Kvöldfréttir Stöðvar 2
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 63 ›
Aukafréttatími Stöðvar 2 í tilefni kosninga Úrslit Alþingiskosninganna eru ljós eftir spennandi nótt. Atburðarásin verður gerð upp í aukafréttatíma klukkan 12 á Stöð 2. Innlent 26.9.2021 11:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verða Alþingiskosningarnar í forgrunni. Við förum yfir kjörsóknina, sjáum formennina kjósa, greinum kosningatískuna, heyrum í kjósendum á kjörstað og ræðum við afmælisbarn sem fékk að kjósa í fyrsta sinn í dag. Innlent 25.9.2021 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikil hreyfing er enn á fylgi flokkanna en samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna myndi ríkisstjórnin sem var fallin í gær fá lágmarksmeirihluta á Alþingi í kosningunum á morgun. Fjallað er um spennuna sem er að magnast í kvöldfréttum okkar í kvöld. Innlent 24.9.2021 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarflokkana vantar einn þingmann svo ríkisstjórnin haldi velli samkvæmt nýrri könnuna Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Við greinum frá niðurstöðu könnunarinnar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sem verða í opinni dagskrá. Innlent 23.9.2021 18:00
Svona voru kappræðurnar á Stöð 2 Leiðtogar stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram krafta sína til Alþingis næstu fjögur árin mæta í sjónvarpssal Stöðvar 2 á Suðurlandsbraut og takast á í kappræðum að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 23.9.2021 17:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bruni Miðgarðskirkjunnar í Grímsey verður í brennidepli í kvöldfréttum Stöðvar 2. Grímseyingar eru í áfalli en hafa fullan hug á að endurreisa kirkjuna. Innlent 22.9.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verður rætt við fjölskyldu manns sem missti móður sína úr krabbameini. Þeim þykir það sæta furðu að Landsréttur hafi hunsað hinstu ósk móðurinnar í erfðaskrá. Innlent 21.9.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld fjöllum við um afléttingu ferðabannsins til Bandaríkjanna. Við ræðum við utanríkisráðherra og forstjóra Icelandair um málið. Innlent 20.9.2021 18:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjórtán ára drengur sem var greindur með kvíðakast á heilsugæslu og sendur aftur heim reyndist vera með blóðtappa í báðum lungum eftir kórónuveirusmit. Foreldrar hans eru fegnir því að ekki fór verr. Við ræðum við drenginn og foreldra hans í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö. Innlent 18.9.2021 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hvergi í heiminum hafa hlutabréf hækkað eins mikið í verði á undanförnu ári en á Íslandi. Hagfræðingur segir þetta skipta miklu fyrir framgang íslensks atvinnulífs en minnir á að hlutabréfakaupum fylgir áhætta.Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast á slaginu 18:30. Innlent 17.9.2021 18:16
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tveggja ára drengur, sem lagður var inn á gjörgæslu vegna Covid, er á batavegi. Drengurinn er ekki með undirliggjandi sjúkdóm en fékk bakteríusýkingu ofan í Covid-sýkinguna. Barnalæknir segir málið eðlilega vekja óhug hjá foreldrum en börn séu þó ekki í meiri hættu en áður. Innlent 16.9.2021 18:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Björgunarsveitarmenn þurftu að forða sér þegar hraunstraumur tók óvænt að renna hratt niður í Nátthaga. Svæðið var rýmt og Landhelgisgæslan þurfti að koma göngufólki til bjargar. Innlent 15.9.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll. Innlent 14.9.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Von er á talsverðum afléttingum á nánast öllum sóttvarnatakmörkunum innanlands. Fjallað verður tillögur í minnisblaði sóttvarnalæknis í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.9.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona sem slapp naumlega eftir að eldur kom upp í íbúð hennar segir magnað að hún sé á lífi. Við ræðum við hana í kvöldfréttatímanum klukkan 18:30. Innlent 12.9.2021 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óttast er að riða hafi náð að breiðast út í Skagafirði. Riðuveiki greindist á bænum Syðra-Skörðugili í gær og þarf að skera allt féð niður. Innlent 11.9.2021 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ragna Bergmann missti föður sinn og bróður með fimm ára millibili eftir að þeir sviptu sig lífi. Hún segir enn mikla feimni við að ræða sjálfsvíg opinskátt. Í kvöldfréttatímanum klukkan 18:30 ræðum við við Rögnu um missinn en alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er í dag. Innlent 10.9.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjallað hefur verið um alvarlegar hótanir, í fjölmiðlum í dag, sem varaborgarfulltrúi Miðflokksins hefur sætt. Hann segist óttasleginn í viðtali við Kristínu Ólafsdóttur og borgarfulltrúar telja ástæðu til að hafa áhyggjur af öryggi sínu, en maðurinn var ekki handtekinn. Kristín rýnir í málið og upplýsir okkur um stöðu þess. Innlent 9.9.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kristján Már Unnarsson verður í beinni útsendingu frá Skaftárhlaupi sem hefur látið að sér kveða í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann ræðir við bændur og búalið um áhrifin af þessu hlaupi í ár og verður með einstakt myndefni af þessum hamförum. Innlent 8.9.2021 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra segir hilla undir að hægt verði að heimila stórar fjöldasamkomur. Mögulega verði slakað á sóttvarnareglum áður en þær sem nú eru í gildi renna út á föstudag í næstu viku. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 7.9.2021 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld segjum við frá því að tveir ráðherrar ríkisstjórnar Íslands telja tíma til kominn að létta á aðgerðum innanlands. Sóttvarnalæknir er hins vegar ekki á sama máli. Faraldurinn er á hægri niðurleið og álagið á Landspítalann ekki í nánd því eins mikið og þegar verst lét í þessari bylgju. Innlent 6.9.2021 18:10
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óttast er að vatnshæð í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur. Innlent 5.9.2021 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sprenging hefur orðið í tilkynningum um ofbeldismál til Íþróttabandalags Reykjavíkur í ár en þau hafa rúmlega fjórfaldast milli ára. Alvarlegustu málin hafa verið tilkynnt til lögreglu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 4.9.2021 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra vill ráðast í tilslakanir á samkomutakmörkunum í næstu viku. Enginn er á gjörgæslu vegna Covid-19 og yfirstandandi bylgja er á niðurleið. Innlent 3.9.2021 18:11
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Önnur tveggja kvenna sem Kolbeinn Sigþórsson veittist að á skemmtistað í Reykjavík og hefur hingað til ekki tjáð sig ákvað að stíga fram eftir yfirlýsingu landsliðsmannsins - þar sem hann hafnar því að hafa beitt þær ofbeldi. Innlent 2.9.2021 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hlaup er hafið í Skaftá og hafa almannavarnir lýst yfir óvissustigi vegna hættu á brennisteinsmengun. Kristján Már Unnarsson er kominn á vettvang og sýnir frá aðstæðum í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 1.9.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu segir skandalinn sem skekur knattspyrnuhreyfinguna hafa tekið mikið á saklausa leikmenn og starfsmenn hópsins fyrir komandi leiki. Kona sem safnar frásögnum af hópnum segist ekki hafa heyrt af brotum neins úr þeim hópi. Innlent 31.8.2021 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forysta KSÍ er þögul sem gröfin nú þegar stjórnin er krafin um afsögn og aukaþing. Knattspyrnuhreyfingin óttast orðspor íslenskrar knattspyrnu. Stjórn KSÍ hefur setið á fundi vegna málsins síðan síðdegis í dag. Innlent 30.8.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um mál KSÍ, en líkt og fram hefur komið sagði Guðni Bergsson af sér sem formaður nú síðdegis. Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttamaður okkar, er stödd við Laugardalshöll og mun greina frá nýjustu tíðindum í beinni útsendingu. Innlent 29.8.2021 18:16
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um mál KSÍ og rætt við Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur, sem kallar eftir afsögn stjórnarmanna sambandsins. Hún kveðst vita um allt að sjö núverandi eða fyrrverandi landsliðsmenn í knattspyrnu sem hafi verið sakaðir um ofbeldi. Innlent 28.8.2021 18:03