
Sambandsdeild Evrópu

Umfjöllun: Stjarnan - Bohemians 1-1 | Jafnt í Garðabæ í ris litlum leik
Stjarnan tók á móti írska liðinu Bohemians í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Liðin skildu jöfn 1-1 en gestirnir frá Dublin voru meira með boltann en ógnuðu lítið á meðan heimamenn náðu ekki að búa sér til mörg færi en náðu að nýta sér eitt þeirra fáu sem sköpuðust.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Sligo Rovers 1-0 | FH-ingar fara með yfirhöndina til Írlands
FH-ingar unnu virkilega sterkan 1-0 sigur gegn Sligo Rovers frá Írlandi í Sambandsdeild Evrópu. Steven Lennon tryggði sigurinn með góðum skalla þegar um fimm mínútur voru til leiksloka.

Matthías: Mikilvægast að fá fyrsta sigurinn í langan tíma
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, var sáttur með 1-0 sigur síns liðs á Sligo Rovers í Sambandsdeildinni í kvöld.

Blikar komu til baka og eru í góðri stöðu í Sambandsdeildinni
Breiðablik heimsótti Racing Union frá Lúxemborg í Sambandsdeild Evrópu í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna en Blikar snéru taflinu sér í vil undir lok leiksins og unnu sterkan 3-2 sigur.

Stjarnan með betra lið en taflan gefur til kynna
Keith Long, þjálfari Bohemian FC sem mætir Stjörnunni í Sambandsdeild UEFA í kvöld, er spenntur fyrir leik liðanna. Hann reiknar með hörkuleik í Garðabænum í kvöld og segir sína menn þurfa að vera upp á sitt besta til að eiga möguleika á að komast áfram.

„Megum ekki dragast lengra aftur úr“
„Þetta verða erfiðir leikir en möguleikarnir eru alveg til staðar,“ segir Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, fyrir einvígið við írska liðið Sligo Rovers sem hefst í Kaplakrika í dag. Hann segir alla sem koma að íslenskri knattspyrnu þurfa að spyrna við fótum eftir dapurt gengi félagsliða í Evrópukeppnum karla síðustu ár.

Heiðar segir Stjörnuna vel stemmda og það vera kröfu að fara áfram í Evrópu
Heiðar Ægisson, hægri bakvörður Stjörnunnar, segist staðráðinn í að hjálpa liðinu að komast í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu. Garðbæingar hefja leik í kvöld þegar Bohemians frá Írlandi kemur í heimsókn í Garðabæinn.

Óvenju dökkbláir Stjörnumenn í Evrópukeppninni í ár
Stjörnumenn spila að venju í sérstakri Evróputreyju þegar þeir taka þátt í Evrópukeppninni en framundan er leikur hjá liðinu á móti írska liðinu Bohemian FC í Sambandsdeild UEFA.

Langsóttur sigur Vals tryggir liðinu fjögur Evrópueinvígi
Takist Íslandsmeisturum Vals að skapa einn af stærstu sigrum íslensks fótbolta, með því að slá út Króatíumeistara Dinamo Zagreb, munu þeir að lágmarki spila átta Evrópuleiki í sumar.

Stefna á Íslandsför þrátt fyrir smit
Kórónuveirusmit greindist í röðum írska liðsins Sligo Rovers sem mætir FH í evrópsku Sambandsdeildinni á fimmtudag. Aðrir leikmenn liðsins bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

Reglan um mörk á útivelli afnumin
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur tilkynnt að búið sé að afnema regluna um útivallamörk í öllum keppnum á vegum sambandsins. Það þýðir að mörk á útivelli telja alveg jafnmikið og mörk á heimavelli í Meistaradeild Evrópu og öðrum Evrópukeppnum.

FH færi til Noregs og Breiðablik til Austurríkis en Stjarnan heppnari
Nú er orðið ljóst hvaða liðum íslensku liðin fjögur sem leika í Evrópukeppnum í fótbolta karla í sumar geta mætt vinni þau fyrstu mótherja sína.

FH-ingar og Stjörnumenn fara til Írlands en Blikar til Lúxemborgar
Þrjú íslensk lið voru í pottinum þegar dregið var í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu (Europa Conference League) í dag. FH og Stjarnan mæta írskum liðum á meðan Breiðablik mætir liði frá Lúxemborg.

Valsmenn gátu ekki fengið erfiðari andstæðing
Íslandsmeistarar Vals mæta Dinamo Zagreb í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í dag.

UEFA tilkynnir nýtt fyrirkomulag Meistara- og Evrópudeildar
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA tilkynnti í dag nýtt fyrirkomulag á Evrópu-keppnum sínum. Um er að ræða bæði Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina. Tekur fyrirkomulagið gildi árið 2024 þegar núverandi sjónvarpssamningur rennur sitt skeið.