
Lögreglan

Pallborðið: Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi
Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi verður til umfjöllunar í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag. Gestir verða Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.

Hafa fundið yfir hundrað kíló af fíkniefnum: „Við erum ekki bara hérna til að vera með leiðindi“
Fíkniefnahundurinn Bylur hefur haft aðkomu að haldlagninu á yfir hundrað kílóum af fíkniefnum hér á landi. Umsjónarkona hans telur að þörf sé á miklu fleiri hundum við störf.

„Hefur það engar afleiðingar að haga sér svona?“
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir að henni þyki skipun dómsmálaráðherra í embætti lögreglustjóra í bænum vera sérstaka. Hún spyr hvort mál sem Klaustursmálið hafi engar afleiðingar fyrir þá sem þar voru staddir.

Grunlaus fórnarlömb sökuð um vörslur barnakláms í nafni ríkislögreglustjóra
Hugmyndaauðgi svikahrappa er hvergi nærri uppurið. Í nýju svindli senda netþrjótar svikapósta á grunlaus fórnarlömb þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er titluð sem sendandi og skilaboðin merkt lögreglunni, Europol og dómsmálaráðuneytinu.

Rafbyssur og slys á lögreglumönnum: Ráðherra mátti vita betur
Það kemur skýrt fram í minnisblaði ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðuneytisins að prófanir og rannsóknir á notkun norsku lögreglunnar á rafbyssum hafi leitt í ljós að notkun vopnanna hefur ekki áhrif á fjölda meiðsla hjá lögreglu eða „mótaðila“.

„Þar var hinn nýskipaði lögreglustjóri þátttakandi“
Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóri og þingmaður Miðflokksins, var í dag skipaður af dómsmálaráðherra í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með næstu mánaðarmótum. Bæjarstjóri Vestmannaeyja gagnrýnir ráðninguna í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni.

Tekur aftur við embætti lögreglustjóra í Eyjum
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur skipað Karl Gauta Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóra og þingmann Miðflokksins, í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með 1. apríl 2023.

Rannsóknir þingmanna um rafbyssur stönguðust hver á við aðra
Þingmaður Pírata segir rannsóknir sýna að rafbyssur auki ekki öryggi. Valdbeiting gegn almennum borgurum hafi hins vegar aukist. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa séð rannsóknir af öndverðum meiði.

Það skiptir máli hver stjórnar
Með þessu slagorði sannfærði Vinstrihreyfingin - grænt framboð kjósendur sína um það að í því fælist ábyrgðarhlutverk að velja flokkinn til forystu. Aðeins þau gætu tryggt farsæld og velferð, hreint loft og græn tún.

Yfirlögregluþjónn sakaður um kynferðislega áreitni á starfsmannaviðburði
Lögreglan hjá höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu. Hann hefur meðal annars starfað í kynferðisbrotadeild. Yfirlögregluþjónninn verður áfram við störf.

Meint brot afans fyrndust vegna mistaka lögreglu
Íslenska ríkið þarf að greiða konu sem kærði afa sinn fyrir kynferðisbrot 1,4 milljónir í miskabætur. Mistök lögreglu urðu til þess að málið fyrndist á meðan það var til rannsóknar þar.

Allt í einu er lögreglan með rafbyssur
Allt í einu hefur lögreglan fengið leyfi til þess að nota rafbyssur. Sama dag og dómsmálaráðherra segist hafa tekið ákvörðun um að gera nauðsynlegar breytingar til þess að láta lögregluna fá rafbyssur segir forsætisráðherra að það þurfi nú að ræða málið í ríkisstjórn og í þinginu.

Samstarfssamningur ríkislögreglustjóra og Samtakanna ´78 undirritaður
Ríkislögreglustjóri og Samtökin ´78 hafa gert með sér samstarfssamning um áframhaldandi hinsegin fræðslu, ráðgjöf við rannsóknir og þróun á verklagi og nýju fræðsluefni fyrir lögreglu.

Undirbúningur hafinn fyrir notkun rafbyssa
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir undirbúning hafin fyrir notkun lögreglunnar á rafbyssum. Ágreiningur var milli ráðherra Vinstri grænna og dómsmálaráðherra um reglugerð sem hann gaf út og heimilaði notkun rafbyssa. Sigríður Björk segir að nú standi yfir undirbúningur útboðs á vopnunum fyrir lögreglu og hvaða tæknimöguleikar væru bestir.

Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni
Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey.

Tekist á um rafbyssuvæðingu: Svör forsætisráðherra ófullnægjandi og óskýr
Forsætisráðherra segir það alltaf háð mati hvers ráðherra fyrir sig hvort mál teljist svo mikilvæg að bera þurfi þau upp við ríkisstjórn áður en ákvörðun er tekin. Það mat geti verið ólíkt milli ráðherra, eins og um rafbyssuvæðingu dómsmálaráðherra, og það hljóti að vera pólitískt.

Lýsa yfir áhyggjum af vegferð lögreglunnar
Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem hún fordæmir að enn einn blaðamaðurinn hafi hlotið stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið svokallaða.

Bein útsending: Katrín svarar fyrir rafbyssumálið
Sérstök umræða um samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórnina varðandi rafbyssur verður í dag á Alþingi klukkan 15.45. Horfa má á umræðuna í beinni útsendingu hér að neðan.

Sakar lögregluna um að nota nafn Birnu í annarlegum tilgangi
Móðir Birnu Brjánsdóttur, sem myrt var árið 2017, óskar eftir áheyrn og virðingu gagnvart sér og dóttur sinni heitinni frá lögreglunni. Hún segir að sér hafi fallist hendur þegar hún las viðtal við aðstoðarlögreglustjóra í Reykjavík, þar sem hann notaði nafn dóttur hennar í „annarlegum tilgangi.“

„Óásættanlegt að yfir hundrað lögreglumenn slasist við störf á ári hverju“
Landssamband lögreglumanna segir í ályktun að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi lögreglumanna í starfi. Starfsstéttin búi við flest vinnuslys. Ályktunin kemur í kjölfar fréttar Vísis sem birtist í morgun, kom þar fram að fullyrðingar dómsmálaráðherra um að slysum lögreglumanna hafi fjölgað verulega standist ekki.

Fullyrðingar ráðherra um verulega fjölgun slysa standast ekki skoðun
Fullyrðingar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að slysum á lögreglumönnum hafi fjölgað verulega á síðustu árum fást ekki staðist samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Ráðherra hefur ítrekað vísað til þessa til að réttlæta að heimila lögreglu að bera rafbyssur.

Forsætisráðherra ítrekar ágreining við dómsmálaráðherra um rafbyssur
Forsætisráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að það hefði verið betri stjórnsýsla hjá dómsmálaráðherra að ræða rafbyssuvæðingu lögreglunnar á ríkisstjórnarfundi, áður en hann gaf út reglugerð sem heimilaði notkun þessara vopna.

Hæstiréttur tekur fyrir mál sérsveitarmanns vegna Hraunbæjarmálsins
Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni fyrrverandi liðsmanns sérsveitar ríkislögreglustjóra sem glímt hefur við áfallastreituröskun í kjölfar aðgerðar sérsveitarinnar í Árbæ í Reykjavík síðla árs 2013 sem leiddi til dauða manns.

Þóra aftur kölluð í yfirheyrslu
Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks á Ríkisútvarpinu, var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudag í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja.

Ósáttur við aukið myndavélaeftirlit: „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt“
Sósíalistar eru ósáttir við fyrirhuguð áform um stóraukið öryggismyndavélaeftirlit í miðborg Reykjavíkur. Borgarfulltrúi segir óttann ekki mega taka yfir.

Fær ekki að áfrýja dómi vegna skotárásarinnar á Egilsstöðum
Hæstiréttur telur ekki ástæðu til að veita Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni leyfi til að áfrýja átta ára fangelsisdómi fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst árið 2021.

Aukið eftirlit í kjölfar morðmáls árið 2017 loks á teikniborðinu
Í kjölfar morðsins á Birnu Brjánsdóttur árið 2017 var sett af stað vinna við að teikna upp öflugra öryggismyndavélakerfi í miðborg Reykjavíkur. Að sögn aðstoðarlögreglustjóra lognaðist verkefnið út af þegar heimsfaraldur skall á. Nú hefur verkefnið verið sett af stað á ný í kjölfar leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer hér á landi í maí.

Áhættumat RLS í hæsta stig og öryggismyndavélum fjölgað
Yfirvöld gera ráð fyrir að áhættumat Ríkislögreglustjóra verði hækkað í hæsta stig í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík dagana 16. til 17. maí næstkomandi. Þétta á net öryggismyndavéla í borginni fyrir fundinn.

Krefjandi aðstæður tollvarða á Íslandi: „Tollgæsla hefur aldrei verið eins veik og hún er núna"
„Farþegafjöldinn er galinn, álagið er sturlað suma daga. Það er ótrúlegt að það gangi svona vel miðað við hvað það er mikið álag og hvað við erum fá.“ Þetta segir íslenskur tollvörður aðspurður um þann veruleika sem tollverðir hérlendis starfa við og og þær áskoranir sem þeir upplifa í störfum sínum.

Með harðsperrur fram á sumar eftir þrekpróf sérsveitarinnar
Sérsveitin hefur aðlagað þrekhluta inntökuprófsins í sveitina að nýjum tímum með breytingum sem eiga að gera möguleika kvenna meiri á því að ná prófinu. Það þýðir samt ekki að það sé verið að slaka á kröfum, meðaljónar geti ekki náð lágmörkum.