
Dauði George Floyd

„Íslendingar þurfa líka að taka afstöðu um hvar þeir standa í heimsmálum“
Samstöðumótmæli eru skipulögð á Austurvelli vegna ástandsins Vestanhafs. Skipuleggjendur segja mikilvægt að Íslendingar taki afstöðu.

Trump ávarpar þjóðina eftir mótmæli helgarinnar
Donald Trump Bandaríkjaforseti mun ávarpa þjóðina í beinni útsendingu frá Rósagarði Hvíta hússins.

Köfnun banamein Floyd
Niðurstöður krufningarskýrslu réttarmeinafræðingsins Dr. Michael Baden sýna fram á að George Floyd hafi látist vegna köfnunar.

„Bróðir minn vildi frið“
Terrence Floyd segir skiljanlegt að mótmælendur séu reiðir og að mótmælin sem fara nú fram víðs vegar um Bandaríkin séu réttlætanleg.

Hvatti ríkisstjóra til að beita meiri hörku
Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði í dag með ríkisstjórum um Bandaríkin og yfirmönnum lögreglunnar í landinu í gegnum fjarfundabúnað.

Lögregluþjónar reknir fyrir misbeitingu valds við handtöku tveggja háskólanema
Tveir lögregluþjónar í Atlanta í Bandaríkjunum voru reknir í gær eftir að myndband af handtöku þeirra og annarra lögregluþjóna birtist á netinu.

Finna fyrir varnarleysi og halda samstöðufund á Austurvelli
Nokkrir Bandaríkjamenn sem búa hér á Íslandi hafa skipulagt samstöðufund við mótmælendur í bandaríkjunum á miðvikudaginn.

Sancho segir fyrstu þrennuna súrsæta
Sancho skoraði sína fyrstu þrennu í gær en segir augnablikið hafa verið súrsætt.

Michael Jordan tjáir sig um morðið á George Floyd
Michael Jordan, einn frægasti íþróttamaður allra tíma, og eigandi Charlotte Bobcats í NBA-deildinni hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfar mótmælanna og óeirðanna í Bandaríkjunum.

Clippers og Lakers standa saman gegn kynþáttafordómum
NBA-liðin LA Clippers og LA Lakers hafa gefið út tilkynningar þar sem þau fordæma kynþáttahatur en það hefur verið í brennidepli í Bandaríkjunum síðustu daga.

Ráðgjafar Trump ósammála um ávarp til þjóðarinnar
Ráðgjafar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eru ósammála um það hvort hann eigi að ávarpa þjóðina vegna þeirra mótmæla og óeirða sem hafa nú staðið yfir í sex daga.

Þjóðaröryggisráðgjafi segir kynþáttahatur ekki kerfislægt vandamál innan lögreglunnar
Þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins hafnaði því í sjónvarpsviðtali við Jake Tapper hjá CNN í kvöld að kynþáttahatur væri kerfislægt innan bandarísku löggæslunnar. Ráðgjafinn Robert O‘Brien sagði að um væri að ræða nokkur skemmd epli sem eyðilögðu orðspor lögreglunnar.

Lögregla ræðst gegn fjölmiðlafólki sem Trump segir kynda undir hatri og stjórnleysi
Í mótmælaöldunni sem fer nú um Bandaríkin vegna dauða George Floyd í Minneapolis 25. maí hefur borið á því að fjölmiðlafólk hafi verið sérstakt skotmark óeirðalögreglu í borgum víðsvegar um Bandaríkin.

Mótmælt líka í Kaupmannahöfn og Lundúnum
Mörg hundruð mótmælendur voru handteknir víða í Bandaríkjunum í nótt. Mótmæli vegna dauða George Floyd hafa breiðst hratt út um landið og loguðu eldar víða í nótt. Þá voru skipulögð mótmæli í Kaupmannahöfn og Lundúnum í dag.

Sancho fagnaði með því að biðja um réttlæti | Samúel ekki í leikmannahóp Paderborn
Jadon Sancho hjálpaði Borussia Dortmund að vinna Paderborn 07 á útivelli í dag. Nýtti hann tækifærið til að vekja athygli á máli George Floyd.

Fagnaði með því að „taka hné“ | Gladbach aðeins stigi á eftir Dortmund
Einn markaskorara Mönchengladbach fagnaði með því að „taka hné.“

Lögreglan gekk til liðs við mótmælendur
Þó mikið hafi verið um óeirðir og átök milli mótmælenda og lögreglu í Bandaríkjunum á það ekki við alls staðar þar sem mótmæli fóru fram.

Colin Kaepernick lofar mótmælendum lögfræðiaðstoð
Fyrrum leikstjórnandi San Francisco 49ers hefur lofað mótmælendum í Minneapolis lögfræðiaðstoð.

Óeirðum fjölgar enn í Bandaríkjunum
Umfangsmiklar óeirðir brutust út í mörgum borgum Bandaríkjanna í nótt. Víða kom til átaka á milli mótmælenda og lögreglu og hafa fregnir borist af slösuðum og særðum á báðum hliðum.

Útgöngubann vegna óeirða í kjölfar lögregluofbeldis
Minnst sex ríki hafa óskað eftir stuðningi þjóðvarðliðs Bandaríkjanna til að bregðast við auknum óeirðum í kjölfar andláts George Floyd, sem lést í haldi lögreglunnar í Minneapolis eftir að lögreglumaður hélt hné sínu að hálsi hans í tæpar níu mínútur.

Fyrirliði Schalke 04 vill réttlæti í máli George Floyd
Weston McKennie, fyrirliði Schalke 04, í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu vill réttlæti fyrir George Floyd sem var myrtur af lögreglunni í Minneapolis í Bandaríkjunum á dögunum.

Íslensk kona í Minneapolis segir íbúa slegna: „Ég held að þetta verði allt sumarið. Þetta er bara rétt að byrja“
Íslensk kona sem búsett er í Minneapolis óttast að mótmælin séu rétt að byrja og komi til með að standa fram eftir sumri.

Búast við frekari óeirðum í Minneapolis í nótt
Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, segist ekki hafa nægt mannafl til að stöðva mótmæli og óeirðir í Minneapolis og býst hann við að næsta nótt verði erfið.

Mótmælin teygja anga sína víðar um Bandaríkin
Mótmæli vegna dauða George Floyd teygja nú anga sína víðsvegar um Bandaríkin. Þau hafa staðið yfir í fjóra daga.

Útgöngubann sett á í Minneapolis
Jacob Frey, borgarstjóri Minneapolis, hefur sett á útgöngubann í borginni sem tekur gildi klukkan 20 í kvöld að staðartíma.

Lögregluþjónninn ákærður vegna dauða Floyd
Lögregluþjónninn Derek Chauvin hefur verið handtekinn vegna dauða George Floyd. Floyd lést eftir að Chauvin hélt honum niðri með því að halda hné sínu á hálsi hans.

Fréttamaður CNN handtekinn í beinni útsendingu
Lögregluþjónar handtóku Omar Jimenez, fréttamann CNN, í Minneapolis í morgun þar sem hann var að fjalla um mótmælin og óeirðirnar sem eiga sér þar stað.

„Þegar ránin byrja, þá hefst skothríðin“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótar því að skipa þjóðvarðliði að skjóta á mótmælendur í Minneapolis.

„Þeir myrtu bróður minn“
Systir George Floyd, svarts karlmanns sem lést í höndum lögreglu í Minneapolis á mánudagskvöld, kallar eftir því að lögreglumennirnir sem eiga aðild að dauða bróður síns verðu ákærðir fyrir morð.

Óeirðir og uppsagnir eftir að svartur maður lést í höndum lögreglu
Fjórum lögreglumönnum var sagt upp störfum í Minnesota eftir að svartur karlmaður lést í höndum lögreglu á mánudagskvöld.