
Réttindi barna

Bein útsending: Farsældarþing 2023
Farsældarþing fer fram í dag þar sem fagfólki, þjónustuveitendum, stjórnvöldum, börnum og aðstandendum er ætlað að eiga víðtækt samtal um farsæld barna.

„Pabbi hans er í fangelsi og við bara tölum um það“
„Við tölum mjög opið um þetta enda ætla ég ekki að láta barnið mitt upplifa þetta sem skömm á nokkurn hátt. Pabbi er bara í fangelsi og svona er það og það er bara allt í lagi, ekkert leyndarmál eða feluleikur,“ segir María Dís Knudsen.

Útskrifaðist úr grunnskóla í vor en byrjar ekki í menntaskóla í dag eins og önnur börn
Kristján Jakov Lazarev útskrifaðist úr Klettaskóla í vor en byrjar ekki í menntaskóla í dag eins og önnur börn. Móðir hans segir að honum hafi verið synjað um pláss í skólunum tveimur sem hentuðu honum en hann er einhverfur, mállaus og með þroskahömlun. Hún segist hafa verið send á milli fólks í kerfinu og fái engin almennileg svör.

Bein útsending: Ný framkvæmdaáætlun um barnavernd
Ný framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 til 2027 verður kynnt í morgunsárið. Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi af því tilefni í beinu streymi.

Allt að þrettán ára neyti vímuefna
Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir mikla aukningu hafa verið á tilkynningum í júlí. Þær eigi sameiginlegt vímuefnaneyslu og hegðunarvanda ungmenna. Hún segir þeim fjölga sem leiti til þeirra vegna yngri barna.

Börn úr öðrum leikskólum fá að vera með
Öllum börnum sem hefja nám í þremur grunnskólum í Reykjavík í ágúst gefst kostur á að taka þátt í tilraunaverkefni borgarinnar. Ekki aðeins þeim sem eru að ljúka leikskóla í viðkomandi hverfum grunnskólanna sex.

Barningur foreldra geti leitt til þunglyndis og örorku
Formaður Einhverfusamtakanna segir börn þurfa að bíða í allt að fjögur ár eftir einhverfugreiningu og stjórnvöld hafi lengi vitað af vandanum. Það skipti miklu máli fyrir börn að fá nauðsynlega þjónustu sem fyrst og barningur foreldra endi sjaldan við greiningu. Langvarandi barátta þeirra við kerfið geti jafnvel leitt til þunglyndis og örorku.

„Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að hafa þennan kvíðahnút í maganum“
„Ef mér hefði verið sagt hér áður fyrr hvað það væri mikið álag að eiga einhverft barn og hversu mikil barátta það væri við kerfið hefði ég aldrei nokkurn tímann trúað því,“ segir Sólveig Hulda Benjamínsdóttir.

Segja Reykjavíkurborg mismuna dóttur þeirra með synjun
Hjón segja Reykjavíkurborg mismuna dóttur sinni með því að synja henni um þátttöku í verkefni sem snýst um aðlögun að grunnskóla. Stúlkan fær ekki að taka þátt af því hún var ekki í leikskóla í hverfinu þegar hún þarf í raun sérstaklega á verkefninu að halda vegna þess.

Lögreglan mætti til að bera konuna út en hætti svo við
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var mætt við búsetuúrræði flóttafólks síðdegis í dag til að bera út afganska konu og tólf ára gamlan son hennar, en hætti svo við.

Andvaka og í uppnámi en fær engin svör frá Útlendingastofnun
Afgönsk kona með ungt barn bíður þess nú að vera hent út úr búsetuúrræði sínu eftir að hún dró til baka umsókn sína um alþjóðlega vernd. Ítalía neitar að taka aftur við konunni vegna neyðarástands. Konan er því réttindalaus og enginn vill á henni taka ábyrgð.

Mikilvægt að færa fókus á gerendur ofbeldis
Stöðug ásókn er í þjónustu Stígamóta. Talskona segir áríðandi að ná sem fyrst til bæði þolenda og gerenda. Samtökin skipuleggja ráðstefnu í haust þar sem ítarlega verður fjallað um gerendur kynbundins og kynferðislegs ofbeldis.

Þrjátíu fylgdarlaus börn í úrræðum ýmissa sveitarfélaga
Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) auglýsti nýverið eftir vistforeldrum fyrir fylgdarlaus börn á flótta. Frá upphafi síðasta árs hafa borist 105 beiðnir um hagsmunagæslu fylgdarlausra barna, oftast drengja.

Dregist úr hófi að tryggja nemendum pláss á starfsbrautum
Mikil fjölgun hefur orðið á umsóknum á starfsbrautir framhaldsskóla. Í ár hafi vinna við að tryggja þeim nemendum pláss dregist úr hófi en unnið sé að því að allir fái skólavist við hæfi. Endurskoðun á starfsbrautum framhaldsskóla stendur yfir í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Samþætta eigi alla þjónustu við börn í Skálatúni
Stefnt er að uppbyggingu á samþættri þjónustu við börn í Skálatúni í Mosfellsbæ. Markmiðið er að þar verði á einum stað helstu stofnanir og samtök sem koma að þjónustu við börn og ungmenni auk úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda.

Skólastjóri segir börnum með fötlun mismunað
Skólastjóri segir dapurt að verkfallsundanþágur hafi ekki verið veittar vegna barna með fötlun, sem nú þurfi að sitja heima meðan bekkjarfélagar þeirra komist í skólann. Verkföll hjá félagsfólki BSRB sem starfar í leik-og grunnskólum hófust á miðnætti.

Ábyrgðin er ekki foreldra
Guðrún Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, skrifaði grein á Vísi á dögunum um kynferðisbrot og annars konar ofbeldi gegn börnum í sumarbúðum, sumarnámskeiðum og öðru tómstundastarfi.

Lýðræði barna og ungmenna er í hættu
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur á Íslandi þann 20. febrúar 2013. Í honum er skýrt tekið fram að bera þarf virðingu fyrir skoðunum barna (12.gr) og að börn eiga rétt á því að deila hugmyndum sínum (13.gr). Þessar greinar vernda lýðræði, málfrelsi og tillögurétt barna og ungmenna.

Fræðsla gegn fordómum
Börn eru jafn ólík og þau eru mörg og við eigum að fagna fjölbreytileikanum. Börn eiga að fá að vera eins og þau eru og það er skylda fullorðinna og stjórnvalda að vernda þau og leyfa þeim að vera börn.

Stjórnvöld gefast upp á farsæld barna
Stjórnvöld hafa gefist upp á farsæld barna. Þau leggja fram einhver frumvörp, setja göfug markmið, senda út fallegar yfirlýsingar til fjölmiðla, halda ráðstefnur og hrósa sjalfum sér daglega. En hvað skilja þau eftir?

Líta verði á börn sem fjárfestingu en ekki kostnað
Nauðsynlegt er að líta á börn sem fjárfestingu til framtíðar en ekki sem kostnað, þetta segir barnamálaráðherra. Ráðstefna um málefni barna fer nú fram í samvinnu Evrópuráðsins og mennta- og barnamálaráðuneytisins.

1157 börn á biðlista fyrir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð
Þeim börnum sem bíða eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur fjölgað töluvert frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021. Þá biðu 738 börn en þau voru 830 í september 2022. Í febrúar 2023 voru þetta 1157 börn sem öll höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Það eru því 419 fleiri börn sem bíða nú eftir greiningu borið saman við desember 2021.

Víst eru börnin leiðarljósið
Í síðustu viku varð frumvarp dómsmálaráðherra um útlendinga að lögum. Frumvarpið hefur hlotið mikla umfjöllun bæði á þingi og í samfélaginu. Um frumvarpið hafa ýmsar rangfærslur komið fram en fyrst og fremst hefur frumvarpið sætt töluverðum misskilningi, þ.e. um hvað þessum breytingum er ætlað að gera og hvað þær fela í sér.

10 ár frá lögfestingu Barnasáttmálans
13. mars 2023 eru liðin 10 ár frá því að Barnasáttmálinn varð að lögum á Íslandi. Til hamingju kæru börn og við öll, með 10 ára afmæli lögfestingarinnar!

Velferðarsamfélag í fremsta flokki eigi að vera komið lengra
Um tíu þúsund börn búa við fátækt á Íslandi og fjölgar þeim milli ára. Leiðtogi hjá Barnaheillum segir fólk festast í fátæktargildru, sem erfitt reynist að komast út úr og erfist jafnvel milli kynslóða. Mismunun eigi sér stað til að mynda þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu, sem hingað til hefur ekki verið til staðar, og uppræta fátækt í eitt skipti fyrir öll.

Þrettán prósent íslenskra barna búa við fátækt
Um tíu þúsund börn eða 13,1 prósent barna búa við fátækt á Íslandi samanborið við 12,7 prósent árið á undan. Hvorki stefna né áætlun er til á Íslandi um að uppræta fátækt.

Réttur barna og heimagreiðslur
Kæru vinkonur og vinir í sveitarstjórnum landsins. Nú bið ég ykkur í einlægni að standa þétt með börnum og barnafjölskyldum og láta ekki íhaldssama flokkapólitík rugla ykkur í ríminu. Heimagreiðslur eru hárétt skref núna - það er réttur barna að fjölskyldur eigi valkosti um uppeldisaðstæður þeirra eftir að fæðingarorlofi lýkur.

Skora á íslensk stjórnvöld að banna strax einangrun á börnum
Íslensk stjórnvöld fremja mannréttindabrot með óhóflegri beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi, samkvæmt svartri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri samtakanna á Íslandi segir ítrekuð einangrunarvist barna sérstaklega sláandi og skorar á stjórnvöld að banna hana tafarlaust.

Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sama um réttindi barna?
Börn eru viðkvæmur þjóðfélagshópur. Þau reiða sig á vernd og umhyggju af hálfu okkar sem teljumst fullorðið fólk og samfélaginu öllu ber að standa vörð um réttindi og velferð þeirra. Okkur ber enn fremur að tryggja að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir sem varða börn.

Fordæmir Balenciaga eftir að óhugnanlegar myndir fóru í birtingu
Athafnakonan Kim Kardashian segir nýja auglýsingaherferð Balenciaga sláandi og ógeðslega. Hún fordæmdi merkið á Twitter í kjölfarið á harðri gagnrýni á nýja auglýsingaherferð tískuhússins.