Lög og regla
85 86 87 88 89 90 91 92 93 … 120 ›
Óttast um líf sitt í kjölfar morða Auknar komur í kvennaathvarfið urðu í kjölfar tveggja morða og umfjöllunar um þau á síðasta ári. Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, segir sumar konur sem leituðu til athvarfsins hafa verið hræddar um að ofbeldið sem þær höfðu orðið fyrir gæti endað með morði. Innlent 13.10.2005 18:49
Endurupptaka ekki útilokuð Í dag eru 25 ár síðan Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en þá héldu margir að lokið væri einhverju umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar. Sex sakborningar voru dæmdir í fangelsi allt frá einu ári og upp í sautján ár. Sú var þó ekki raunin. Gerð var árið 1997 tilraun til endurupptöku, sem var hafnað. Síðan hafa verið gerðar lagabreytingar og enn eru uppi ráðagerðir um að fá málin tekin upp. Innlent 13.10.2005 18:48
Dylgjur óheimilar Samkeppnisráð úrskurðaði í gær að Hnit hf., hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að gefa í skyn í bréfi til ýmissa sveitarfélaga að keppinautur noti gamlan og úreltan búnað við loftmyndatöku. Innlent 13.10.2005 18:48
Enginn handtekinn vegna ránsins Enginn hefur enn verið handtekinn vegna ránsins í Árbæjarapóteki í fyrradag eftir að tveimur mönnum var sleppt í gær að loknum yfirheyrslum. Grunur beindist fljótt að þeim en þeir virðast hafa öruggar fjarvistarsannanir. Innlent 13.10.2005 18:48
Strauk frá Stuðlum og er leitað Leit stendur yfir að 14 ára dreng sem strauk af meðferðarheimilinu á Stuðlum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins strauk drengurinn síðastliðinn miðvikudag og hefur því verið týndur í tæpa viku, þegar þetta er skrifað. Innlent 13.10.2005 18:48
Dæmdur í 10 mánaða fangelsi Maður á fertugsaldri var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa ráðist á konu, slegið hana í höfuðið og misþyrmt henni á gamlársdag í hitteðfyrra. Innlent 13.10.2005 18:48
Báturinn gjöreyðilagðist í eldinum Slökkvistarfi um borð í fiskiskipinu Val GK í Sandgerðishöfn lauk ekki fyrr en klukkan hálf þrjú í nótt. Talið er að báturinn sé gjörónýtur og að tjónið nemi tugum milljóna króna. Innlent 13.10.2005 18:48
Dæmdur fyrir fjársvik og innbrot Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjársvik, þjófnað og að taka við þýfi. Maðurinn hafði meðal annars framvísað greiðslukorti fyrirtækis í leyfisleysi og brotist inn í íbúðarhúsnæði og stolið þaðan verðmætum. Innlent 13.10.2005 18:48
Fangelsi og 30 milljóna sekt Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvo menn til að greiða þrjátíu milljónir króna hvor í sekt og í fjögurra og fimm mánaða fangelsi fyrir stórfelld skattsvik og bókhaldsbrot. Innlent 13.10.2005 18:48
8 handteknir vegna fíkniefnamála Átta manns voru handteknir á Akureyri um helgina vegna fíkniefnamála og enn eitt fíkniefnamálið hefur verið í rannsókn síðan í nótt. Mennirnir átta voru teknir í tvennu lagi og fundust fíkniefni og tól til neyslu þeirra í báðum tilvikum. Innlent 13.10.2005 18:48
Skilorð fyrir árás með flösku Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann á 23. aldursári í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa slegið mann með bjórflösku í andlitið og sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að bein í andliti brotnuðu. Innlent 13.10.2005 18:48
Tæpt ár fyrir kjálkabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 33 ára gamlan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, innbrot og þjófnað. Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á konu í íbúð sinni að morgni gamlársdags árið 2003 og misþyrmt henni með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotnaði. Innlent 13.10.2005 18:48
Stal buxum, kaffi og frönskum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær nítján ára Keflvíking í hundrað daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðartilraun. Pilturinn hafði aðfaranótt 26. maí í fyrra farið inn á Flughótel í Keflavík og látið þar greipar sópa. Innlent 13.10.2005 18:48
Grunuðum ræningjum sleppt Karlmönnunnum tveimur sem lögregla handtók á miðnætti, grunaða um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær, hefur verið sleppt. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og voru yfirheyrðir í dag en sleppt að þeim loknum og er málið er enn í rannsókn. Innlent 13.10.2005 18:48
Lögreglufréttir Innbrot í Sandgerði Þremur myndavélum, vídeóupptökuvél, sérríflösku og peningaveski var stolið úr húsi við Klapparstíg í Sandgerði að morgni sunnudags. Innlent 13.10.2005 18:48
Ók á tvo ljósastaura Mikil mildi þykir að ekki varð stórslys þegar fólksbíl var ekið á tvo ljósastaura á Drottningarbraut á Akureyri í gærkvöldi. Tvennt var í bílnum og slapp það ómeitt en bíllinn er gjörónýtur eftir áreksturinn. Innlent 13.10.2005 18:48
Vonar að börn sjá ekki myndbandið Móðir ungs manns sem lést eftir líkamsárás í Hafnarstræti segist ekki skilja hvers vegna fólk dreifi myndum af árásinni á Netinu. Hún vonar að börn sjái ekki þessar myndir. Innlent 13.10.2005 18:48
Sprenging í kannabisinnflutningi Mikil sprenging hefur orðið í innflutningi á kannabisefnum á Bretlandseyjum. Að sögn breskra dagblaða er ástæðan sú að lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum settu kókaín og heróín sem algjör forgangsmál í byrjun síðasta árs. Innlent 13.10.2005 18:48
Átta með fíkniefni á Akureyri Átta menn innan við tvítugt voru teknir með fíkniefni í fórum sínum á Akureyri á laugardag. Innlent 13.10.2005 18:48
Lögregla yfirheyrir tvo vegna ráns Lögreglan í Reykjavík handtók um miðnætti tvo karlmenn sem grunaðir eru um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og verða yfirheyrðir í dag. Ræningjarnir réðust inn í apótekið um hádegisbil klæddir bláum samfestingum og með hettur á höfði, vopnaðir hnífum. Þeir náðu nokkru af lyfjum. Innlent 13.10.2005 18:48
Átta handteknir á Akureyri Átta manns voru handtekin á Akureyri í gærkvöldi og í nótt vegna fíkniefna í tveimur aðskildum málum. Fyrra málið kom upp um kvöldmatarleytið. Fernt var handtekið og hald lagt á tæki og tól til fíkniefnaneyslu sem og hass og amfetamín. Þeim var sleppt seint í gærkvöldi eftir yfirheyrslu og telst málið upplýst. Innlent 13.10.2005 18:48
Slasast eftir ofsahraðakstur Karlmaður um þrítugt var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir bílveltu innanbæjar í Þorlákshöfn. Hann er ekki í lífshættu að sögn vakthafandi lækni. Innlent 13.10.2005 18:48
Eldur í skipinu Valur Eldur kom upp við stakkageymslu á millidekki í skipinu Vali GK-185 í Sandgerðishöfn upp úr klukkan átta í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 18:48
Vopnað rán í Árbæjarapóteki Vopnað rán var framið í Árbæjarapóteki um hádegisbil í dag. Tveir hettuklæddir menn í samfestingum vopnaðir hnífum komu inn í apótekið og ógnuðu starfsfólki án þess þó að meiða neinn. Þeir létu greipar sópa í lyfjaskápum apóteksins en komust ekki í peningakassa. Innlent 13.10.2005 18:48
Myndband af líkamsárás á Netinu Myndbandi með líkamsárás í Hafnarstræti í Reykjavík, sem leiddi til dauða ungs manns, er dreift á Netinu. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél lögreglunnar og var sönnunargagn í málinu gegn árásarmönnunum. Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir þetta afar ósmekklegt. Innlent 13.10.2005 18:48
Þriggja tonna tjakki stolið Brotist var inn í fiskvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í fyrrinótt og hvarf þjófurinn á brott með verkfærakistu á hjólum, rafsuðutæki, hátíðnisuðutæki og þriggja tonna tjakk. Innlent 13.10.2005 18:48
Tókust á við lögreglumenn Lögreglumenn í Keflavík þurftu að beita piparúða á tvo ofstopamenn á veitingahúsi í bænum laust eftir miðnætti eftir snörp átök við þá. Við úðann dösuðust mennirnir svo lögregla kom járnum á þá og flutti þá í fangageymslur þar sem þeir sofa úr sér ölvímu. Einn lögreglumaður þurfti að leita læknis í kjölfar þess að annar mannanna sparkaði harkalega í hann. Innlent 13.10.2005 18:48
Lést í vélsleðaslysi Maður lést þegar hann fór fram af hengju á vélsleða á Landmannaleið um miðnætti á aðfaranótt föstudags. Innlent 13.10.2005 18:48
Fegurðardrottning tapar máli Fyrrverandi þátttakandi í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is tapaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur máli sem hún höfðaði á hendur aðstandendum keppninnar og íslenska ríkinu. Stúlkan hafði tekið þátt í kynningu á torfærukeppni og slasast þegar hún keyrði yfir sandbing. Hún krafðist bóta upp á tæplega tvær milljónir króna. Innlent 13.10.2005 18:48
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu Enn var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í gær og þaðan stolið verðmætum. Nokkuð hefur verið um innbrot þar að undanförnu, gjarnan um hábjartan daginn, og stórir hlutir á borð við sjónvörp og tölvur borin út án þess að nokkur virðist taka eftir því. Fyrr í vikunni var heilli búslóð stolið úr bílskúr í Breiðholti þar sem hún var í geymslu. Innlent 13.10.2005 18:48