
Snjóflóð á Flateyri og Suðureyri

Talsvert eignatjón en engin alvarleg slys á fólki eftir þrjú „mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum
Alls féllu þrjú "mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum undir miðnætti í gær líkt og það er orðað á vef Veðurstofu Íslands. Tvö við Flateyri, úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili, og eitt gegnt Suðureyri í Norðureyrarhlíð sem skapaði flóðbylgju sem fór inn í bæinn. Tjón hefur orðið á eignum en engin alvarleg slys á fólki svo vitað sé.

Stúlkan sem lenti í snjóflóðinu flutt til Ísafjarðar með Þór
Unglingsstúlkan sem lenti í snjUnglingsstúlkan sem lenti í snjóflóðinu sem féll á Flateyri seint í gærkvöldi verður flutt með varðskipinu Þór á Ísafjörð. Líðan hennar er eftir atvikum góð.

Hefðu byrjað rýmingar fyrir mörgum dögum ef varnargarðsins nyti ekki við á Flateyri
Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist afar þakklátur fyrir það að allir hafi komist óhultir frá snjóflóðunum sem féllu á Flateyri og Suðureyri seint í kvöld.

Gríðarlegt tjón á Flateyri: „Smábátabryggjan er farin“
Magnús Einar Magnússon formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri var sofandi á heimili sínu á Flateyri þegar snjóflóð féll á bæinn undir miðnætti með miklum drunum.

Flóðbylgjan skall á húsum og bílum á Suðureyri
Snjóflóðið sem féll úr hlíðinni við Súgandafjörð til móts við Suðureyri féll i sjóinn og varð til þess að flóðbylgja skall á bænum. Nokkuð tjón varð á húsum og bílum. Vösk sveit björgunarsveitarmanna stendur vaktina.

Telja flóðið á stærð við það sem féll á Flateyri 1995
Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur íbúa á Flateyri og Suðureyri til að halda ró sinni og ekki hika við að óska eftir hjálp ef á þurfi að halda.

Hús rýmd vegna snjóflóðanna og íbúar beðnir að halda kyrru fyrir
Ekki er vitað um alvarleg slys á fólki.

„Svo er ég bara í húsinu mínu þegar það kemur hvellur“
„Þegar ég kíki út um gluggann þá sé ég bílinn okkar á hvolfi með blikkandi ljósin og annan bíl, einhverjum tíu metrum frá mér. Flóðið hefur komið og sprengt yfir varnargarðinn.“

Unglingsstúlka sem grafin var úr flóðinu ekki alvarlega slösuð
Annað snjóflóðið sem féll við Flateyri seint í kvöld féll að hluta til á hús í jaðri bæjarins.

Þrjú stór snjóflóð við Flateyri og Suðureyri með skömmu millibili
Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógahlíð hefur verið virkjuð vegna snjóflóða sem féllu á Vestfjörðum nú seint í kvöld.