
Landslið karla í fótbolta

Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands
Lið Svartfellinga hefur gefið föstu leikatriðum Íslands gaum fyrir leik liðanna í Niksic í Þjóðadeild UEFA í dag. Þjálfari liðsins segir liðsheild íslenska liðsins einn af styrkleikum þess.

Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“
Aron Einar Gunnarsson er mættur aftur í fyrirliðastöðu íslenska landsliðsins í fótbolta og sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Svartfjallalandi í dag, fyrir leikinn við Svartfellinga í Þjóðadeildinni á morgun.

Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“
Stevan Jovetic, helsta stjarna Svartfjallalands í fótbolta verður ekki með í leiknum gegn Íslandi í Þjóðadeild UEFA á morgun. Jovetic tekur út leikbann í leiknum.

Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ fyrir leik Svartfjallalands og Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil
Nú er komið að síðustu tveimur leikjum Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildar karla í fótbolta. Lokastaðan hefur mikil áhrif á undankeppni HM 2026 í Norður-Ameríku.

Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi
Milutin Osmajic, samherji Stefáns Teits Þórðarsonar hjá enska B-deildarliðinu Preston, mun ekki mæta Stefáni á laugardaginn þegar Svartfjallaland og Ísland eigast við í Þjóðadeildinni í fótbolta.

„Við verðum að vinna Ísland“
Svartfellingar eru vel meðvitaðir um það að ekkert annað en sigur dugir þeim gegn Íslandi á laugardaginn, þegar liðin mætast í Þjóðadeildinni í fótbolta, í borginni Niksic.

Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum nítján ára og yngri sigraði Aserbaídsjan, 0-2, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2025.

Frekari breytingar á landsliðshópnum
Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur neyðst til að gera tvær breytingar á landsliðshópi Íslands fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni.

Tvær breytingar á landsliðshópnum
Tvær breytingar hafa verið gerðar á hópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sem mætir Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeild UEFA á næstu dögum.

Hareide fámall varðandi framtíð sína í starfi
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og stjórn KSÍ hafa ekki rætt um framhaldið á samstarfi sínu. Uppsagnarákvæði er í samningi Hareide sem hægt er að virkja í lok þessa mánaðar og sjálfur er Norðmaðurinn fámall aðspurður hvort hann vilji halda áfram með liðið.

„Við ræðum það ekki við fjölmiðla“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vildi hafa Gylfa Þór Sigurðsson í landsliðshópi Íslands fyrir komandi verkefni í Þjóðadeild karla í fótbolta. Gylfi komst hins vegar að samkomulagi við KSÍ um að hann myndi hvíla í leikjunum tveimur.

Aron Einar valinn en enginn Gylfi í hópnum
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt hópinn fyrir síðustu leikina í Þjóðadeildinni. Aron Einar Gunnarsson kemur aftur inn í íslenska hópinn en Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki með.

Ísland náði jafntefli gegn Spáni
Íslenska U-17 ára lið drengja í knattspyrnu gerði í kvöld 2-2 jafntefli við Spán í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer næsta sumar. Báðar þjóðirnar höfðu þegar tryggt sér sæti í næsta stigi undankeppninnar fyrir leik kvöldsins en fyrsta sætið var engu að síður undir.

Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið
Theodór Elmar Bjarnason hætti tvítugur að spila fyrir íslenska karlalandsliðið eftir að hafa verið settur á varamannabekkinn. Hann fór beinustu leið á Prikið í afmæli hjá bróður sínum.

Um þrjú hundruð vörubílsfarmar af efni: „Engu keyrt í burtu“
Fyrsta skref í uppbyggingu Laugardalsvallar gengur vel og er á áætlun. Formaður KSÍ segir stefnuna svo að byggja völlinn enn frekar upp og enda með mannvirki sem við getum verið stolt af.

Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl
Líkt og við sögðum ykkur frá í gær ganga framkvæmdir við Laugardalsvöll vel og stefnt er að því að leika fyrsta leik á honum í júní á næsta ári. Grasvallatæknifræðingur sem er KSÍ innan handar segir það aðeins munu taka um sex vikur frá sáningu vallarins, sem ráðgert er að fari fram í mars, þar til að hann verður leikhæfur.

Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“
Birkir Már Sævarsson lauk knattspyrnuferli sínum um síðustu helgi þegar hans menn í Val unnu 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla. Birkir Már í atvinnumennsku í rúman áratug og er á meðal leikjahærri manna í sögu landsliðsins.

Laugardalsvöllur eins og þú hefur aldrei séð hann áður
Góður gangur er á framkvæmdum við þjóðarleikvang okkar Íslendinga í fótbolta, Laugardalsvöll. Við litum við og tókum stöðuna á framkvæmdunum í dag og þar tók Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður, meðfylgjand myndir.

Íslensku landsliðin spila áfram í Puma búningum
Knattspyrnusamband Íslands hefur framlengt samning sinn við íþróttavöruframleiðandann PUMA og munu landslið Íslands í knattspyrnu leika í Puma-búningum til ársins 2030.

Upp um eitt sæti á heimslistanum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í dag. Ísland er nú í 70. sæti listans.

Albert frá í mánuð og missir af landsleikjunum
Albert Guðmundsson mun líklegast ekki snúa aftur í íslenska landsliðið í nóvember þar sem meiðsli hans um helgina munu halda honum frá keppni næstu vikurnar.

Stimpluðu sig út með tapi gegn Dönum
Íslenska U21-landsliðið í fótbolta karla tapaði verðskuldað fyrir Danmörku ytra í dag, 2-0, í síðasta leik sínum í undankeppni EM 2025.

Dómarinn í Laugardalnum fór ekki eftir vinnureglum
Starfsreglur UEFA-dómara er varða endurskoðun á VAR segja til um að dómari á velli skuli horfa á myndbönd af atviki áður en hann taki ákvörðun. Ekki dugi að sjá stillimynd. Dómari leiks Íslands og Tyrklands í Þjóðadeild UEFA í gær virðist ekki hafa farið eftir þeim reglum þegar hann dæmdi Tyrkjum tvær vítaspyrnur.

Aðeins tveir hafa skorað fyrr í landsleik en Orri í gær
Orri Steinn Óskarsson kom íslenska liðinu í 1-0 á móti Tyrkjum í upphafi leiks á Laugardalsvellinum í gær og er þetta aðeins áttunda markið í sögu landsliðsins sem er skorað á þriðju mínútu eða fyrr.

Ræddu dýrkeypt mistök Hákonar í íslenska markinu
Hákon Rafn Valdimarsson hefur staðið sig mjög vel í íslenska markinu síðan hann fékk tækifærið með A-landsliðinu en hann gerði stór mistök í tapinu á móti Tyrkjum í Laugardalnum i gær.

„Það skilur enginn þessa reglu lengur“
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði 4-2 á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni í gærkvöldi þar sem myndbandsdómgæslan kom talsvert við sögu.

Myndasyrpa frá tapinu súra á Laugardalsvelli
Ísland mátti þola tap gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli þegar liðin mættust í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Ósáttur við ósamræmið og segir Skandinavíu í herferð gegn VAR
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var enn ósáttur með dómgæsluna er hann mætti á blaðamannafund eftir 4-2 tap liðsins gegn Tyrkjum í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

„Mér finnst þetta bara kjaftæði“
„Ég skil bara ekki hvernig þetta féll ekki okkar megin í dag,“ segir Orri Óskarsson eftir óhemju svekkjandi 4-2 tap Íslands gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta.