Erlend sakamál
1 2 3 4 5 6 7 … 24 ›
Skaut sig áður en bíllinn sprakk Reynslumikill og margheiðraður sérsveitarmaður sem sprengdi sig í loft upp inn í Cybertruck frá Tesla fyrir utan Trump-hótelið í Las Vegas á nýársdag svipti sig lífi áður en bíllinn sprakk. Rannsakendur telja að maðurinn hafi ætlað sér að valda meiri skaða en sprengjan sem hann smíðaði er sögð hafa verið léleg og stálið sem bíllinn er gerður úr er sagt hafa dregið verulega úr áhrifum sprengingarinnar. Erlent 2.1.2025 20:40
Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Kona sem hvarf fyrir 52 árum fannst á lífi eftir að lögregla í Englandi birti gamla og óskýra ljósmynd af henni á dögunum. Fékkst þar með botn í eitt elsta opna mannhvarfsmál Bretlands. Erlent 2.1.2025 12:40
Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Lögreglan í Las Vegas rannsakar nú hvort að sprenging sem varð ökumanni Tesla-bifreiðar að bana fyrir utan hótel í eigu Donalds Trump í gær hafi verið hryðjuverk og tengist mannskæðri árás í New Orleans. Kennsl hafa enn ekki verið borin á ökumanninn. Erlent 2.1.2025 08:26
Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Karlmaður á fimmtugsaldri sem skaut tólf manns til bana í smábæ í Svartfjallalandi á nýársdag svipti sig lífi eftir að lögreglumenn króuðu hann af. Forsætisráðherra landsins segir til greina koma að banna skotvopn í landinu í kjölfar fjöldamorðsins. Erlent 2.1.2025 07:33
Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Að minnsta kosti fimmtán af þeim 51 manni sem dæmdur var fyrir að nauðga eða kynferðislega misnota Gisele Pelicot hafa áfrýjað dómum sínum. Dominique Pelicot, fyrrverandi eiginmaður hennar, er meðal þeirra. Erlent 28.12.2024 22:54
Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi Tveir eru látnir eftir skotbardaga í sveitarfélaginu Klepp í Noregi. Annar þeirra var almennur borgari og hinn lögreglufulltrúi. Erlent 28.12.2024 10:00
Lýsti yfir sakleysi sínu Luigi Mangione, maðurinn sem er grunaður um að hafa ráðið Brian Thompson forstjóra UnitedHealthcare bana þann fjórða desember, lýsti sig í dag saklausan í málinu fyrir dómstól í New York. Erlent 23.12.2024 21:33
Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Sjö ára stúlka lét lífið og fimm aðrir nemendur og kennari særðust þegar ungur maður vopnaður hnífi réðst á þau í skóla í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í morgun. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn en hann er sagður hafa gengið inn í skólann og byrjað að stinga börn inn í fyrstu skólastofunni sem hann sá. Erlent 20.12.2024 13:41
Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Geðlæknirinn Laurent Layet segir að í þeim hundruðum viðtala sem hann hefur tekið við nauðgara og grunaða nauðgara fyrir lögregluna í Frakklandi hafi hann aldrei hitt neinn eins og Dominique Pelicot. Hann segir hug hans hafa verið klofinn í tvennt og eins og Pelicot hafi geymt glæpi sína á einskonar minnislykli í huga sínum. Hann sé ekki skrímsli heldur þjáist hann af andfélagslegri persónuleikaröskun. Erlent 20.12.2024 10:38
Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Karlmaður á fertugsaldri er í varðhaldi í Michigan-ríki Bandaríkjanna grunaður um að stinga forseta fyrirtækisins sem hann vann hjá. Lögreglan vestanhafs telur mögulegt að maðurinn hafi verið að herma eftir skotárás sem beindist að forstjóra hjá UnitedHealthcare í New York fyrr í desember og hefur vakið gríðarlegt umtal. Erlent 20.12.2024 07:49
Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Luigi Mangione, sem er grunaður um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, bana hefur verið ákærður af alríkissaksóknurum í New York fyrir manndráp. Erlent 19.12.2024 21:08
Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þriggja dómara áfrýjunarnefnd í Georgíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að héraðssaksóknarinn Fani Willis sé óhæf til að sækja mál gegn Donald Trump, þar sem hann og aðrir hafa verið ákærðir fyrir að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Erlent 19.12.2024 16:28
Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Að minnsta kosti 35 börn eru látin eftir að hafa troðist undir á jólahátíð í Ibadan í Nígeríu í gær. Forsvarsmenn hátíðarinnar höfðu lofað peningaverðlaunum og mat fyrir gesti en íbúar segja rúmlega fimm þúsund börn hafa mætt, auk foreldra og annarra. Erlent 19.12.2024 16:00
Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Dominique Pelicot hefur verið sakfelldur í öllum ákæruliðum fyrir að nauðga eiginkonu sinni í mörg ár og byrla henni ólyfjan svo aðrir menn gætu nauðgað henni. Enginn af hinum mönnunum fimmtíu var sýknaður að fullu. Í einu tilfelli var einn sýknaður af ákæru um nauðgun en sakfelldur fyrir annarskonar kynferðisbrot. Erlent 19.12.2024 08:55
Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Dómarar í frönsku borginni Avignon munu dæma Pelicot málinu svokallaða síðar í dag en þar eru fimmtíu og einn karl ákærðir fyrir að nauðga Gisèle Pelicot reglulega í um áratug. Erlent 19.12.2024 06:38
Mangione ákærður fyrir morðið á forstjóranum Luigi Mangione, sem er grunaður um að hafa ráðið forstjóra UnitedHealthcare, bana hefur verið ákærður fyrir manndráp af héraðssaksóknara í New York-borg. Erlent 17.12.2024 21:37
Ákærður fyrir sjöunda morðið Rex Heuermann, sem grunaður er um að hafa framið Gilgo Beach morðin svokölluðu, hefur verið ákærður fyrir sjöunda morðið. Saksóknarar segja Heuermann vera raðmorðingja og er nú sakaður um morðið á vændiskonunni Valerie Mack, sem hvarf fyrir rúmum tveimur áratugum. Erlent 17.12.2024 16:03
Sakfelling Trumps stendur Sakfelling Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, í þöggunarmálinu svokallaða í New York verður ekki felld niður. Lögmenn Trumps höfðu farið fram á það á grunni úrskurðar Hæstaréttar Bandaríkjanna um að forseti Bandaríkjanna nyti friðhelgi vegna opinberra starfa. Erlent 17.12.2024 09:53
Sérfræðingi í rannsókn Letby hafi snúist hugur Lögmenn Lucy Letby, sem dæmd hefur verið fyrir að bana sjö ungbörnum á tveggja ára tímabili, segja sérfræðingnum sem var yfir rannsókn á máli hennar hafa snúist hugur. Hann muni biðja um að mál hennar verði tekið upp á ný. Erlent 16.12.2024 20:25
Réttarhöldunum lokið: Bað eiginkonu sína og börn afsökunar Réttarhöldunum gegn Dominique Pelicot og fimmtíu mönnum sem hann fékk til að nauðga fyrrverandi eiginkonu sinni er formlega lokið. Á síðasta degi réttarhaldanna bað Dominique fyrrverandi eiginkonu sína, Gisele Pelicot, og börn þeirra afsökunar og lofaði hann Gisele fyrir hugrekki hennar. Erlent 16.12.2024 11:31
Uppljóstrari játar lygar um Joe og Hunter Biden Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) mun í dag játa fyrir dómi að hafa logið um Joe og Hunter Biden. Ásakanir lygna uppljóstrarans Alexanders Smirnov voru einn af burðarstólpum rannsóknar Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Bidens. Erlent 16.12.2024 09:46
Tvö ákærð vegna grimmilegs morðs tveggja ára barns Karlmaður á sextugsaldri og kona á þrítugsaldri hafa verið ákærð fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til andláts á Suður-Jótlandi vegna andláts tveggja ára barns. Erlent 15.12.2024 10:11
Móðir banamannsins staðfesti líkindin Móðir Luigi Mangione, mannsins sem grunaður er að hafa ráðið forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna bana, sagði lögreglu frá því að sonur hennar gæti verið sá sem leitað var að. Erlent 14.12.2024 13:20
Réttað yfir unglingi vegna „níðingsveiða“ Réttarhöld yfir sautján ára gömlum pilti sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps hófust í Finnlandi í dag. Hann er sakaður um að hafa mælt sér mót við mann sem sóttist eftir að komst í kynni við pilta undir lögaldri gagngert til þess að drepa hann. Athæfið hefur verið kallað „níðingsveiðar“ á samfélagsmiðlum. Erlent 13.12.2024 15:42
Skrifaði um að drepa „baunateljara“ Lögregluþjónar sem handtóku Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, fundu í fórum hans stílabók. Þar hafði hann meðal annars skrifað um morðið, réttlætingu á því og hvernig hægt væri að framkvæma það. Erlent 11.12.2024 14:23
Áratugi í fangelsi fyrir að ráðast á dómara Bandarískur maður sem vakti athygli á heimsvísu fyrr á árinu með því að ráðast á dómara sem neitaði að veita honum skilorðsbundinn dóm hefur verið dæmdur til áratuga langrar fangelsisvistar. Deobra Redden mun þurfa að sitja í fangelsi í að minnsta kosti 26 ár fyrir árásina á dómarann Mary Kay Holthus. Erlent 11.12.2024 11:56
Þingmaður myrtur í Mexíkó Mexíkóskur þingmaður var skotinn til bana í launmorði í Veracruz-ríki á mánudagskvöldið. Benito Aguas, sat á þingi fyrir Græna flokkinn en sá flokkur er aðili að stjórnarsamstarfi sem elitt er af Morena-flokki Claudiu Sheinbaum, forseta, og var hann skotinn ítrekað af morðingja eða morðingjum sínum. Erlent 11.12.2024 11:02
Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Luigi Mangione, sem er grunaður um að skjóta mann til bana á götum New York-borgar í síðustu viku, öskraði að fjölmiðlafólki þegar hann var leiddur fyrir dómara í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna í dag. Erlent 10.12.2024 22:10
„Síðasta manneskjan sem mann myndi nokkurn tímann gruna“ Luigi Mangione, sem er grunaður um að skjóta mann til bana á götum New York-borgar í síðustu viku, leit á morðið sem táknræna athöfn til að ógna og ögra meintri spillingu og valdatafli. Þetta kemur fram í lögregluskýrslu sem New York Times hefur undir höndum. Erlent 10.12.2024 19:31
Ákærður fyrir morð í New York Hinn tuttugu og sex ára gamli Luigi Mangione, sem var handtekinn í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær hefur nú verið formlega ákærður fyrir morð í New York á dögunum. Hann er grunaður um að hafa myrt Brian Thompson, forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, á götu úti í New York. Erlent 10.12.2024 09:15