
Flugslys við Þingvallavatn

Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga
Aðstandendur flugmannsins Haralds Diego, sem flaug vélinni TF-ABB sem hafnaði í Þingvallavatni í febrúar árið 2022, óska eftir því að friður skapist um málið. Skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) byggi á getgátum um hvort mannlegur þáttur hafi valdið slysinu þar sem þrír farþegar, auk Haralds, létu lífið.

Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að flugmaður vélar TF-ABB, sem fórst í Þingvallavatni í febrúar 2022, hafi annað hvort reynt að fljúga í lítilli hæð yfir ísilögðu vatninu eða að lenda vélinni þar en ísinn ekki borið þunga hennar. Þannig hafi vélin hafnað í vatninu.

Á rétt á upplýsingum varðandi slysið sem varð syni hans að bana
Bandarískur faðir manns sem lést í flugslysi á Þingvallavatni í febrúar 2022 á rétt á upplýsingum um flugmann vélarinnar og fyrirtæki hans frá Samgöngustofu. Þetta úrskurðaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál sem vísaði málinu aftur til stofnunarinnar sem hafði áður hafnað beiðni föðurins.

„Þetta voru ungir strákar í blóma lífsins“
Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið með íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni.

Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum
Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu.

Flaug í mjög lítilli hæð áður en hún hafnaði í vatninu
Í nýrri bráðabirgðaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um flugslysið í Þingvallavatni í febrúar kemur fram að Neyðarlínunni hafi borist stutt símtal frá einum farþeganna. Á myndum úr skýrslunni má sjá að flugvélin virðist fljúga í mjög lítilli hæð yfir Þingvallavatni í um sjö sekúndur áður en hún hafnar í vatninu.

Styttist í bráðabirgðaniðurstöður vegna flugslyssins á Þingvallavatni
Rannsókn á flugslysinu á Þingvallavatni í febrúarmánuði er enn í fullum gangi.

Hafa ákveðnar vísbendingar um tildrög slyssins
Flak flugvélarinnar TF-ABB var híft upp úr Þingvallavatni í gærkvöldi. Nú tekur við viðamikil rannsókn á tildrögum slyssins og er vonast til að búnaður úr vélinni geti varpað ljósi á þau.

Vélin er komin á þurrt land
Flak flugvélarinnar TF-ABB var híft upp úr Þingvallavatni rétt í þessu. Aðgerðir hafa staðið yfir við vatnið í allan dag og vélin hefur verið hífð upp í áföngum.

Búið að hífa vélina af botni Þingvallavatns
Aðgerðir við að hífa flak flugvélarinnar TF-ABB upp úr Þingvallavatni eru hafnar. Vélin er komin upp af botni vatnsins.

Hífa vélina upp í skrefum og vona að aðgerðum ljúki í kvöld
Flak flugvélarinnar TF-ABB verður híft upp af botni Þingvallavatns í dag en vélin brotlenti í vatninu fyrir rúmum tveimur mánuðum. Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu en flakið verður fært upp á land í nokkrum skrefum. Vonir eru bundnar við að aðgerðum verði lokið um kvöldmatarleytið.

Hífa flugvélarflakið af botni Þingvallavatns í dag
Í dag stendur til að hífa flugvélina TF-ABB af botni Ölfusvatnsvíkur í Þingvallavatni. Björgunarmenn undirbúa sig nú við bakka vatnsins.

Virðist í sama ástandi og þegar skilið var við hana í febrúar
Draga á flak flugvélarinnar TFF-ABB upp úr Þingvallavatni í fyrramálið. Vinnubúðir verða settar upp við vatnið í dag en á sjötta tug koma að verkefninu. Flugvélin hefur legið á botni vatnsins í rúma tvo mánuði en virðist í sama ástandi og þegar skilið var við hana í febrúar.

Stefnt að því að hífa TF-ABB af botni Þingvallavatns á föstudaginn
Stefnt er að því að hífa flugvélina TF-ABB af botni Ölfusvatnsvíkur í Þingvallavatni næstkomandi föstudag. Fjórir karlmenn létust eftir slysið varð þann 3. febrúar síðastliðinn.

Kertafleyting og oddaflug til minningar um Harald
AOPA á Íslandi, hagsmunafélag flugmanna- og flugvélaeigenda á Íslandi, stóð fyrir minningarathöfn um flugmanninn Harald Diego í gær við Þingvallavatn.

Vonast til að ná flaki TF ABB af botni vatnsins um miðjan apríl
Stýrihópur um aðgerðir til að ná flaki flugvélarinnar TF ABB af botni Þingvallavatns áformar að hittast í vikunni og undirbúa vinnu við björgun. Fjórir karlmenn létust eftir slysið varð þann 3. febrúar síðastliðinn.

„Þetta var partur af hans lífsgleði“
„Loftmyndin er svolítið vanmetin í því sem hún gerir fyrir Ísland,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari og flugmaður. Nýjasti þátturinn af RAX Augnablik var tileinkaður flugmanninum Haraldi Diego, sem lést í flugslysi á Þingvallavatni á flugvél sinni þann 3. febrúar síðast liðinn.

Banna köfun að flakinu í Þingvallavatni til að tryggja sönnunargögn
Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákveðið að banna köfun í Ölfusvatnsvík frá og með deginum í dag þar sem enn á eftir að ná flaki flugvélarinnar TF-ABB á land. Ekki hefur reynst mögulegt að ná flakinu úr vatninu. Lögregla segist ekki vita til þess að einhver hafi reynt að kafa að flakinu en segist hafa vitneskju um umræðu um slíkt meðal þeirra sem þekkja til köfunar.

Ljósmyndirnar sem selja Ísland: „Þeir elskuðu að fljúga með honum“
Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik sýnir Ragnar Axelsson magnaðar ljósmyndir frá frá ferðum sínum með bandaríska ljósmyndaranum Robert L. Breeden, sem er hugfanginn af Íslandi. Þeir skoðuðu meðal annars staði á hálendi Íslands sem fáir heimsækja og minna helst á aðra plánetu.

Chris Burkard selur ljósmyndir til að safna fyrir fjölskyldu Haraldar
Ljósmyndarinn og Íslandsvinurinn Chris Burkard hefur sett af stað söfnun fyrir fjölskyldu flugmannsins Haraldar Diego, sem lést í flugslysi við Þingvallavatn fyrr í mánuðinum.

Funda um framhald aðgerða við Þingvallavatn á morgun
Lögreglan á Suðurlandi og fleiri viðbragðsaðilar munu funda um framhald aðgerða við Þingvallavatn vegna flugslyssins sem þar varð í byrjun mánaðar á morgun. Þó er nokkuð ljóst að sú áætlun sem þar verður smíðuð verður ekki sett í gang fyrr en hlýnar og unnt verður að ganga í verkefnið án þess að veður setji strik í reikninginn.

Myndasyrpa: Mánuðir þar til skýrist hvað leiddi til slyssins
Það gætu liðið mánuðir þar til rannsókn leiðir í ljós hvað gerðist þegar flugvél fórst í Þingvallavatni í síðustu viku. Aðgerðum við að endurheimta brak vélarinnar úr vatninu hefur verið frestað um nokkrar vikur hið minnsta.

Hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag vegna íss
Ákveðið hefur verið að hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag þar sem stefnt var að því að ná flugvélinni TF-ABB af botni vatnsins. Ís er nú upp í fjögurra sentimetra þykkur og það sem brotið er leggur jafnharðan.

Búið að bera kennsl á þá fjóra sem voru í Þingvallavatni
Þingvallavatn hefur lagt á ný og þykktin á ísnum gæti reynst slík að fresta þurfi því að ná flugvélinni TF ABB af botni vatnsins. Þeir fjórir sem voru í vélinni náðust á land í gær og hafa aðstanendur borið kennsl á þá látnu.

Allir hinir látnu fundnir: Sóttu líkin með kafbáti vegna erfiðra aðstæðna
Aðstæður til köfunar í Þingvallavatni þóttu of erfiðar köfurum í dag vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Því var smákafbátur með myndavélabúnaði og griparm notaður til að sækja lík þeirra sem létust í flugslysinu í síðustu viku.

Þremur náð á land og leit stendur yfir að þeim fjórða
Smákafbátur hefur verið notaður við Þingvallavatn í dag til að sækja hina látna á botn vatnsins. Smákafbáturinn var notaður vegna þess að aðstæður voru metnar verulega hættulegar fyrir kafara.

Ísilagt Þingvallavatn og ólíklegt að kafað verði í dag
Ólíklegt er að hægt verði að ná einhverjum hinna fjögurra sem létust eftir flugslys upp úr Þingvallavatni í dag. Vatnið er ísilagt og hreyfir varla vind. Til stendur að reyna að brjóta upp ísinn í dag og vonandi verði þá hægt að ráðast í aðgerðir sem fyrst.

Aðgerðum frestað þangað til aðstæður leyfa
Búið er að fresta aðgerðum á Þingvallavatni, þar sem stefnt var að því að ná líkum þeirra sem létust í flugslysinu á vatninu, þangað til aðstæður leyfa. Óvíst er hvenær hægt er að reyna aftur.

Ís á vatninu hamlar aðgerðum í hörkufrosti á Þingvöllum
Fresta hefur þurft aðgerðum á Þingvallavatni þar sem freista átti þess að ná líkum þeirra sem létust í flugslysunu þar í síðustu viku. Ís á vatninu hamlar aðgerðum.

Tuttugu og tveir kafarar taka þátt
Ríflega tuttugu kafarar koma að því að ná þeim sem fórust með flugvélinni í Þingvallavatni og flugvélinni sjálfri upp á yfirborðið. Aðgerðin sem hefst í fyrramáli er mjög flókin þar sem kafarar geta ekki athafnað sig nema í örfáar mínútur á svo miklu dýpi og kulda.