2022 19:59
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. Erlent 23.9.2022 16:20
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. Erlent 23.9.2022 12:36
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. Erlent 23.9.2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. Erlent 22.9.2022 22:30
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. Innlent 22.9.2022 18:01
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. Erlent 22.9.2022 07:23
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. Erlent 21.9.2022 20:27
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. Erlent 21.9.2022 12:05
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. Erlent 21.9.2022 10:26
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. Erlent 21.9.2022 08:33
Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði Vesturlönd hafa sýnt að þau vilja ekki frið milli Rússlands og Úkraínu, sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu til rússnesku þjóðarinnar í morgun. Hann sagði Vesturlönd vilja tortíma Rússlandi og sakaði þau um að nota Úkraínumenn sem fallbyssufóður. Erlent 21.9.2022 06:20
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. Erlent 20.9.2022 22:30
Rússar ekki í vandræðum með olíuútflutning þrátt fyrir þvinganir Þrátt fyrir viðskiptaþvinganir Vesturlanda gagnvart Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu hefur rússneskum olíufyrirtækjum tekist að viðhalda nánast sömu framleiðslu og fyrir stríð. Útflutningur hráolíu mældur í magni er talinn munu dragast saman um sjö til átta prósent á þessu ári, að því er kemur fram í nýlegri greiningu Institute of Energy við Oxford-háskóla í Bretlandi (OIES). Innherji 20.9.2022 15:18
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. Erlent 20.9.2022 14:54
Úkraínustríðið ekki veikt undirstöður varnarsamningsins við Bandaríkin Ef hið ólíklega gerðist og stefndi í átök milli NATO og Rússlands yrði öryggi Íslands komið undir fælingarstefnu NATO og Bandaríkjanna, varnarsamningi Íslands við Bandaríkin og framkvæmd varnaráætlunar Bandaríkjahers fyrir landið. Úkraínustríðið hefur ekki haft neinar afleiðingar sem veikja þessar undirstöður íslenskra öryggis- og varnarmála. Innherji 20.9.2022 10:19
Methafi í samfelldri geimdvöl allur Rússneski geimfarinn Valeríj Poljakov sem á metið yfir lengstu samfelldu dvöl í geimnum er látinn, áttræður að aldri. Poljakov dvaldi í sovésku geimstöðinni Mír á braut um jörðu í rúma 437 daga samfleytt á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 19.9.2022 11:43
Saka Rússa um að skjóta flugskeyti að kjarnorkuveri Rússneskt flugskeyti er sagt hafa lent aðeins nokkur hundruð metra frá ofni Pivdennoukrainsk-kjarnorkuversins í sunnanverðri Úkraínu í dag. Kjarnaofnarnir hafi ekki skaddast en skemmdir hafi orðið á öðrum byggingum og búnaði. Erlent 19.9.2022 11:15
Rússar leyfi sér siðleysi í stríðsátökum Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir bakslags vera að vænta í gagnárásinni og að Rússar komist langt á siðleysi sem þeir leyfa sér í stríðsátökum. Erlent 17.9.2022 11:44
Gagnárásin hafi engin áhrif á Rússa Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Pútín tjáði sig í fyrsta sinn um stöðuna í gær. Erlent 17.9.2022 09:59
Selenskí kallar Rússa morðingja vegna fjöldagrafa Flestir þeirra sem grafnir hafa verið upp í fjöldagröf sem fannst nærri Izyum í Úkraínu eru óbreyttir borgarar. Minnst eitt líkanna var með bundnar hendur en Úkraínumenn hafa fundið vísbendingar um að íbúar bæjarins og aðrir hafi verið pyntaðir. Erlent 16.9.2022 15:33
Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum. Erlent 16.9.2022 14:27
Pútín og Xi ávarpa leiðtogafund í Úsbekistan Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Xi Jinping leiðtogi Kína munu ávarpa leiðtogafund, sem fer fram í Úsbekistan í dag. Erlent 16.9.2022 08:31
Fundu fjöldagröf með fjögur hundruð líkum í Izyum Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins. Erlent 16.9.2022 07:50
Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Xi Jinping, forseta Kína, fyrir yfirvegaða afstöðu til innrásarinnar í Úkraínu. Pútín sagðist þó hafa skilning á spurningum og áhyggjum Xi af ástandinu í Úkraínu. Þá hét Pútín stuðningi Rússa við Kína varðandi meint yfirráð þeirra yfir Taívan. Erlent 15.9.2022 15:18
„Kokkur Pútíns“ býður föngum frelsi fyrir herþjónustu í Úkraínu Myndband af rússneska auðjöfrinum Yevgeny Prigozhin bjóða föngum náðun fyrir að ganga til liðs við málaliðahópinn sem kallast Wagner Group var birt á netinu í gær. Þar má sjá auðjöfurinn segja föngunum að gangi þeir til liðs við Wagner muni þeir aldrei fara aftur í fangelsi. Annað hvort muni þeir deyja í Úkraínu eða vera lausir allra mála eftir sex mánuði. Erlent 15.9.2022 11:49
Pútín sjái ekki bjálkann í eigin auga Kanslari Þýskalands segir Pútín neita að átta sig á því að hann hafi gert mistök með innrásinni í Úkraínu. Hann sjái ekki bjálkann í eigin auga og hafi ekki breytt afstöðu sinni að neinu leyti. Erlent 14.9.2022 23:35
Selenskí í Izyum og Rússar sagðir í basli í suðri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Izyum í Kharkív-hérað í morgun en hersveitir Úkraínu ráku rússneska hermenn þaðan á dögunum í vel heppnaðri gagnsókn. Forsetinn sagði eyðilegginguna mikla en hann hefði séð sambærilega eyðileggingu áður í öðrum bæjum og þorpum sem búið væri að frelsa frá Rússum. Erlent 14.9.2022 14:41