
Breiðablik

Myndaveisla frá Íslandsmeistarafögnuði Blika
Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu í gær er liðið vann 3-0 sigur gegn Víkingi í lokaumferð Bestu-deildar karla.

Einkunnir úr úrslitaleiknum: Magnaður Ísak Snær en Víkingar langt frá sínu besta
Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari í knattspyrnu þegar þeir unnu öruggan 3-0 sigur á Víkingi í úrslitaleik um titilinn. Í fréttinni má sjá einkunnagjöf Íþróttadeildar Vísis úr leiknum en maður leiksins kom vitaskuld úr liði Íslandsmeistaranna.

Höskuldur besti leikmaður mótsins og Anton hlaut gullhanskann
Höskuldur Gunnlaugsson var valinn besti leikmaður Bestu deildar karla og liðsfélagi hans hjá Breiðablik, Anton Ari Einarsson, hlaut gullhanskann.

„Maður var eiginlega að óska þess að Víkingur myndi ekki tapa“
„Ekkert hik, hlekkjalausir, Dóri og teymið búnir að setja þennan leik upp á tíu og það bara skein frá fyrstu mínútu,“ sagði Íslandsmeistarinn og besti leikmaður tímabilsins, Höskuldur Gunnlaugsson, eftir 3-0 sigur Breiðabliks gegn Víkingi.

„Þetta kjaftæði, það stoppar ekki Kópavoginn“
Ísak Snær Þorvaldsson skoraði fyrstu tvö mörkin í 3-0 sigri Breiðabliks gegn Víkingi. Hann segir Íslandsmeistaratitilinn eiga heima í Kópavogi.

„Höfum fengið að blómstra fyrir það sem við nákvæmlega erum“
Andri Rafn Yeoman var að vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitil sinn með Breiðablik en hann er annar af tveimur leikmönnum liðsins sem var hluti af titilliðunum árin 2010 og 2022. Hann sagði tilfinninguna frábæra.

„Langbesta liðið í þessari deild“
„Við sóttum bara það sem við erum búnir að ætla okkur í allt sumar og sýndum bara að við erum langbesta liðið í þessari deild. Það eiga allir risahrós skilið, virkilega vel gert,“ sagði Íslandsmeistarinn Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks. Breiðablik mætti á heimavöll ríkjandi Íslandsmeistara Víkings og vann afar sannfærandi 3-0 sigur til að tryggja titilinn.

Uppgjörið: Víkingur R. - Breiðablik 0-3 | Titillinn í Kópavog eftir meistaraframmistöðu
Breiðablik er Íslandsmeistari í knattspyrnu karla árið 2024 eftir 3-0 sigur á Víkingum í úrslitaleik. Sigur Blika var afar verðskuldaður en þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill félagsins og annar á síðustu þremur árum.

Sjáðu mörkin sem tryggðu Blikum Íslandsmeistaratitilinn
Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari karla í knattspyrnu með 3-0 sigri gegn Víkingi í lokaumferð deildarinnar.

Blikar þurftu að gera breytingu eftir slæman árekstur
Úrslitaleikur Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu er í fullum gangi. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en Blikar þurftu að gera breytingu eftir tuttugu mínútna leik vegna höfuðmeiðsla Kristins Jónssonar.

Stress og spenna hjá stuðningsmönnum fyrir úrslitaleikinn
Það var heldur betur fjör hjá stuðningsmönnum Víkings og Breiðabliks fyrir úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn þegar Nablinn og Aron Guðmundsson kíktu á stemmninguna fyrir leik.

Byrjunarliðin í úrslitaleiknum: Oliver Ekroth mættur aftur og Nikolaj Hansen byrjar
Víkingi dugir jafntefli en Breiðablik þarf sigur í viðureign liðanna í kvöld, úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn. Þjálfararnir Arnar Gunnlaugsson og Halldór Árnason hafa skipað byrjunarliðin.

Bretti í Víkinni máluð græn og Víkingar ætla að kæra Blika
Stuðningsmenn Breiðabliks fóru inn á Víkingsvöll í nótt og máluðu hluta af brettunum sem eru notuð til að mynda áhorfendaaðstöðu græn. Tjón eiganda brettanna er mikið. Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik Bestu deildar karla í kvöld.

Útilegustemmning hjá stuðningsmönnum Blika í Víkinni
Þótt aðeins 250 stuðningsmenn Breiðabliks geti verið á Víkingsvelli þegar liðið sækir Víking heim í úrslitaleik Bestu deildar karla ætla Blikar að fjölmenna í Víkina í dag.

„Feginn að okkur dugir ekki jafntefli“
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, segir að góður andi hafi ríkt innan raða Breiðabliks í aðdraganda úrslitaleiksins gegn Víkingi í kvöld. Blikar þurfa að vinna leikinn til að verða meistarar og hann segir að það henti liðinu mun betur en að verja jafntefli.

„Vona að þessi leikur verði epískur“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, vonast til að úrslitaleikurinn gegn Breiðabliki um Íslandsmeistaratitilinn verði eftirminnilegur. Hann telur að Evrópuleikurinn gegn Cercle Brugge muni ekki sitja í hans mönnum í kvöld.

Stúkumenn svara stóru spurningunum fyrir úrslitaleikinn
Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Víkinni í kvöld. Af því tilefni fékk Vísir sérfræðinga Stúkunnar, Albert Ingason, Baldur Sigurðsson, Atla Viðar Björnsson og Lárus Orra Sigurðsson, til að svara fimm spurningum um leikinn stóra.

Svona voru hinir úrslitaleikirnir um titilinn
Öll augu verða á Víkinni í kvöld þegar Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild karla. Þetta er í fimmta sinn á síðustu 28 árum sem lið mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Til að stytta biðina fram að leiknum í Víkinni rifjar Vísir upp hina fjóra úrslitaleikina.

Hert öryggisgæsla og 2.000 pallettur í Víkinni
Á morgun er stóri dagurinn. Víkingur og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Víkinni og þar komast færri að en vilja. Skipulagsaðilar í Víkinni hafa þá haft að mörgu að huga.

Hlakkar til að berjast við Blika: „Held að Damir vilji fara aðeins meira í mig“
Fyrirliði Víkings, Nikolaj Hansen, er klár í slaginn gegn Breiðabliki í úrslitaleik Bestu deildar karla annað kvöld. Hann er spenntur fyrir því að berjast við miðverði Blika.

Vilhjálmur Alvar dæmir úrslitaleikinn
Víkingur og Breiðablik mætast í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn annað kvöld. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma leikinn í Víkinni.

„Raungerðist það sem maður var búinn að óska sér í langan tíma“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, grínaðist með það að allir væru búnir að bíða eftir úrslitaleik Breiðabliks og Víkings í þrjú ár.

„Undir niðri kraumar bullandi rígur“
Gríðarleg eftirvænting ríkir vegna úrslitaleiks Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta. Liðin hafa marga hildi háð í baráttunni um titilinn síðustu ár, með tilheyrandi ríg á milli allra sem að þeim koma.

Sjö stjörnur yfirgefa sviðið um helgina
Sjö stór nöfn í íslenska fótboltanum yfirgefa sviðið í Bestu deild karla í fótbolta þegar lokaumferðin í deildinni fer fram um helgina. Að neðan er stiklað á stóru yfir feril þessara sjö merkismanna.

Sjáðu peppmyndbandið fyrir svakalegt uppgjör Víkings og Breiðabliks
Það hefur andað köldu á milli Víkings og Breiðabliks síðustu ár, enda liðin í harðri samkeppni, og á sunnudaginn er komið að uppgjöri þegar liðin spila um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla.

Mjög ólíklegt að Valdimar verði með í úrslitaleiknum
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir litlar líkur á því að Valdimar Þór Ingimundarson verði með gegn Breiðabliki í úrslitaleik Bestu deildar karla á sunnudaginn.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir úrslitaleikinn
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla.

Blikarnir draga úr hópi þeirra sem óska eftir miðum á úrslitaleikinn
Breiðablik hefur sent frá sér yfirlýsingu um hvað varð um þá 250 miða sem Blikar fengu í Víkina á sunnudaginn þegar félagið mætir Víkingum í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild karla í fótbolta.

Sjáðu boxið þar sem Arnar tekur út bann í úrslitaleiknum: „Þetta er erfitt“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur, mun ekki geta hvatt sína menn áfram frá hliðarlínunni í úrslitaleik Bestu deildarinnar gegn Breiðabliki um komandi helgi. Þess í stað verður hann í boxi í stúku Víkingsvallar og tekur út leikbann. Við ræddum við Arnar og litum við í boxinu fræga.

Stubbur hrundi vegna álags
Knattspyrnudeild Víkings hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna villu sem kom upp við sölu miða á leikinn gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudaginn kemur. Kerfi miðasölufyrirtækisins Stubbs hrundi í hádeginu vegna álags við sölu miða á leikinn.