
Samkomubann á Íslandi

Örlagastund í sóttvörnum
Sóttvarnalæknir er búinn að útbúa minnisblað um aðgerðir innanlands og ríkisstjórnin fundar á morgun. Mín tilfinning er að þetta sé einn krítískasti tíminn í baráttunni við veiruna, þar sem upplýsingagjöf hefur verið misvísandi og mikið óþol komið í marga.

„Öll alveg ógeðslega fúl og pirruð yfir þessu“
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir ekkert annað í stöðunni en að þjóðin taki höndum saman og takist á við nýjar sóttvarnaaðgerðir.

Boðað verður til ríkisstjórnarfundar þegar minnisblaðið berst
Boðað verður til sérstaks ríkisstjórnarfundar þar sem ríkisstjórn landsins mun ræða minnisblað sóttvarnalæknis með tillögum að sóttvarnaaðgerðum innanlands. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst skila minnisblaði með tillögum sínum til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag og verður boðað til ríkisstjórnarfundar þegar minnisblaðið berst.

Með ónotatilfinningu fyrir aðgerðum sem gætu sett Þjóðhátíð úr skorðum
Formaður Þjóðhátíðarnefndar segist hafa ónotatilfinningu fyrir því að gripið verði til aðgerða til að bregðast við fjölgun kórónuveirusmita í samfélaginu, sem gætu haft áhrif á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Öllum tilmælum yfirvalda verði þó fylgt.

Segir fyrirspurn um afsökunarbeiðni lykta af pólitík
Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir fyrirspurn dómsmálaráðherra til lögreglustjóra um afsökunarbeiðni lykta af pólitík. Hann segir almenning eiga rétt á að vita um hvað fór á milli Áslaugar Örnu og Höllu Bergþóru á aðfangadag.

Halla Bergþóra mun ekki tjá sig neitt frekar um samtalið við dómsmálaráðherra
Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ætlar ekki að tjá sig efnislega að neinu leyti um hið fræga símtal sem hún átti við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.

Áslaug Arna spurði Höllu Bergþóru hvort hún ætlaði að biðjast afsökunar
Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar segir þetta sýna að sérhagmunir Sjálfstæðisflokksins blindi ráðherrum flokksins sýn hvað varðar almannahagsmuni.

Forsætisráðherra undirbýr úttekt á aðgerðum stjórnvalda í faraldrinum
Forsætisráðherra segir mikilvægt að gerð verði úttekt á aðgerðum sem gripið var til í kórónuveirufaraldrinum og að dreginn verði lærdómur af honum. Endanlegt fyrirkomulag úttektarinnar liggur ekki fyrir, en ráðherra lítur til nágrannalanda okkar.

Viðtöl af djamminu: „Fokk Covid“
Mikil gleði og léttir einkenndu andrúmsloftið í miðbænum í nótt þegar fréttamenn Vísis og Stöðvar 2 litu þar við.

467 daga þrautaganga á enda
Dagurinn í dag er sannkallaður hátíðisdagur. Hann markar endalok samkomutakmarkana sem hafa verið í gildi í einhverri mynd síðustu 467 daga. Og það vonandi til frambúðar.

„Partíið er byrjað“
Skemmtistaðaeigendur eru nú í óðaönn að undirbúa helgina eftir gleðifréttir dagsins. Þeir búast við að mikið fjör verði í miðbænum í kvöld og segist plötusnúður feginn að þurfa ekki að minna á grímurnar.

„Æ, þetta er bara dásamleg tilfinning“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir nítugustu reglugerðina um samkomutakmarkanir sem hún undirritar vera sérstaklega ánægjulega. Í dag tilkynnti hún um brottfall allra takmarkana innanlands.

„Ég vil ekki vera leiðinlegi gæinn í partíinu“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir daginn í dag marka áfangasigur í baráttunni við kórónuveiruna, en eins og greint hefur verið frá falla allar sóttvarnaaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins hér innanlands niður á miðnætti. Þórólfur telur þó ekki um fullnaðarsigur að ræða.

„Kennir okkur hvað það merkir að lifa í samfélagi“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að faraldur kórónuveirunnar og viðbrögðin við honum hér á landi hafi kennt okkur hvað það merkir í samfélagi. Ólíkir aðilar hafi unnið að saman markmiði og að styrkur samfélagsins geti verið ótrúlega mikill í svona kringumstæðum.

Fyrirsjáanlegt mikið djamm í miðborginni í nótt
Mikill viðbúnaður er hjá veitingamönnum sem búa sig undir annasama og fjöruga nótt.

Öllu aflétt innanlands á miðnætti
Allar takmarkanir vegna farsóttar eru að falla úr gildi hér á landi. Þetta tekur gildi á morgun, 26. júní, en það þýðir raunar að þetta taki gildi strax á miðnætti í kvöld.

Svona var blaðamannafundurinn um afléttingu sóttvarnaaðgerða
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan ellefu í dag um afléttingu sóttvarna og aðgerða á landamærunum.

Hægt að létta verulega á takmörkunum
Viðbúið er að verulegar breytingar á samkömutakmörkunum verði kynntar á morgun. Sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði um aðgerðir innanlands og á landamærunum.

Dómsmálaráðherra stendur vörð um djammið
Eigendur skemmtistaða í miðbænum telja málflutning lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um að sjá megi ávinning af styttri opnunartíma skemmtistaða vegna faraldursins, byggja á veikum forsendum. Lögreglan hefur kallað eftir samtali við hagsmunaaðila í miðborginni um endurskoðun á opnunartíma. Dómsmálaráðherra segir af og frá að reglum verði breytt á þessum forsendum.

Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi í dag
Í dag taka gildi nýjar reglur um sóttvarnaaðgerðir. Fjöldatakmörk miðast nú við 300 manns og nándarreglan verður einn metri í stað tveggja. Þá er engin regla um nánd á sitjandi viðburðum en öllum skylt að bera grímu.

Þrjú hundruð manna samkomutakmarkanir og eins metra regla frá 15. júní
Samkomutakmarkanir munu miðast við þrjú hundruð manns frá 15. júní næstkomandi og þá kemur eins metra regla í stað tveggja metra reglu. Reglugerðin mun gilda í tvær vikur, til 29. júní, en stefnt er að því að búið verði að aflétta öllum takmörkunum innanlands um næstu mánaðamót.

Vonast til að skila minnisblaði fyrir helgi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir stefnir að því að skila minnisblaði um tillögu að breytingum á sóttvarnatakmörkunum til heilbrigðisráðherra fyrir helgi. Minnisblaðið snýr bæði að takmörkunum innanlands og á landamærum.

„Hver klukkustund gefur betur í kassann“
Veitingastaðir geta nú verið opnir klukkustund lengur en áður eftir að slakað var á sóttvarnareglum á miðnætti. Framkvæmdastjóri Petersen svítunnar í miðborg Reykjavíkur segir breytinguna skipta miklu fyrir reksturinn.

Slakað á grímuskyldu og samkomutakmörkunum
Breytingar á samkomutakmörkunum og öðrum sóttvarnaráðstöfunum tóku gildi nú á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 150 manns. Markverðasta breytingin er sú að verulega er dregið úr kröfum um grímunotkun.

Hugsanlega engar skráðar sóttvarnarreglur upp úr miðju sumri
Sóttvarnalæknir telur að að öllu óbreyttu verði engar skráðar sóttvarnareglur hér á landi upp úr miðju sumri. Annan daginn í röð greindist enginn með covid-19 hér á landi í gær.

Allt annað líf að fá að standa berskjaldaður andspænis kúnnunum
Ætla má að veitingahúsa- og bareigendur landsins hafi margir hverjir séð tilefni til að gleðjast í dag yfir boðuðum tilslökunum á sóttvarnareglum. Það er Björn Árnason, eigandi Skúla Craft Bar, að minnsta kosti en hann segir það muna öllu að fá að afgreiða fólk grímulaus.

150 mega hittast og almenn grímuskylda heyrir sögunni til
150 mega koma saman frá og með næsta þriðjudegi og fyrstu skref verða tekin í að aflétta grímuskyldu. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra rétt í þessu.

„Ekkert endilega“ að hugsa um afléttingaráætlun stjórnvalda
Sóttvarnalæknir hefur skilað inn tillögum að nýjum sóttvarnaaðgerðum til heilbrigðisráðherra og segist ekki bundinn af afléttingaráætlun stjórnvalda.

Þórólfur skorar á íþróttafélög eftir fjölda ábendinga um brot á sóttvarnareglum
„Í þessum fjölmörgu skjáskotum sem við höfum fengið í morgun er ljóst að mönnum hefur hlaupið kapp í kinn í gærkvöld, og þurfa að bæta sig,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, á fundi almannavarna í dag, aðspurður um sóttvarnabrot áhorfenda á íþróttaleikjum.

Telur víst að minnst eitthundrað megi koma saman eftir helgi
Heilbrigðisráðherra telur nokkuð öruggt að 100 manns hið minnsta verði leyft að koma saman þegar nýjar samkomutakmarkanir taka gildi eftir helgi. Grímuskyldan er einnig til skoðunar en ráðherra telur að hún verði afnumin í áföngum.