
Þýski handboltinn

Arnar Freyr öflugur í sigri Melsungen sem er komið á toppinn
Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk þegar Melsungen vann HSV í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Flensburg vann þá Kiel með eins marks mun.

Janus Daði sá rautt þegar Magdeburg tapaði stórleiknum
Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason léku báðir með Magdeburg sem tapaði gegn Fusche Berlin á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Þrír íslenskir þjálfarar í eldlínunni í Þýskalandi
Tveimur leikjum er lokið í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Íslendingaliðið Gummersbach náði í jafntefli eftir æsispennandi lokamínútur gegn Hannover-Burgdorf.

Magdeburg með fullt hús stiga eftir sigur í Íslendingaslag
Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og félagar þeirra í Magdeburg unnu góðan tveggja marka sigur er liðið tók á móti Teiti Erni Einarssyni og félögum hans í Flensburg.

Arnar Frey og Elvar Örn höfðu betur þrátt fyrir að Viggó hafi átti stórleik
MT Melsungen lagði Leipzig í sannkölluðum Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta í dag. Melsungen vann á endanum með eins marks mun, 28-27. Alls voru fjórir Íslendingar inn á vellinum og einn á hliðarlínunni.

Hákon Daði í B-deildina frá Íslendingaliði Gummersbach
Landsliðsmaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur samið við þýska B-deildarliðið Eintracht Hagen um að leika með liðinu eftir tveggja ára veru hjá Íslendingaliði Gummersbach.

Elvar Örn í liði umferðarinnar í Þýskalandi
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson er í liði umferðarinnar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir öruggan sigur MT Melsungen gegn Göppingen í fyrstu umferð tímabilsins.

„Kominn með nóg af því að vera meiddur“
Ómar Ingi Magnússon, Íþróttamaður ársins 2021 og 2022, sneri aftur á handboltavöllinn í síðustu viku eftir sjö mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann fer sér í engu óðslega í endurkomunni en segir að það hafi tekið á að fylgjast með seinni hluta síðasta tímabils af hliðarlínunni.

Íslendingalið Leipzig tapaði naumlega fyrir Refunum frá Berlín
Füchse Berlin byrjar tímabilið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með naumum tveggja marka sigri á Íslendingaliði Leipzig. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Leipzig og þá spila Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson með liðinu.

Oddur markahæstur í stóru tapi Balingen
Oddur Grétarsson og félagar í Balingen máttu þola ellefu marka tap gegn Kiel í þýsku úrvalsdeildinni sem rúllaði af stað nú um helgina.

Ómar Ingi sneri aftur í stórsigri
Hægri skyttan Ómar Ingi Magnússon sneri aftur í lið Magdeburg þegar liðið hóf leik í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson verður fjarverandi fram að áramótum vegna meiðsla sem hann varð fyrir undir lok síðustu leiktíðar.

Flensburg með sigur í fyrstu umferðinni
Teitur Örn Einarsson og samherjar hans í Flensburg unnu góðan fimm marka heimasigur gegn Hamburg þegar þýska úrvalsdeildin í handknattleik hófst í dag.

Átján íslenskir fulltrúar í sterkustu deild heims
Keppni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta hefst í dag. Eins og oft áður verða Íslendingar áberandi í þessari sterkustu deild heims.

Kiel þurfti vítakeppni til að tryggja sér fyrsta titil tímabilsins
Kiel tryggði sér sigur í þýsku meistarakeppninni í handknattleik eftir sigur á Rhein-Neckar Löwen í kvöld. Vítakastkeppni þurfti til að knýja fram úrslit

Óli Stef óvænt á krossgötum: „Þeirra ákvörðun, þeirra missir“
Óvænt tíðindi bárust af handboltagoðsögninni Ólafi Stefánssyni í dag en hann hefur samið um starfslok við þýska úrvalsdeildarfélagið Erlangen. Ólafur hefur enduruppgötvað ást sína á handboltanum upp á síðkastið og vill núna á þessu stigi síns ferils stefna á starf sem aðalþjálfari.

Óli Stef óvænt farinn frá Erlangen
Ólafur Stefánsson hefur samið um starfslok við þýska félagið Erlangen sem spilar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Frá þessu greinir Ólafur í samtali við Vísi.

Segja að Kane vilji sjálfur borga upp samninginn við Spurs til að geta komist til Bayern
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, ku vera tilbúinn að borga sjálfur upp samning sinn við Tottenham til að losna frá félaginu og geta komist til Bayern München.

47 sentímetra hæðarmunur á nýjum liðsfélögum Elvars og Arnars
Íslendingaliðið MT Melsungen er að styrkja sig fyrir átökin í Bundesligu handboltans á næstu leiktíð. Það má segja að liðið sé að bæta við sig leikmönnum af ýmsum stærðum og gerðum.

Janus Daði til Magdeburg
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, er genginn í raðir Evrópumeistara Magdeburg frá Kolstad í Noregi. Hann skrifaði undir eins árs samning við þýska félagið.

Aftur í atvinnumennsku
Handknattleiksmaðurinn Andri Már Rúnarsson er genginn í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Leipzig frá Haukum. Þar hittir hann fyrir þjálfara sem hann þekkir vel en faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, hefur stýrt liðinu síðan í nóvember á síðasta ári.

„Tækifæri að byggja upp eitthvað nýtt og byrja að skapa“
Aðalsteinn Eyjólfsson tók nú í sumar við þjálfun þýska handknattleiksliðsins Minden. Hann er á sínu fimmtánda ári sem þjálfari erlendis og segist verða meira opinn fyrir því að semja við íslenska leikmenn eftir því sem hann er lengur úti.

Janus Daði orðaður við Magdeburg
Þýskalandsmeistarar Magdeburg hafa áhuga á að bæta íslenska landsliðsmanninum Janusi Daða Smárasyni í sínar raðir. Janus er leikmaður Noregsmeistara Kolstad sem eru í miklum fjárhagsvandræðum.

Bein úr Gísla sjálfum var skrúfað í öxlina á honum
Íslenski landsliðsmaðurinn, Gísli Þorgeir Kristjánsson, gekkst nýverið undir mikla axlaraðgerð í Sviss. Bein var fjarlægt úr honum, komið fyrir í öxlinni og hann vonast til þess að verða loksins heill.

Segir af sér sem fyrirliði Dortmund
Marco Reus hefur sagt af sér sem fyrirliði Borussia Dortmund eftir að hafa gengt þeirri stöðu í fimm ár.

Aðgerð Gísla heppnaðist vel en EM stendur tæpt
Gísli Þorgeir Kristjánsson er búinn að fara í aðgerð á öxl en hann þurfti að gangast undir hans eftir að hann fór úr axlarlið á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar.

Óttast að Gísli Þorgeir verði frá í að minnsta kosti sex mánuði og EM gæti verið í hættu
Bennet Wiegert, þjálfari Evrópumeistara Magdeburgar, óttast að íslenski landsliðsmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson verði frá næsta hálfa árið eða svo eftir að leikmaðurinn fór úr axlarlið í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en sneri aftur og hjálpaði liðinu að verða Evrópumeistari.

Gísli Þorgeir fór úr axlarlið
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, fór úr axlarlið þegar lið hans Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í handbolta með sigri gegn Barcelona fyrr í Lanxess Arena í Köln í dag.

Gísli Þorgeir valinn besti leikmaður tímabilsins
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur verið valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Hann spilar með Magdeburg sem endaði í öðru sæti, einungis tveimur stigum á eftir Kiel.

Kjóstu Gísla Þorgeir sem leikmann ársins í Þýskalandi
Miðjumaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson er tilnefndur sem leikmaður ársins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Neðar í fréttinni má finna hlekk þar sem hægt er að kjósa þennan íslenska miðjumanninn.

Gísli Þorgeir með stoðsendinga-sýningu í lokaleik tímabilsins
Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta lauk í dag með þónokkrum leikjum. Gísli Þorgeir Kristjánsson fór mikinn í fimm marka sigri Magdeburg á Wetzlar á útivelli. Íslendingaliðinu tókst ekki að verja titil sinn og stóð Kiel uppi sem Þýskalandsmeistari að þessu sinni.