Box
27 28 29 30 31 32 33 34 … 34 ›
Afþakkaði fund með Naomi Campbell Breska hnefaleikaundrið Amir Khan vakti athygli í heimalandi sínu á dögunum þegar hann afþakkaði tækifæri til að hitta ofurfyrirsætuna Naomi Campbell. Khan er nú að undirbúa sig fyrir erfiðasta bardaga sinn á ferlinum til þessa og afþakkaði því að sitja fyrir á síðum Vogue til að einbeita sér að þjálfuninni. Sport 14.9.2007 10:16
Klitschko frestar endurkomunni Fyrrum WBC meistarinn Vitali Klitschko hefur neyðst til að fresta endurkomu sinni inn í hnefaleikahringinn vegna meiðsla. Hinn 36 ára gamli Úkraínumaður hafði ætlað að berjast við Bandaríkjamanninn Jameel McCline þann 22. þessa mánaðar í Munchen, en bakmeiðsli gera það að verkum að ekkert verður úr bardaganum. Vitali er eldri bróðir IBF meistarans Vladimir Klitschko. Sport 10.9.2007 13:51
Klitschko náði fram hefndum Úkraínumaðurinn Wladimir Klitschko náði í gærkvöld fram hefndum gegn Bandaríkjamanninum Lamon Brewster þegar þeir áttust við öðru sinni á þremur árum. Klitschko varði þarna IBF titil sinn í þungavigt og hefndi fyrir óvænt tap fyrir Bandaríkjamanninum árið 2004. Dómarinn stöðvaði bardagann í upphafi sjöundu lotu eftir að frábær flétta frá Klitschko vankaði Brewster. Sport 8.7.2007 12:22
Mayweather boðnar 630 milljónir fyrir að mæta Hatton Umboðsmaður breska hnefaleikarans Ricky Hatton hefur boðist til að greiða Floyd Mayweather 630 milljónir króna fyrir að taka hanskana fram á ný og berjast við Hatton. Mayweather hefur látið í það skína að hann sé tilbúinn að berjast við Hatton, en það verður þá ekki ókeypis frekar en annað þegar stærstu nöfnin í hnefaleikunum eru annars vegar. Sport 28.6.2007 16:54
Hatton rotaði Castillo í fjórðu lotu Englendingurinn Ricky Hatton olli 10,000 stuðningsmönnum sínum ekki vonbrigðum í nótt þegar hann sigraði Jose Luis Castillo með yfirburðum í Las Vegas í nótt. Fyrirfram var búist við jöfnum bardaga en hann var eign Hatton frá upphafi til enda. Hatton var ákaft fagnað af fjölda Englendinga sem fylgdu honum yfir hafið og þar á meðal voru kappar eins og Wayne Rooney, Robbie Williams og Vinnie Jones. Sport 24.6.2007 11:53
10.000 stuðningsmenn fylgja Hatton til Las Vegas Ricky Hatton mun fá góðan stuðning í nótt þegar hann mætir Jose Luis Castillo í einum af bardögum ársins í hnefaleikaheiminum. Búist er við að um 10 þúsund manns muni fylgja Englendingnum yfir Atlantshafið og þar á meðal verður knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney. Bardaginn í Las Vegas verður sýndur beint á Sýn í nótt. Sport 23.6.2007 14:22
Hatton vill bara stóra andstæðinga framvegis Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton segist aðeins vilja berjast við "stóra" andstæðinga framvegis á ferli sínum, en hann mætir einum slíkum í Jose Luis Castillo í Las Vegas aðfararnótt sunnudagsins. Bardaginn verður sýndur beint á Sýn. Sport 20.6.2007 13:20
Toney í bann vegna steraneyslu Þrefaldi heimsmeistarinn James Toney hefur verið dæmdur í eins árs keppnisbann frá hnefaleikum eftir að hafa í annað skipti á ferlinum fallið á lyfjaprófi vegna steraneyslu. Toney féll á lyfjaprófinu í maí eftir að hann sigraði Danny Bathelder í bardaga, en sá féll reyndar einnig á lyfjaprófi sem tekið var fyrir bardagann. Toney er 38 ára gamall og hefur verið atvinnumaður í nær tvo áratugi. Sport 14.6.2007 02:18
Castillo: Hatton hefur aldrei mætt manni eins og mér Jose Luis Castillo gefur lítið fyrir flekklausan árangur andstæðings síns Ricky Hatton fyrir bardaga þeirra í Las Vegas þann 23. júní næstkomandi. Hatton hefur unnið alla 42 bardaga sína á ferlinum en Castillo vill meina að margir þeirra hafi komið gegn lélegum andstæðingum. Sport 11.6.2007 16:57
Cotto rotaði Judah í elleftu lotu Miguel Cotto varði í nótt WBA titil sinn í millivigt hnefaleika þegar hann rotaði andstæðing sinn Zab Judah í 11. lotu bardaga þeirra í Madison Square Garden í New York. Judah náði sér aldrei á strik eftir að hafa fengið skurð snemma í bardaganum. Cotto náði honum niður á hné í níundu lotu og kláraði dæmið með góðum vinstri krók í þeirri elleftu. Bardaginn var stöðvaður skömmu síðar. Sport 10.6.2007 15:25
Zab Judah mætir í hringinn á ný í kvöld Villingurinn Zab Judah stígur í kvöld inn í hnefaleikahringinn í fyrsta skipti í meira en ár eftir keppnisbann þegar hann tekur á móti Miguel Cotto í bardaga um WBA beltið í veltivigt. Bardaginn verður sýndur beint á Sýn. Judah stormaði inn á sjónvarsviðið um aldamótin og var ósigrandi, en skapsmunir hans og óútreiknanleg hegðun hans hafa gert honum erfitt fyrir allar götur síðan. Sport 9.6.2007 15:30
De la Hoya - Mayweather rakaði inn 7,6 milljarða Bardagi þeirra Oscar de la Hoya og Floyd Mayweather á dögunum stóð undir væntingum þegar litið er á fjármálahliðina en nú hefur verið staðfest að bardaginn rakaði 7,6 milljörðum króna í kassann og er því dýrasti bardagi allra tíma. Sport 10.5.2007 16:26
Diego Corrales lést í bifhjólaslysi Bandaríski hnefaleikakappinn Diego Corrales lét lífið í bifhjólaslysi í Las Vegas í gærkvöldi. Hann var 29 ára gamall og varð á ferlinum heimsmeistari í tveimur þyngdarflokkum hnefaleika. Dauðsfall hans kemur tveimur árum eftir frægasta bardaga hans þegar hann sigraði Luis Castillo þrátt fyrir að hafa tvisvar verið laminn í gólfið. Sport 8.5.2007 15:14
Mayweather vann nauman sigur á De la Hoya Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í nótt þegar hann sigraði Oscar de la Hoya naumlega á stigum í bardaga þeirra um WBC titilinn í léttmillivigt. Ekkert varð þó úr barsmíðunum sem Mayweather var búinn að lofa, því De la Hoya barðist hetjulega og veitti andstæðingi sínum góða keppni. Sport 6.5.2007 05:11
Mayweather - De la Hoya í beinni í nótt Bardagi ársins í hnefaleikaheiminum verður í Las Vegas í nótt þar sem hinn ósigraði og yfirlýsingaglaði Floyd Mayweather tekur á móti gulldrengnum Oscar de la Hoya. Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir bardagann beint og hefst útsending klukkan eitt í nótt. Sport 5.5.2007 17:50
Dýrasti boxbardagi sögunnar á laugardaginn Hnefaleikaheimurinn bíður nú spenntur eftir bardaga ársins á laugardaginn þegar Oscar de la Hoya tekur á móti hinum ósigraða Floyd Mayweather í Las Vegas. Þetta verður dýrasti boxbardagi sögunnar og þegar er búið að selja aðgöngumiða fyrir 1,2 milljarða króna á MGM Grand. Miðar á bardagann ganga nú kaupum og sölum fyrir allt að 1,3 milljónir króna. Sport 2.5.2007 17:10
Davíð lagði Golíat - Valuev tapaði Rússneska tröllið Nikolai Valuev tapaði fyrsta bardaga sínum á ferlinum í nótt þegar hann tapaði fyrir Ruslan Chagaev frá Úsbekistan á stigum í bardaga þeirra um WBA beltið í þungavigt. Valuev var ósigraður í 46 bardögum. Hinn hugaði andstæðingur hans lét sig ekki muna um að vera feti lægri og 40 kílóum léttari og vann verðskuldaðan sigur. Sport 15.4.2007 01:23
Ófreskjan mætir Hvíta-Tyson á Sýn í kvöld Það verður sannkallaður þungavigtarbardagi á dagskrá Sýnar í kvöld þegar rússneska tröllið Nikolai Valuev tekur á móti Ruslan Chagaev frá Úsbekistan í Stuttgart í Þýskalandi. Valuev er handhafi WBA beltisins og hefur ekki tapað í 46 bardögum. Bein útsending Sýnar hefst klukkan 21:55. Chagaev hefur notað óhefðbundnar aðferðir við æfingar til að búa sig undir að mæta tröllinu. Sport 14.4.2007 18:55
Þetta var mexíkóskur bardagi Juan Manuel Marquez vann í nótt sigur á fyrrum heimsmeistaranum Marco Antonio Barrera í einvígi þessara mögnuðu mexíkósku hnefaleikara í Las Vegas. Marquez er því handhafi WBC titilsins í fjaðurvigt, en var sigur hans á stigum nokkuð umdeildur þar sem nokkur vafaatriði settu svip sinn á bardagann. Sport 18.3.2007 18:36
Klitschko fór létt með Austin Úkraínski hnefaleikakappinn Vladimir Klitschko varði IBF-heimsmeistaratitil sinn í þungavigt í nótt með því að sigra Bandaríkjamanninn Ray Austin í bardaga þeirra í Þýskalandi. Austin reyndist Klitschko auðveld bráð og var bardaginn stöðvaður strax í annari lotu. Sport 11.3.2007 10:24
Það eru örlög mín að verða óumdeildur meistari Gamla brýnið Evander Holyfield segir það vera örlög sín að verða óumdeildur heimsmeistari í þungavigt hnefaleika áður en hann leggur hanskana endanlega á hilluna. Holyfield er 44 ára gamall og tók hanskana af hillunni á síðasta ári. Þá vann hann tvo bardaga og sá þriðji er á dagskránni í Texas þann 17. mars. Sport 28.2.2007 16:23
Lewis mun ekki stíga aftur í hringinn Lennox Lewis, fyrrum heimsmeistari í hnefaleikum, hefur útilokað endurkomu í hringinn á þessu ári, en sögusagnir þess efnis fóru eins og eldur um sinu í hnefaleikaheiminum í gær. Þungavigtarkappinn fyrrverandi, sem er orðinn 41 árs að aldri, segist aldrei hafa gengið á bak orða sinna – og því ætli hann ekki að byrja á nú. Sport 26.2.2007 12:58
Lennox Lewis hyggur á endurkomu í hringinn Hnefaleikakappinn Lennox Lewis, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, er sagður vera að hugsa um að snúa aftur í hringinn á þessu ári, 41 árs að aldri. Aðilar innan hnefaleikahreyfingarinnar í Bandaríkjunum segja Lennox vera byrjaðan að æfa af fullum krafti fyrir bardaga sem fara skal fram síðar á þessu ári – gegn Vitali Klitschko frá Úkraínu. Sport 24.2.2007 12:58
Castillo næsti andstæðingur Hattons Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton fær erfiðan andstæðing næst þegar hann stígur inn í hringinn, en í dag var staðfest að hann mæti fyrrum heimsmeistaranum Jose Luis Castillo í Las Vegas þann 23. júní í sumar. Bardaginn verður í Thomas and Mack Center, höllinni sem hýsti stjörnuleikinn í NBA í nótt og tekur 17.000 manns í sæti. Sport 19.2.2007 18:32
Rotaði andstæðinginn á 55 sekúndum Breski hnefaleikarinn Amir Khan heldur áfram að klífa metorðastigann í boxinu en í gærkvöld rotaði hann Mohammed Medjadi á aðeins 55 sekúndum í viðureign þeirra á Wembley. Þetta var ellefti sigur hins tvítuga Khan í ellefu bardögum og er mál manna að styttist í að þetta mikla efni fari nú að berjast um alvöru titla. Sport 18.2.2007 15:08
Collazo átti ekki möguleika í Mosley Bandaríkjmaðurinn Shane Mosley tryggði vann öruggan sigur á landa sínum Luis Collazo þegar kapparnir mættust í hringnum í Las Vegas í nótt. Hinn 35 ára gamli Moseley sem er þrefaldur heimsmeistari var mun sneggri og höggfastari þó hann sé 10 árum eldri en Collazo. Sport 11.2.2007 18:49
Mayweather: Hatton er fitubolla Bandaríski hnefaleikarinn Floyd Mayweather hefur ekki í hyggju að mæta Bretanum Ricky Hatton í hringnum áður en hann leggur hanskana á hilluna og segir Hatton ekkert annað en pappakassa með bjórvömb sem sé nógu góður til að pússa skóna sína og slá hjá sér grasið. Sport 5.2.2007 17:24
Klitschko snýr aftur Úkraínski hnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að taka hanskana fram að nýju og stefnir á að mæta Rússanum Oleg Maskaev þann 21. apríl nk. Klitschko lagði hanskana á hilluna árið 2005 en segist vilja snúa aftur til að uppfylla æskudraum sinn. Sport 24.1.2007 23:03
Tyson lýsir yfir sakleysi sínu Hnefaleikarinn Mike Tyson lýsti yfir sakleysi sínu í gær þegar hann kom fyrir dómara í Arizona í Bandaríkjunum, en hann er ákærður fyrir fíkniefnavörslu og að hafa ekið undir áhrifum þann 29. desember sl. Sport 23.1.2007 13:54
Glæsilegur sigur Ricky Hatton Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton stimplaði sig endanlega inn í hjörtu Bandaríkjamanna í nótt þegar hann vann sannfærandi sigur á Kólumbíumanninum Juan Urango á stigum og endurheimti IBF beltið í léttveltivigt. Talið er víst að Hatton muni næst mæta Jose Luis Castillo sem vann sinn bardaga í Las Vegas í nótt. Sport 21.1.2007 15:24