
Sprengisandur

Bein útsending: Dramatísk kosninganótt gerð upp á Sprengisandi
Það er óhætt að segja að kosninganóttin hafi verið dramatísk þar sem tölurnar létu bíða eftir sér víða og staðfest úrslit þar með um leið.

Gylfi segir leiðréttingu á eignamarkaði yfirvofandi
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, segir að verðbólgan sé ekki aðeins á húsnæðismarkaði heldur sé hún víðfeðmari en oft áður. Eftirspurn sé mikil en mörg vandamál blasi við á framboðshliðinni.

„Hvernig ætlar Öryggisráðið að refsa Rússum þegar Rússarnir sjálfir hafa neitunarvald?“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að það skorti pólitíska forystu innan alþjóðasamtaka heimsins. Hún segir að efnahagsþvinganir gegn Rússum þurfi að vera harðari.

Alþjóðamál og bankasalan í brennidepli
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrst gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi og fjallar um alþjóðamál, áhrif Úkraínustríðsins á öryggisskipan í Evrópu. Því næst ræða meðlimir fjárlaganefndar sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

„Mér finnst tölurnar sem Reykjavík hefur verið að nefna í þessu sambandi mjög lágar“
Bjarni Benediktsson gagnrýndi borgaryfirvöld í umræðu um þjóðarleikvang og þjóðarhöll í þættinum Sprengisandur í morgun. Hann segist hafa orðið orðlaus eftir fund um málið með borgaryfirvöldum.

Telur að stríðið muni dragast mjög á langinn
„Það sem er svo erfitt við Pútín er að hann lýgur nánast um allt. Við getum bara hugsað um vopnahléssamningana í Mariupol sem endurtekið voru sviknir en svo stundum segir hann okkur líka bara alveg hreint út hvað hann ætlar að gera og hvað hann er að hugsa,“ segir Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði og sérfræðingur í sögu Rússlands.

Bjarni um pabba sinn: „Var honum bannað að kaupa?“
Bjarni Benediktsson segir röksemdafærslu stjórnarandstöðunnar í umræðunni um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka vera komna í hring. Hann segir að sjálfsögðu eigi að taka á því ef reglur hafa verið brotnar.

Sprengisandur: Innrás Rússa, fjármálaráðherra um Íslandsbanka, orkuskipti og menntamál
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn verður á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi mun ræða við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði og sérfræðing í málefnum Rússlands, um innrásina í Úkraínu.

Segir hópuppsagnir á skrifstofu Eflingu vera hreinsanir
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að nýlegar hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar séu ekkert nema hreinsanir. Drífa segist ekki hafa gert upp við sig hvort hún bjóði sig fram til endurkjörs sem forseti ASÍ í haust.

Bein útsending: Drífa mætir í Sprengisand
Gestirnir í Sprengisandsþætti dagsins eru tveir að þessu sinni. Drífa Snædal, forseti ASÍ, er annar þeirra.

Sprengisandur: Íslandsbankamálið, kosningabaráttan í Reykjavík og skólamál
Það verður ýmislegt rætt í Sprengisandsþætti dagsins en fulltrúar VG, Samfylkingarinnar, Pírata og Sjálfstæðisflokksins munu til að mynda ræða söluna á Íslandsbanka, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins rökræða um helstu baráttumálin, og lakt gengi drengja í grunn- og framhaldsskóla verður til umræðu.

Úkraína, salan á Íslandsbanka og staða öryrkja á vinnumarkaði í Sprengisandi
Staða fólks á vinnumarkaðnum með skerta starfsgetu, ástandið í Úkraínu og sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka er meðal þess sem verður til umræðu í Sprengisandsþætti dagsins.

Kynferðisofbeldi og pyndingar í busavígslu rússneska hersins
Sérfræðingar segja ljóst að liðsandi innan rússneska hersins fari ört versnandi. Um tuttugu og fimm prósent af her Rússa séu karlmenn á tvítugsaldri sem séu margir ungir og óreyndir. Þá sé algengt að nýliðar í hernum séu beittir kynferðisofbeldi og pyndingum í „busavígslu.“

Ein leið að þreyta úkraínska herinn til uppgjafar: „Enginn veit hvað Pútín er tilbúinn að ganga langt“
„Vandinn er bara að enginn veit hvað Pútín er tilbúinn að ganga langt og að því leytinu til hefur fólk auðvitað áhyggjur. Það er ekkert að sjá, og það er það sem manni finnst svo sársaukafullt. Það er ekki að sjá neitt ljós við enda ganganna,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð utanríkisráðherra um ástandið í Úkraínu

Bein útsending: Innrás Rússa í Úkraínu, salan á Íslandsbanka og orkuskipti
Málefni Úkraínu verða fyrst á dagskrá í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag. Brynja Huld Óskarsdóttir sérfræðingur í varnar- og öryggismálum ræða málin ásamt Jóni Ólafssyni prófessor og einum helsta sérfræðingi í málefnum Rússlands.

Ekki tekið ákvörðun um að bjóða sig fram gegn Drífu
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og 1. varaforseti ASÍ, hefur ekki tekið ákvörðun um bjóða sig fram gegn Drífu Snædal, forseta ASÍ á aðafundi sambandsins í haust.

Sprengisandur: Staða heimshagkerfisins, ASÍ, Úkraína og eldgos
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu.

Verkalýðsmál, orkuþörf þjóðarinnar, varnarmál og aðgangur kvenna að áhættufjármagni
Kristján Kristjánsson hefur Sprengisand dagsins með Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR. Hann er í nýjum pistlum harðorður í garð félaga sinna í verkalýðshreyfingunni, skýtur föstum skotum á ASÍ og marga aðra en hvað vakir fyrir honum með þessu háttalagi?

Úkraína í brennidepli
Úkraína er í brennidepli í Sprengisandi dagsins. Seðlabankastjóri fer yfir áhrif styrjaldarinnar á hagkerfið, sérfræðingar reyna að varpa ljósi á stöðuna sem versnar með degi hverjum. Í seinni hluta þáttar fara alþingismenn yfir áhrif stríðsins á utanríkistefnu Íslands.

Sprengisandur: Úkraína, blaðamanna-og símamálið og KSÍ
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um afstöðu íslenskra stjórnvalda til ástandsins í Úkraínu.

Brynjar þráspurði Jón Trausta um hvort Stundin væri með gögnin úr síma Páls
Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, þráspurði Jón Trausta Reynisson, framkvæmdastjóra Stundarinnar um hvort að fjölmiðlinn hefði gögn úr síma Páls Steingrímssonar undir höndum. Brynjar telur að blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu grunaðra væru ekki með slíka réttarstöðu ef málið snerist eingöngu um nýtingu blaðamanna á gögnum.

Úkraína, yfirheyrslur yfir blaðamönnum og kvótakerfið á Sprengisandi
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu.

Sprengisandur: Útlendingamál, efnahagsmál og konur í nýsköpun
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, um áform iðnaðarins á þessu ári, sem nefnt er ár grænnar iðnbyltingar. Hvað felst í þessu heiti, hverjir eru með og hvað ætla þeir sem eru með að gera?

Sprengisandur: Viðhorfsbreyting til kynferðisbrota, Sundabraut, orkumálin og bókmenntasaga
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Sprengisandur: Orkumálin, Rússland og Úkraína og verðbólguhorfur
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson byrjar á því að ræða við Eddu Sif Pind Aradóttur sem fer fyrir Carbfix verkefninu þar sem koltvísýringur er fangaður úr andrúmsloftinu og dælt niður í jörðina. Verkefnið hefur vakið mikla athygli á heimsvísu.

Dómskerfið og kynferðisbrot, pólitík og Covid í Sprengisandi
Gestir Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi í dag munu ræða ýmis málefni sem snerta á landanum. Fyrstu gestir Kristjáns í dag eru þær Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lögmaður, og Dr. María Rún Bjarnadóttir. Báðar fluttu þær nýverið erindi á málþingi HR þar sem spurt var hvort réttarkerfið virki ekki sem skyldi fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Ríkinu sennilega heimilt að setja á bólusetningarskyldu
Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík telur að ríkinu sé sennilega heimilt að setja á bólusetningarskyldu. Mannréttindasómstóllinn hafi kveðið á um að ríki hafi mikið svigrúm til þess að vernda líf og heilsu manna.

Bólusetningarskylda, borgarmál og hagkerfið í Sprengisandi
Farið verður um víðan völl í Sprengisandi. Margrét Einarsdóttir sem er prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík ætlar að skiptast á skoðunum við Hönnu Katrínu Friðriksson alþingismann um rétt ríkisins til að skylda borgarana til að undirgangast bólusetningu í faraldri.

„Það eru engin mannréttindi að vera í stjórnum fyrirtækja“
Bryndís Haraldsdóttir og Andrés Ingi Jónsson alþingismenn auk Báru Huldar Beck, blaðamanns á Kjarnanum, voru í viðtali á Sprengisandi í morgun. Rætt var um afsagnir eða tímabundið leyfi nokkurra manna sem áttu sér stað í liðinni viku í tengslum við ásakanir um kynferðisbrot.

Sprengisandur: Heilbrigðisráðherra, MeToo, viðhorfsrannsóknir og forsetaskiptin í Bandaríkjunum
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.