Seðlabankinn
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 48 ›
SFF efast um að frumvarp standist stjórnarskrá og samkeppnisrétt Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa efasemdir um hvort efni frumvarps er varðar rekstraröryggi greiðslumiðlunar standist stjórnarskrá, samkeppnisrétt og EES-rétt. Viðskiptaráð segir mikilvægt að frumvarpið komi ekki til með að fela í sér ríkissmágreiðslumiðlun í beinni samkeppni við aðrar lausnir sem séu í notkun og þróun. Innherji 27.2.2024 07:00
Drög að sátt lögð fyrir ríkisstjórn á næstu dögum Fulltrúar Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Eflingar hafa fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Reiknað er með að heildarpakki kjarasamninga verði lagður fyrir ríkisstjórn um eða upp úr miðri viku og ríkisstjórnin kynni þá þær aðgerðir sem hún er reiðubúin að grípa til í skiptum fyrir sátt á vinnumarkaði. Innlent 26.2.2024 19:21
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. Innherji 26.2.2024 17:58
Tíðinda að vænta í kjaraviðræðum um miðja vikuna Vonir eru bundnar við að niðurstaða fáist í kjaraviðræður um eða upp úr miðri þessari viku. Brotthvarf VR og Landssambands verslunarmanna úr breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur hins vegar flækt stöðuna. Innlent 26.2.2024 11:42
Engin önnur stór ágreiningsefni eftir í viðræðum Stýrivaxtaákvæðið sem var til umræðu í kjarasamningsviðræðum breiðfylkingar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins er ekki hluti af forsenduákvæði sem samið var um í gær. Engin önnur stór ágreiningsefni eru eftir í viðræðum. Innlent 23.2.2024 12:01
Veita eigendum íbúða í Grindavík undanþágu Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið að rýmka tímabundið lánþegaskilyrði þeirra einstaklinga sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023. Viðskipti innlent 22.2.2024 08:45
Vildi einn lækka stýrivexti Ekki voru allir meðlimir peningastefnunefnda Seðlabankans sammála um næstu skref á síðasta fundi nefndarinnar. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika vildi lækka stýrivexti. Viðskipti innlent 21.2.2024 18:36
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20.2.2024 16:13
Fer úr fjármálaeftirlitsnefnd eftir að AGS varaði við hættu á pólitískum þrýstingi Skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem hefur setið í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans allt frá því að hún tók fyrst til starfa fyrir meira en fjórum árum, hefur beðist lausnar en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði á liðnu ári alvarlegar athugasemdir við að fulltrúi frá ráðuneytinu væri í hópi nefndarmanna. Ráðherra hefur núna skipað Ernu Hjaltested, yfirlögfræðing Isavia, í hennar stað í fjármálaeftirlitsnefndina. Innherji 19.2.2024 11:32
Verkfallsaðgerðir breiðfylkingarinnar yrðu samræmdar Forysta stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar segir aðgerðir félaganna verða samræmdar komi til þess að boðað verði til verkfalla. Ljóst sé að fyrirvari Samtaka atvinnulífsins um sjálfstæði Seðlabankans standist ekki og vonandi verði hægt að ganga til samninga á ný sem fyrst. Innlent 14.2.2024 19:21
Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða. Innlent 14.2.2024 11:46
Ásgeir segir forsenduákvæði ekki hagga Seðlabankanum Seðlabankastjóri segir Seðlabankann ekki skipta sér af því hvernig samið er um laun á vinnumarkaði enda ekki aðili að samningunum. Í forsenduákvæðum samninga væri hins vegar eðlilegra að miða við þróun kaupmáttar og verðbólgu en vaxtastefnu bankans. Innlent 13.2.2024 11:45
Bein útsending: Skýrsla Seðlabankastjóra fyrir Alþingi Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar Seðlabankans og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, munu fara yfir málin og sitja fyrir svörum á opnum fundi viðskipta- og efnahagsnefndar Alþingis. Viðskipti innlent 13.2.2024 09:18
Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum. Innherji 11.2.2024 15:20
Segist treysta sér til að lifa á laununum sem SA býður breiðfylkingunni Ríkissáttasemjari hyggst ekki boða breiðfylkingu stéttarfélaga og Samtök atvinnulífsins til fundar innan tveggja vikna nema hann finni fyrir vilja hjá þeim til að ræða málin. Breiðfylking stéttarfélaga sleit kjaraviðræðum við SA síðdegis í gær. Framkvæmdastjóri SA segir ekki hægt að gera það að skilyrði í kjarasamningum að Seðlabanki Íslands lækki hjá sér stýrivexti. Innlent 10.2.2024 22:00
Verðtrygging launa eða beintenging við stýrivexti ekki í boði hjá SA Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir miður að breiðfylking stéttarfélaga hafi slitið kjaraviðræðum í gær. SA sé tilbúið til að setjast aftur að samningsborðinu en geti ekki samþykkt forsenduákvæði, sem vegi að sjálfstæði Seðlabanka Íslands. Innlent 10.2.2024 13:01
Segja mikilvægt að ekki sé vegið að sjálfstæði Seðlabankans Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að ekki sé vegið að sjálfstæði Seðlabankans með forsenduákvæðunum sem sigldu kjaraviðræðum við breiðfylkingu ASÍ í strand fyrr í dag. Innlent 9.2.2024 22:12
Þróunin í ferðaþjónustu á næstunni er „einn helsti áhættuþátturinn“ Vísbendingar eru um að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu að hafa talsverð neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í upphafi ársins og „einn helsti áhættuþátturinn“ er hvernig þróunin verður í framhaldinu í atvinnugreininni, að sögn seðlabankastjóra. Ef hagkerfið fer að kólna hraðar en nú er spáð vegna samdráttar í ferðaþjónustu er „alveg klárt“ að það mun flýta fyrir vaxtalækkunum. Innherji 9.2.2024 11:31
Róðurinn að þyngjast í kjaraviðræðunum Róðurinn er tekinn að þyngjast í viðræðum breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins. Tekist er á um forsenduákvæði samninga til fjögurra ára og framlag stjórnvalda ræður miklu um hvort samningar takast. Innlent 8.2.2024 19:21
Varar við „sterkri innspýtingu“ frá stjórnvöldum við gerð kjarasamninga Kröfur breiðfylkingar stærstu verkalýðsfélaga landsins um myndarlega aðkomu stjórnvalda við gerð kjarasamninga með því að stórauka ýmsar bætur í tilfærslukerfunum væru til þess fallnar að ýta undir verðbólgu, rétt eins og miklar launahækkanir, og það er „mikilvægt“ að samningaaðilar geri sér grein fyrir því, að sögn seðlabankastjóra. Hann segir Seðlabankann vera „mjög meðvitaðan“ um að ört hækkandi raunvaxtastig kunni á ákveðnum tímapunkti vera farið að valda meiri skaða en ávinningi. Innherji 8.2.2024 06:30
Seðlabankinn hækkar raunvexti Seðlabankinn tók meðvitaða ákvörðun um það í morgun að hækka raunvexti með því að halda meginvöxtum sínum óbreyttum á sama tíma og verðbólga er að minnka. Seðlabankastjóri segir þetta til marks um að aðgerðir hans gegn verðbólgu hafi skilað árangri. Innlent 7.2.2024 19:21
Minni vöxtur í ferðaþjónustu myndi „létta á þrýstingi“ á peningastefnuna Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir að ef það yrði minni vöxtur í ferðaþjónustu þá myndi það „draga úr spennu og létta á þrýstingi“ sem peningastefnan sé að reyna framkalla. Innherji 7.2.2024 15:32
Flutningar Grindvíkinga hafi lítil áhrif á fasteignamarkaðinn í borginni Seðlabankastjóri telur að brottflutningur fólks frá Grindavík vegna jarðhræringa muni ekki hafa mikil áhrif á fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Áhrifin verði mögulega bundin við Reykjanes og nágrenni. „Það kæmi ekki á óvart ef íbúar vilja búa þar nálægt. Ég held að áhrifin verði aðallega þar í kring.“ Innherji 7.2.2024 12:03
Seðlabankastjóri segir allt á réttri leið Verulega hefur dregið úr einkaneyslu og hagvöxtur fer hratt minnkandi enda hafa raunvextir hækkað töluvert frá því í júní í fyrra. Seðlabankinn fylgist grannt með framgangi kjaraviðræðna og ákvað í morgun að halda meginvöxtum sínum óbreyttum. Innlent 7.2.2024 11:52
Vextir haldast óbreyttir en spennan fer minnkandi og verðbólguhorfur batna Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda vöxtum áfram óbreyttum í 9,25 prósent, sem er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila, en í yfirlýsingu nefndarinnar er sagt að vísbendingar séu um að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var reiknað með. Háir vextir séu farnir að bíta sem endurspeglast í minnkandi spennu og batnandi verðbólguhorfum. Innherji 7.2.2024 09:00
Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 7.2.2024 08:52
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent eins og þeir hafa verið síðan í ágúst þegar þeir voru hækkaðir um hálft prósentustig. Viðskipti innlent 7.2.2024 08:30
Gjöld greiðslukorta erlendis hækkuðu um 38 prósent Þjónustugjöld af greiðslukortanotkun íslenskra heimila erlendis námu um 4,7 milljörðum króna og þar af greiddu heimilin um 4,4 milljarða króna í gengisálag á árinu 2022. Þegar íslenskum krónum er skipt í erlendan gjaldeyri er greitt ákveðið gjald. Að raunvirði hækkuðu gjöld greiðslukorta um 38 prósent frá árinu á undan sem skýrist að nokkru leyti af meiri neyslu erlendis en einnig af almennri hækkun gjalda. Innherji 6.2.2024 16:25
Standið við stóru orðin og lækkið vexti! Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra Skoðun 6.2.2024 06:00
Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59