Lög og regla
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 120 ›
Hákon Eydal í sextán ára fangelsi Hákon Eydal var dæmdur til sextán ára fangelsisvistar fyrir morðið á fyrrum sambýliskonu sinni Sri Rahmawati. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Honum ber jafnframt að greiða börnum Sri bætur að upphæð 22 milljónir króna og þriggja og hálfrar milljónar króna sakarkostnað. Innlent 23.10.2005 15:00
Hæstiréttur í Baugsmáli Forseti hæstaréttar hefur ákveðið hverjir munu sitja í dómnum sem fjallar um Baugsmálið. Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vísaði úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun á öllum ákærum í Baugsmálinu til hæstaréttar í síðustu viku. Forseti hæstaréttar hefur nú ákveðið hvaða fimm dómarar fjalli um málið. Þeir eru: forsetinn sjálfur, Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:00
Fordæmir vinnubrögð lögreglu Femínistafélag Íslands átelur vinnubrögð lögreglunnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. Innlent 23.10.2005 15:00
Ketamín einnig notað hér á landi Ketamín, staðdeyfilyf fyrir hesta sem Sky-sjónvarpsstöðin greindi í dag frá að sé notað á breskum næturklúbbum sem vímugjafi, hefur borist hingað til lands á síðustu árum í nokkrum mæli að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík Innlent 23.10.2005 15:00
Hrossadeyfilyf notað sem dóp Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því. Innlent 23.10.2005 15:00
Tafir á umferð í Svínadal Lögreglan í Búðardal segir að töluverðar tafir verði á umferð um Svínadal í Dalasýslu fram eftir degi þar sem verið er að ná upp fjárflutningabíl sem valt þar í gær. Vegfarendum er bent á nota veginn um Fellsströnd í staðinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Kveiktu í gámum í Eyjum Ungir drengir kveiktu í óvitaskap í tveimur gámum í Vestmannaeyjum í gær með þeim afleiðingum að ýmis búnaður frjálsíþróttafélagsins Óðins, sem var í öðrum gámnum, stórskemmdist. Ekkert tjón varð í hinum gámnum. Drengirnir forðuðu sér en í gærkvöldi kom hið sanna í ljós og var rætt við foreldra drengjanna sem eru fullir iðrunar. Innlent 23.10.2005 15:00
Óvíst hvort skútu verður bjargað Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reyna á að bjarga skútunni Vamos sem nú rekur stjórnlaust í vonskuveðri um 160-170 kílómetra frá Straumnesi norðvestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæslunni sagði að vonskuveður væri á þessu svæði sem er innan grænlenskrar lögsögu en þó innan leitar- og björgunarsvæðis Landhelgisgæslunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00
Sjötug kona beitt ofbeldi Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum aðfarafótt sunnudags eftir að hafa kvartað undan hávaða hjá nágrönnum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er atburðarásin óljós, en konan virðist hafa bankað upp á í íbúðinni fyrir ofan hennar og gert athugasemdir við gleðskapinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Barin fyrir að kvarta undan látum Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði kvartað undan partílátum og næturhávaða aðfararnótt sunnudags. Innlent 23.10.2005 15:00
Einn talinn af eftir sjóslys Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst með harðfylgi í morgun að bjarga Bandaríkjamanni úr skútu sem var í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands í miklu hvassviðri og haugasjó. Félagi hans, sem var skoskur, féll fyrir borð um miðnætti og er talinn af. Þyrlan er á leið til Rifs, þar sem hún tekur eldsneyti og er væntanleg með Bandaríkjamanninn til Reykjavíkur klukkan ellefu. Innlent 23.10.2005 14:59
Braut rúður í átta bílum Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðbundið í tvö ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Stúlka sem leitað var að fundin Sautján ára stúlka, sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær, eftir að hafa verið saknað í rúman hálfan mánuð, fannst í heimahúsi í borginni í gær. Ástæða þess að ekki var lýst eftir henni fyrr er að vitað var að hún vildi fara huldu höfði. Hún hefur nú verið vistuð á viðeigandi stofnun. Innlent 23.10.2005 14:59
Björguðu manni af skútu í háska Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst í morgun með harðfylgi, að bjarga manni af skútu í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands, en félagi hans fannst ekki og er talinn af. Innlent 23.10.2005 14:59
Efni og vog gerð upptæk Við húsleit á heimili 22 ára gamals manns í Grafarholti í Reykjavík í vor fann lögregla nokkurt magn fíkniefna sem að hluta til voru talin ætluð til sölu. Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Innlent 23.10.2005 15:00
Óttast um bandaríska skútu Fokker-vél og stóra þyrla Landhelgisgæslunnar voru rétt í þessu að koma á vettvang bandarískrar skútu með tveimur mönnum um borð sem virðist í nauðum stödd í afleitu veðri um 110 sjómílur út af Vestfjörðum á milli Íslands og Grænlands. Sendingar frá neyðarsendi skútunnar fóru að heyrast upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 23.10.2005 14:59
Varað við hvassviðri í Búðardal Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur. Innlent 23.10.2005 14:59
Stóðu í innbrotum og smáþjófnaði Átján ára piltur var nýlega dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa verið í hlutverki bílstjóra í innbrotaleiðangri þriggja annarra í Reykjavík í mars á þessu ári. Þá var hann dæmdur fyrir lítilræði af hassi sem fannst í bíl hans nokkrum dögum síðar. Innlent 23.10.2005 15:00
Ný lögreglustöð Lögreglan í Reykjavík opnar í dag nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjóddinni í stað stöðvarinnar í Völvufelli. Innlent 23.10.2005 15:00
Kærir vegna tölvupósts Jónína Benediktsdóttir hefur lagt fram kæru hjá lögreglu vegna þess að efni úr einkatölvupósti hennar hafi birst á síðum Fréttablaðsins. Innlent 23.10.2005 15:00
Flutningabíll valt við Rauðavatn Stór vöruflutningabíll valt á Suðurlandsvegi rétt austan við hirngtorgið við Rauðavatn snemma í morgun, en ökumaðaurinn, sem var einn í bílnum, slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en nokkrar tafir hafa verið á umferð vegna umfangs aðgerða við að ná bílnum á réttan kjöl. Innlent 23.10.2005 14:59
Hótaði, barði og skar konu Rúmlega fertugur karlmaður neitaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar tekið var fyrir heimilisofbeldismál á hendur honum. Manninum er gefið að sök að hafa svipt konu frelsi sínu með því að halda henni fanginni á heimili sínu frá því klukkan fimm að morgni sunnudagsins 19. september í fyrra til klukkan tíu þegar henni tókst að komast út. Innlent 23.10.2005 14:59
Íkveikjur í rannsókn Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar í rannsókn lögreglu í Reykjavík á íkveikjum í höfuðborginni fyrstu helgina í september. Þá er grunur um íkveikju á að minnsta kosti fjórum stöðum í borginni, þar af tvisvar á sama stað með sólarhrings millibili í skemmu við Fiskislóð. Innlent 23.10.2005 14:59
Vonast eftir refsilækkun Mál Hákonar Eydals, sem banaði fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati í fyrrasumar, var flutt í Hæstarétti í gær. Dóms er að vænta innan tíðar. Innlent 23.10.2005 14:59
Varað við ferðum á Sandskeiði Lögreglan í Reykjavík varar við ferðum á Sandskeiði vegna slæms veðurs. Einkum er mælst til þess að ekki sé farið þar um á vanbúnum bílum. Á Sandskeiði er skyggni nánast ekkert, mikið hvassviðri og hálka. Innlent 23.10.2005 14:59
Rannsókn enn í gangi Enn stendur yfir rannsókn lögreglu á slysi sem varð á Viðeyjarsundi tíunda þessa mánaðar þegar skemmtibátur steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að tvö fórust. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn sagði ekkert nýtt að frétta af rannsókninni, en þó hyllti nú undir lok hennar. Hann bjóst við að mál tækju að skýrast þegar nær drægi vikulokum. Innlent 23.10.2005 14:59
Mál Auðar Laxness tekið fyrir Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku. Innlent 23.10.2005 14:59
Sakir aðeins fyrndar að hluta Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar enn möguleg brot stjórnenda Lífeyrissjóðs Austurlands þó svo að sakir stjórnarmanna vegna eftirlitsábyrgðar kunni að vera fyrndar. Aðstandendur kæru hafa eftir lögreglu að hylli undir lok rannsóknar. Innlent 23.10.2005 14:59
Aftur fjallað um Halldór Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir höfundarréttarbrot við ritun á bókinni Halldór, um Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. Málinu hafði áður verið vísað frá, en var aftur vísað heim í hérað af Hæstarétti. Innlent 23.10.2005 14:59