Erlend sakamál
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 22 ›
Ók stórum flutningabíl viljandi á opinbera byggingu Einn er látinn og þrettán slasaðir eftir að ökumaður stórs flutningabíls ók honum viljandi inn í opinbera byggingu í Texas í Bandaríkjunum í dag. Manninum hafði verið synjað um endurnýjun á ökuréttindum. Erlent 12.4.2024 23:14
Trump lætur reyna á þagnarskylduna Innan við tveimur vikum eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, var meinað af dómara að tjá sig með niðrandi og æsandi hætti um dóttur dómarans, vitni, kviðdómendur og aðra sem að réttarhöldunum gegn honum í New York koma, hefur Trump gagnrýnt tvo líkleg og mikilvæg vitni á samfélagsmiðlum. Erlent 12.4.2024 14:11
Stakk bekkjarsystur fyrir Slender Man og losnar ekki af geðdeild Ung kona sem stakk bekkjarsystur sína nítján sinnum í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 2014, til að ganga í augun á skáldaðri internet-persónu sem kallast Slender Man, má ekki ganga laus. Dómari segir að hún verði áfram vistuð á geðsjúkrahúsi, þar sem hún hefur verið um árabil, þrátt fyrir að geðlæknar hafi sagt hana geta snúið aftur út í samfélagið, með ákveðnum skilyrðum. Erlent 12.4.2024 10:31
Réttarhöldin sem skóku Bandaríkin Greint var frá andláti sakbornings eins eftirminnilegasta dómsmáls bandarískrar réttarsögu í gær. Orenthal James Simpson, betur þekktur sem OJ Simpson, lést 76 ára gamall í faðmi fjölskyldu sinnar. Banamein OJ var krabbamein sem hann hafði glímt við í nokkur ár. Erlent 12.4.2024 08:01
Dæmd til dauða í stærsta fjársvikamáli Víetnam Víetnamskur auðjöfur hefur verið dæmdur til dauða fyrir hlut hennar í umfangsmesta fjársvikamáli landsins. Truong My Lan hefur verið fundin sek um fjárdrátt, fjár- og bankasvik og mútugreiðslur. Erlent 11.4.2024 10:16
Mál kvenna vegna líkamsleitar í kjölfar barnsfundar fellt niður Alríkisdómstóll í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður mál fimm kvenna gegn Qatar Airways, vegna líkamsleitar sem þær voru látnar sæta. Erlent 11.4.2024 08:43
Í steininn fyrir að stela dagbók dóttur Bandaríkjaforseta Dómari í New York-ríki Bandaríkjanna hefur dæmt konu, Aimee Harris, í mánaðar fangelsi fyrir að stela dagbók og öðrum persónulegum munum í eigu Ashley Biden, dóttur Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erlent 10.4.2024 22:32
Fyrrverandi fjármálastjóri Trump dæmdur í fangelsi aftur Dómari í New York dæmdi Allen Weisselberg, fyrrverandi fjármálastjóra fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, í fimm mánaða fangelsi fyrir að bera ljúgvitni í máli gegn Trump. Þetta er í annað skiptið sem Weisselberg hlýtur fangelsisdóm á skömmum tíma. Erlent 10.4.2024 15:24
Kennari fékk piltinn til að fara úr skólastofunni eftir skotárásina Finnska lögreglan segir að kennari hafi fengið tólf ára dreng sem skaut þrjú skólasystkini sín, þar af eitt til bana, í Vantaa í síðustu viku til þess að yfirgefa skólastofuna. Pilturinn er sagður hafa notað byssu sem hann tók frá ættingja sínum í leyfisleysi. Erlent 10.4.2024 14:11
Þóttist vera annar maður í þrjá áratugi Bandarískur karlmaður að nafni William Woods hefur verið til mikillar umfjöllunar í fjölmiðlum um allan heim síðustu daga. Ástæðan er sú að annar maður hefur þóst vera Woods í marga áratugi og safnað upp gríðarlegum skuldum í nafni hans. Fyrir vikið varð Woods heimilislaus um tíma, honum var stungið í steininn og lokaður á geðsjúkrahúsi. Erlent 10.4.2024 00:06
Drápu lögreglumann sem reyndi að stöðva aftöku utan dóms og laga Æstur múgur barði lögreglumann til dauða sem reyndi að koma í veg fyrir að fólkið dræpi ræningja sem bönuðu leigubílstjóra í Mexíkó. Annar lögreglumaður er alvarlega særður. Erlent 9.4.2024 12:35
Réttarhöld í Panamaskjalamáli hafin Eigendur lögmannsstofunnar Mossack Fonseca eru á meðal 27 sakborninga sem svara til saka fyrir peningaþvætti sem tengist Panamaskjölunum alræmdu í réttarhöldum sem hófust í Panama í dag. Panamaskjölin felldu meðal annars ríkisstjórn Íslands eftir að þeim var lekið frá lögmannsstofunni. Erlent 9.4.2024 11:23
Fyrrverandi Marvel-illmenni slapp við fangelsi Bandaríski leikarinn Jonathan Majors hlaut skilorðdóm og var skipað að sækja sér ráðgjöf fyrir að ráðast á fyrrverandi kærustu sína í dag. Hann átti allt að árs fangelsisdóm yfir höfði sér. Erlent 8.4.2024 15:07
Unglingur lést eftir árás við skóla í Frakklandi Fimmtán ára gamall piltur lést á sjúkrahúsi í dag tæpum sólarhring eftir að hópur ungmenna réðst á hann og barði við skólann hans í úthverfi Parísar í gær. Vaxandi ofbeldisalda á meðal ungmenna veldur áhyggjum í Frakklandi. Erlent 5.4.2024 22:49
Líkamsleifar fundust nærri æfingasvæði Manchester United Lögreglan í Manchester á Englandi hefur sett af stað morðrannsókn eftir að líkamsleifar af manneskju, vafnar inn í plast, fundust nærri æfingasvæði úrvalsdeildarfélagsins Manchester United í gær. Erlent 5.4.2024 18:23
Bíræfnir þjófar stálu rúmum fjórum milljörðum Bíræfnir þjófar stálu allt að þrjátíu milljónum dala úr peningageymslu í Los Angeles um páskana. Ránið er eitt það stærsta í sögu borgarinnar en þjófarnir brutu sér leið inn í bygginguna á páskadag og komust þar inn í stóra peningahvelfingu, án þess að gangsetja þjófavarnarkerfi. Erlent 5.4.2024 10:52
Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að útvega hryðjuverkamanni byssu Maður hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa útvegað Cherif Chekatt skotvopn, sem hann notaði til að myrða fimm manns á jólamarkaði í Strasbourg í Frakklandi árið 2018. Erlent 5.4.2024 06:59
Íslenskur morðingi neitar að hafa brotið á barni Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, neitar sök í öðru máli þar sem hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Erlent 4.4.2024 08:01
Murdaugh dæmdur í fangelsi í þriðja sinn Alex Murdaugh var í gær enn einu sinni dæmdur í fangelsi og líklega í síðasta sinn. Hann var dæmdur til fjörutíu ára fangelsisvistar í alríkisfangelsi fyrir að hafa stolið peningum af skjólstæðingum sínum og fyrirtæki en hann hafði þegar verið dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Erlent 2.4.2024 10:51
Trump bannað að tala um dóttur dómara Juan M. Merchan, dómarinn í einu af dómsmálunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á viku gamalli skipun þar sem hann meinaði Trump að tjá sig um vitni, kviðdómendur og aðra sem tengjast réttarhöldunum. Skipunin nær nú einnig yfir Loren Merchan, dóttur dómarans, en Trump hefur farið með falskar yfirlýsingar um hana á samfélagsmiðlum. Erlent 2.4.2024 09:56
Bein tveggja ára drengs sem hvarf komin í leitirnar Bein tveggja ára drengs sem hvarf sporlaust í frönsku smáþorpi síðasta sumar hafa komið í leitirnar. Rannsókn á málinu stendur nú yfir þar sem ekki liggur fyrir hvað henti drenginn. Erlent 1.4.2024 07:35
Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Lögregluþjónar lokuðu í gær smáu þorpi í frönsku Ölpunum. Sautján manns, auk lögregluþjóna, hafa verið í þorpinu til að reyna að finan einhver svör um hvað kom fyrir hinn tveggja ára gamla Emile sem hvarf þaðan sporlaust síðasta sumar. Erlent 28.3.2024 23:24
Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Sam Bankman-Fried, oft þekktur sem „rafmyntakóngurinn“, hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa af viðskiptavinum sínum milljónir dala. Erlent 28.3.2024 16:44
Hin látnu tengd fjölskylduböndum og vopn á vettvangi Lögreglan í Noregi rannsakar dauða fjögurra manna fjölskyldu sem fannst látin í íbúð í bænum Ål í Noregi í gærkvöldi. Á blaðamannafundi kom fram að vopn hafi fundist á vettvangi. Erlent 24.3.2024 10:36
Íslenskur morðingi nú grunaður um brot gegn barni Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, er nú grunaður um kynferðisbrot gegn börnum. Erlent 21.3.2024 13:21
Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“ Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“. Erlent 15.3.2024 06:41
Trump í dómsal í Flórída Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, er í Flórída í dag þar sem lögfræðingar hans reyna að sannfæra dómara um að hann hafi ekki brotið lög þegar hann tók opinber gögn og leynileg skjöl með sér úr Hvíta húsinu. Hann vill að málið verði fellt niður. Erlent 14.3.2024 16:25
Hrottafengnar lýsingar á morðinu á þrettán ára stúlkunni Sautján ára piltur sem var handtekinn í kjölfar morðs á þrettán ára stúlku í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi, er grunaður um að hafa orðið henni að bana. Erlent 12.3.2024 15:25
Tate-bræður í gæsluvarðhaldi vegna breskrar handtökuskipunar Áhrifavaldurinn Andrew Tate og bróðir hans Tristan hafa verið handteknir í Rúmeníu á grundvelli handtökuskipunar sem gefin var út á Bretlandseyjum. Erlent 12.3.2024 08:24
Lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun og morð við Neuschwanstein-kastala Bandarískur karlmaður hefur verið sakfelldur fyrir að hafa nauðgað og myrt ferðakonu og reynt að drepa vinkonu hennar nærri Neuschwanstein-kastalanum í Þýskalandi. Maðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Erlent 11.3.2024 19:03