Tindastóll

Mikil vinna, bæði innan sem utan vallar, skilaði þessum sigri
Óskar Smári Haraldsson, annar af þjálfurum nýliða Tindastóls, var eðlilega himinlifandi þegar blaðamaður loks náði í hann til að ræða fyrsta sigur Tindastóls í efstu deild kvenna í knattspyrnu.

Fyrsti sigur Tindastóls í sögu efstu deildar kominn í hús
Tindastóll tók á móti ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í dag. Þetta var þriðji leikur ÍBV á tímabilinu, en aðeins annar leikur Tindastóls. Tindastóll vann góðan 2-1 sigur og er þar af leiðandi komið með sinn fyrsta sigur í sögu efstu deildar kvenna í knattspyrnu.

„Sé ekki hvernig Tindastóll á að eiga nokkurn möguleika“
„Tindastóll gæti unnið einn leik en Keflavík vinnur alltaf þrjá leiki,“ segir Benedikt Guðmundsson um einvígi Keflavíkur og Tindastóls í 8-liða úrslitum Dominos-deildarinnar í körfubolta sem hefst í kvöld.

Deane Williams: Við höldum áfram að spila þangað til við þurfum ekki að spila meira
Keflavík og Tindastóll mætast í kvöld í átta liða úrslitum Domino's deildar karla. Keflvíkingar lönduðu deildarmeistaratitlinum á dögunum, en Tindastóll hafnaði í áttunda sæti deildarinnar. Deane Williams, sem leikur með Keflvík og hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar, á von á erfiðum leik.

Sylvía til Tindastóls á láni frá Stjörnunni
Sylvía Birgisdóttir mun spila með Tindastól í Pepsi Max deild kvenna í sumar. Hún kemur á láni frá Stjörnunni.

Baldur: Hrikalega leiðinlegt að tapa svona og sárt
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var ósáttur að hafa ekki náð að vinna Stjörnuna í lokaumferð Domino‘s deildar karla í kvöld. Stjörnumenn sigruðu, 96-102, eftir framlengingu.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Stjarnan 96-102 | Stólarnir sluppu inn í úrslitakeppnina
Stjarnan gerði góða ferð á Sauðárkrók og vann Tindastól, 96-102, eftir framlengingu í lokaumferð Domino's deildar karla í kvöld.

Leik Fylkis og Tindastóls frestað
Mótanefnd KSÍ hefur samþykkt sameiginlega ósk Fylkis og Tindastóls um að fresta leik félaganna í Pepsi Max deild kvenna sem var á dagskrá þriðjudaginn 11. maí.

Flestallt lokað á Króknum en leikur við Stjörnuna í kvöld: „Mér finnst það svolítið skrýtið“
Þrátt fyrir að skólum, fyrirtækjum, sundlaugum og skíðasvæði hafi verið lokað í Skagafirði vegna kórónuveirusmita þá verður spilað þar í kvöld í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta.

Telur Tindastól þurfa einn til tvo leikmenn til viðbótar
Farið var yfir frumraun Tindastóls í efstu deild kvenna í knattspyrnu í síðasta þætti Pepsi Max Markanna.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Tindastóll 93-83 | Gott gengi heimamanna heldur áfram
Grindvíkingar unnu sanngjarnan tíu stiga sigur á Tindastóli í Domino´s deild karla í körfuknattleik. Grindvíkingar eiga enn von um að ná heimaleikjarétti í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Baldur: Þurfum klárlega að vera betri en þetta
„Þetta var áframhald frá síðasta leik gegn Keflavík þar sem við erum bara flatir og í raun eins og menn séu bara að bíða eftir því að tímabilið klárist" sagði Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Tindastóls eftir tap liðsins gegn Grindavík í Domino´s deildinni í kvöld.

Glæsimarkið sem braut nýliðamúrinn, Hólmfríður sýndi að ákvörðunin var rétt og mörkin á Hlíðarenda
Nýliðar Tindastóls þurftu ekki að bíða lengi eftir sínu fyrsta marki og fyrsta stigi í efstu deild í fótbolta frá upphafi, eftir að leiktíðin í Pepsi Max-deild kvenna hófst. Liðið var hársbreidd frá sigri gegn Þrótti.

Umfjöllun: Tindastóll - Þróttur 1-1 | Úrvalsdeildarævintýrið hófst á grátlegu jafntefli
Tindastóll og Þróttur Reykjavík skildu jöfn, 1-1, í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Tindastóll komst grátlega nálægt sigri í sínum fyrsta leik í efstu deild en aukaspyrnumark í uppbótartíma bjargaði stigi fyrir Þrótt.

„Þurfti nánast að slá mig utan undir í morgun“
„Fólk er mjög áhugasamt og spennt, sem er alveg geggjað, og hópurinn er líka rosalega spenntur en á mjög jákvæðan hátt. Við erum öll einbeitt á verkefnið,“ segir Skagfirðingurinn Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls. Í kvöld spilar liðið sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta.

Kostuleg salsaspor dómara á Sauðárkróki
Körfuboltadómarinn Helgi Jónsson stal senunni í leik Tindastóls og Keflavíkur með liprum danssporum, þegar liðin áttust við í Dominos-deild karla á sunnudagskvöld.

Merk tímamót á Króknum: „Höfum hingað til alltaf náð að afsanna spár“
Á morgun rennur upp merkur dagur í íþróttasögu Skagafjarðar þegar Tindastóll spilar sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta. Tindastólskonur eiga hins vegar erfitt sumar fyrir höndum og er spáð botnsætinu í Pepsi Max-deildinni.

Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 71-86 | Deildarmeistararnir sóttu sigur í Síkið án Harðar
Keflavík sótti sigur á Sauðárkrók er liðið vann 86-71 sigur á heimamönnum í Tindastól er þau mættust í þriðju síðustu umferð Domino's deildar karla. Keflavík er deildarmeistari en Tindastóll berst fyrir sæti í úrslitakeppni.

Spá um 9. og 10. sæti í Pepsi Max kvenna: Aðeins of stórt skref fyrir nýliðana
Það styttist í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu og Vísir telur niður í Íslandsmótið með spá um lokaröð liðanna. Í dag eru það níunda og tíunda sætið sem eru tekin fyrir.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Tindastóll 93-91 | Upprisa Hauka heldur áfram
Haukar unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir sigruðu Tindastól, 93-91, í hörkuleik í Ólafssal í kvöld.

Búddastellingin hans Baldurs stal senunni í Domino´s Körfuboltakvöldi
Baldur Þór Ragnarsson er búinn að stýra Tindastólsliðinu til sigurs í fyrstu tveimur leikjunum eftir kórónuveirustopp. Það var þó enn á ný leikhlé hans sem var mikið í umræðunni í uppgjöri Domino´s Körfuboltakvölds í gærkvöldi.

Umfjöllun: Tindastóll – Þór Þ. 92-91 | Stólasigur í naglbít
Tindastóll hefur unnið báða leikina eftir kórónuveiruhléið en þeir hafa unnið bæði Þórs-liðin í vikunni. Sigurinn var mikilvægur fyrir Tindastól í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.

Velkominn Pétur Rúnar: „Var gerilsneyddur af sjálfstrausti“
Pétur Rúnar Birgisson átti góðan leik fyrir Tindastól í norðanslag gegn Þórsurum frá Akureyri á fimmtudagskvöld. Þeir í Domino's Körfuboltakvöldi sáu ástæðu til að bjóða hann velkominn aftur í deildina.

Umfjöllun: Tindastóll-Þór Ak. 117-65 | Niðurlæging í Síkinu
Tindastóll gerði sér lítið fyrir og niðurlægði Þór Akureyri í Domino's deild karla í kvöld. Lokatölur 117-65.

Finnur það alla leið til Reykjavíkur að það nötrar allt í Njarðvík
Í nýjasta Domino´s Körfuboltakvöldi var farið yfir stöðuna á liðunum sem skipa sex neðstu sætum deildarinnar nú þegar Domino´s deild karla er aftur komin í kórónuveiruhlé. Hér má sjá hvað menn höfðu að segja um liðin í níunda og tíunda sæti.

Skaut landsliði Jamaíku inn á HM og spilar með Tindastóli í Pepsi Max í sumar
Pepsi Max deildarliði Tindastóls hefur náð samkomulagi við Dominique Bond-Flasza um að hún spili á Króknum í sumar.

Umfjöllun: Tindastóll - Höttur 90-82 | Stólarnir á lífi
Tindastóll vann lífs nauðsynlegan sigur á Hetti, 90-82, er liðin mættust í Síkinu í kvöld. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um úrslitakeppnissæti.

Sjáðu kynningarþátt Stöðvar 2 Sports um Píeta samtökin
Vakin var athygli á starfsemi Píeta samtakanna á Stöð 2 Sport fyrir leik Vals og Tindastóls í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Tindastóll 90-79 | Þriðji sigur Valsmanna í röð
Valur vann 11 stiga sigur á Tindastól er liðin mættust í Dominos-deild karla í kvöld, lokatölur 90-79. Valsmenn nú unnið þrjá leiki í röð.

Styrktarleikur fyrir Píeta samtökin í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport
Leikur Vals og Tindastóls í Origo-höllinni í Domino's deild karla annað kvöld er styrktarleikur fyrir Píeta samtökin sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur.