
Ljósmyndun

RAX Augnablik: „Það var eitthvað mennskt við Qerndu“
„Ole kenndi mér það að þegar ég fer með veiðimönnum út á hafísinn, að passa mig hvað ég segi. Þegar þú færð svona frá reynsluboltum þá virðir maður það, segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson. Í nýjasta þættinum af RAX augnablik, segir hann söguna um einstakt samband grænlenska veiðimannsins Ole og hundsins Qerndu.

RAX Augnablik: Situr í manni alla ævi
„Eitthvað það erfiðasta sem maður lendir í sem fréttaljósmyndari er þegar það verða slys, svona hörmungar eins og snjóflóðin á Flateyri og Súðavík. Það er eiginlega ekkert erfiðara til, það situr í manni alla ævi,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson.

Reiða skjaldbakan Terry á fyndnustu dýralífsmynd ársins
Fyndnasta dýralífsmynd ársins er af dónalegri skjaldböku sem kallast Terry. Myndin var tekin undan ströndum Lady Ellioteyju í Ástralíu og virðist Terry verulega ósáttur við að mynd hafi verið tekin af honum.

Sólarupprásin sem stal senunni
Himnarnir sáu um að gleðja landsmenn þennan fallega haustmorgun og fylltust samfélagsmiðlar af mögnuðum myndum af logandi himni.

RAX Augnablik: Þarf að athuga hvort maður er á lífi
Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik segir Ragnar Axelsson frá fyrstu kynnum sínum af Kristni fjallkóngi og smalamennsku á fjöllum. RAX var alls ekki vinsæll eftir hegðun sína í þessari fyrstu ferð, enda fór hann þvert á fyrirmælin sem honum hafði verið gefin.

Alltaf verið meira hrifin af raunveruleikanum en einhverri glansmynd
Ljósmyndarinn Díana Júlíusdóttir hefur þrátt fyrir stuttan starfsaldur í faginu hlotið mikla athygli fyrir myndir sínar. Í vikunni fékk hún þær fréttir að heimildarmyndaröð hennar af Sunnu Valdísi Sigurðardóttur og foreldrum hennar verður sýnd á stórri ljósmyndasýningu í Barcelona á næsta ári.

Sjáðu norðurljósadýrðina í Fljótshlíðinni
Mikil norðurljósadýrð er í Fljótshlíðinni í kvöld en heiðskírt er yfir hlíðinni og sést því vel í ljósadýrðina.

RAX Augnablik: „Ef einhver vill fela sig á jörðinni þá er fínt að fela sig þarna“
Þegar RAX var að skrásetja lífið á Norðurslóðum, fékk hann að heyra margar sögur. Þar á meðal um þessi stórbrotnu Roscoe fjöll, sem RAX segir að sé mikil dulúð yfir.

RAX Augnablik: Eins og að fara hundrað ár aftur í tímann
Árið 1988 dvaldi Ragnar Axelsson í mánuð í Færeyjum og myndaði mannlífið. Í Fugley eru tvær byggðir, Kirkja og Hattarvík, en þar kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum eins og Árna Dal, Oliviu, Guttormi og Símoni. RAX leið eins og hann væri staddur í leikriti.

Magnaðar myndir frá sögulegu sumri á Íslandi
Sumarið 2020. Sumarið sem Íslendingar upp til hópa nýttu til að kynnast landinu sínu betur útaf svolitlu.

RAX Augnablik: „Tragedía sem þurfti ekki að fara svona“
5. mars árið 1997 lenti flutningaskipið Víkartindur í sjávarháska í brjáluðu veðri eftir að vélarbilun kom upp í skipinu snemma morguns. Ragnar Axelsson rifjar upp þennan sjávarháska.

Myndakeppni: Gæludýrin slá í gegn
Forsvarsmenn Mars gæludýragrínmyndaverðlaunanna 2020, Mars Petcare Comedy Pet Photography Awards, hafa tilkynnt hvaða myndir munu keppa til úrslita í keppninni í ár.

RAX Augnablik: „Allt í einu fór heimurinn á hvolf“
Í fimmta þætti af RAX Augnablik segir ljósmyndarinn söguna á bak við myndina sem prýðir forsíðu bókarinnar Andlit norðursins, Guðjón við Dyrhólaey.

RAX Augnablik: „Allt var eins nema hann“
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, RAX, heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum. Þar á meðal var mynd af nýfæddum litlum dreng sem birtist svo nokkrum árum seinna í bók hans Andlit norðursins.

RAX Augnablik: „Ísbjörninn er svo klókur og snöggur að gera árás“
Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í þegar hann fylgdi eftir veiðimönnum í leit að fjórum ísbjörnum úti á hafís þegar jökulstormur skall á.

Yfir fjögur þúsund tóku þátt í fréttaljósmyndakeppni á heimsvísu
Ljósmyndasýningin World Press Photo opnaði í gær í Kringlunni. World Press Photo stendur fyrir stærstu og veglegustu samkeppni heims á sviði fréttaljósmynda á hverju ári og í þetta skipti tóku yfir fjögur þúsund atvinnuljósmyndarar þátt í keppninni.

RAX AUGNABLIK: Undir gosmekkinum þar sem allt varð svart
Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í eldgosinu í Grímsvötnum árið 2011.

Gátan um frakka Ronalds Reagan á Bessastöðum
Þegar Frú Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan hittust fyrir leiðtogafundinn í höfða, náði Ragnar Axelsson ljósmyndari af þeim einstökum myndum. Vel fór á með forsetunum en frakki Reagan vakti bæði athygli ljósmyndarans sem og annarra sem voru þar viðstaddir.

Sala hafin á Fokk Ofbeldi bol með mynd frá Önnu Maggý og ljóði GDRN
UN Women á Íslandi hefja í dag sölu á glænýjum Fokk ofbeldi bol. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. UN Women á Íslandi fengu GDRN til leggja átakinu lið en FO langerma bolurinn skartar ljóði GDRN sem er táknrænt fyrir baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi á bakhlið bolarins.

RAX AUGNABLIK: „Þeir verða eins og litlir strákar í höndunum á henni“
Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi.

Þakklátur fyrir að fá að segja sögurnar á bak við augnablikin
Ragnar Axelsson ljósmyndari, betur þekktur sem RAX, segist vera smámunasamur og fer oft margar ferðir á sama staðinn til að ná réttu myndinni. Í nýjum þáttum segir hann frá sínum þekktustu ljósmyndunum og öllu því sem hann lagði á sig til þess að fanga þau augnablik.

Spessi myndar fólk sem náði sér af kórónuveirunni
Spessi ljósmyndari er þessa dagana í heimahögunum á Ísafirði að gera nýja myndaröð af fólki sem hefur jafnað sig af veikindum eftir að hafa smitast af kórónuveirunni.

Viðurkenning á mikilvægi þessa mynda
Ljósmyndarinn Ragnar Axelson hefur gengið til liðs við Vísi. Hann var í dag tilnefndur til Leica ljósmyndaverðlaunanna fyrir verkefnið Arctic Heroes – Where the world is melting

Verðlaunasýningar á Hafnartorgi vöktu athygli
Félag íslenskra teiknara opnaði tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic.

Framleiðslu Olympus-myndavéla hætt
Japanska fyrirtækið Olympus hefur hætt framleiðslu myndavéla eftir 84 ár á markaðnum.


Algengustu mistökin að ganga ekki nógu langt fyrir myndatöku og sölu fasteignarinnar
Fasteignamarkaðurinn er nú farinn að hreyfast á ný eftir rólegar vikur. Lífið fékk fasteignasalann Pál Pálsson til að gefa lesendum í söluhugleiðingum nokkur góð ráð. Það er greinilega ýmislegt hægt að gera til að auka líkur á sölu eignar og auka verðmæti hennar.

Fangar andrúmsloftið í samkomubanninu með einstakri ljósmyndasýningu
Leikstjórinn og ljósmyndarinn Þórhallur Sævarsson hefur opnað sýninguna Quarantine Iceland. Verkinu ætlað að fanga hið sérstaka andrúmsloft og þær samfélagslegu raskanir sem áttu sér stað í samkomubanni á tímum Covid-19 faraldursins á Íslandi.

Ljósmyndari Bítlanna er látinn
Astrid Kirchherr, þýskur ljósmyndari sem mikið myndaði Bítlana á fyrstu starfsárum þeirra, er látin, 81 árs að aldri.

Perlur Íslands: Fáir staðir jafn fallegir og útivistarparadísin Þórsmörk
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari á Vísi, betur þekktur sem Villi, segir frá sínum uppáhalds ferðamannastað á Íslandi.