Íslandsbanki
1 2 3 4 5 6 7 8 … 14 ›
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56
Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka vexti á lánum þar sem brugðist er við vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær þar sem stýrivextir voru lækkaðir úr 9,25 prósentum í 9,0 prósent. Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hjá Íslandsbanka lækka nú um 0,25 prósentustig, úr 11,0 prósentum í 10,75 prósent. Viðskipti innlent 3.10.2024 12:28
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
„Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta skipti í fjögur ár í morgun, um 0,25 prósentur. Varaseðlabankastjóri segir að við séum þó ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna. Hagkerfið verði að hægja meira á sér eigi þróunin að halda áfram niður á við. Viðskipti innlent 2.10.2024 18:31
Ekki útilokað að stýrivextir lækki Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Hann spáir þó óbreyttum vöxtum en segir styttast í lækkun þeirra. Viðskipti innlent 1.10.2024 22:12
Spá enn einum fundinum án breytingar Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 2. október næstkomandi. Deildin telur þó að vaxtalækkunarferlið hefjist innan skamms. Viðskipti innlent 26.9.2024 16:19
Ringulreið á lánamarkaði Afborgun á ríflega fjörutíu milljón króna láni hækkar um allt að kvartmilljón á ári eftir vaxtahækkun bankanna. Lántaki sem þurfti að færa sig úr óverðtryggðu láni í verðtryggt segir ringulreið ríkja og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda. Innlent 23.9.2024 19:17
Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði komnir í 8,25 prósent um mitt næsta ár, 7,5 prósent í lok árs 2025 og niður í 5,5 prósent í lok árs 2026. Þetta kemur fram nýrri þjóðhagsspá bankans. Stýrivexti eru í dag 9,25 prósent og hafa verið óbreyttir í meira en ár. Viðskipti innlent 23.9.2024 14:16
Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun Stjórnendur Landsbankans hafa ekki tekið ákvörðun um að feta í fótspor hinna stóru viðskiptabankanna tveggja og hækka vexti á verðtryggðum lánum. Viðskipti innlent 16.9.2024 11:31
„Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Boðaðar vaxtahækkanir á verðtryggðum húsnæðislánum geta kostað heimilin tugi þúsunda aukalega á mánuði. Þetta endurspeglar vaxtaumhverfið á Íslandi í dag og hefur slæm áhrif á heimilin, segir dósent í viðskiptafræði. Þá gerir það illt verra að ekki standi til að endurnýja almenna heimild til að ráðstafa séreignasparnaði inn á húsnæðislán. Viðskipti innlent 14.9.2024 20:31
Íslandsbanki hækkar líka vexti verðtryggðra lána Vextir á verðtryggðum húsnæðislánum Íslandsbanka hækka um allt að hálft prósentustig í næstu viku. Hækkunin er aðeins minni en Arion banki tilkynnti um á miðvikudag og hefur sætt gagnrýni. Viðskipti innlent 13.9.2024 18:18
Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári. Neytendur 10.9.2024 10:32
Vonast til að stutt sé í vaxtalækkanir og þær verði „nokkuð hraðar“ Skýr merki eru um að hátt vaxtastig sé farið að þrengja mjög að lántökum, einkum fyrirtækjum, og gangi verðbólgan niður næstu mánuði er útlit fyrir að raunvextirnir muni hækka verulega, segir bankastjóri Íslandsbanka. Hann brýnir peningastefnunefnd Seðlabankans til að vera framsýna í ákvörðunum sínum og telur að aðstæður séu að skapast til að hefja vaxtalækkunarferlið. Innherji 9.9.2024 06:30
Telur ólíklegt að lífeyrissjóðir fjárfesti evrum sem fáist fyrir Marel á Íslandi Ólíklegt er að lífeyrissjóðir sem kjósa að fá hluta af kaupverði Marel greitt í evrum noti það til fjárfestinga á Íslandi, að mati framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs. Innherji 6.9.2024 12:55
Þarf peningana við kaupin á Marel til að útboð Íslandsbanka gangi upp Markaðsaðstæður eru krefjandi fyrir ríkið að selja stóran hlut í Íslandsbanka fyrir áramót og til að þau áform gangi eftir þurfa innlendir fjárfestar að nýta hluta af reiðufé sem fæst við samruna JBT og Marel til kaupanna. Það er ekki sjálfgefið að lífeyrissjóðir eða erlendir sjóðir kaupi stóran hlut í útboðinu, að sögn viðmælenda Innherja, sem nefna að óskynsamlegt sölufyrirkomulag kunni að leiða til þess að bréfin fáist á betra verði en ella sem skapi tækifæri fyrir fjárfesta. Innherji 6.9.2024 07:30
Samið við þrjá um umsjón útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að ganga til samninga við þrjá aðila um umsjón útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Viðskipti innlent 21.8.2024 16:56
Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að grundvöllur sé að myndast fyrir minni verðbólgu á næstunni. Þá ályktun dregur hann af nýjustu vísbendingum, svo sem væntingakönnunum, minni ráðningaráformum og minni neyslu. Viðskipti innlent 30.7.2024 20:59
„Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Verkefnastjóri segir miður að steypuryk frá niðurrifsframkvæmdum á Kirkjusandi hafi fokið yfir íbúðahverfi í Laugarnesi. Auka hefur þurft öryggisgæslu á svæðinu eftir að í ljós kom að fólk hefur farið inn á svæðið í leyfisleysi. Innlent 24.7.2024 20:30
Fínn hvítur salli gerir íbúum Laugarneshverfis lífið leitt Svavar Hávarðsson er íbúi í Laugarneshverfi og hann segir nánast allt hverfið undirlagt af steypuryki sem leggst yfir allt og á alla. Innlent 22.7.2024 16:23
Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Greining Íslandsbanka hefur lækkað hagvaxtarspá sína í ljósi fækkunar ferðamanna í júní og telur þróunina geta dregið úr spennu á vinnu- og íbúðamarkaði fyrr en áður var talið. Viðskipti innlent 22.7.2024 13:42
Sváfu með fullt af evrum undir koddanum fyrir flugmiðum heim ef þyrfti „Satt best að segja fékk ég leið á sjálfum mér,” segir Ari Daníelsson, forstjóri Origo og hlær. Atvinnulíf 21.7.2024 08:01
Akur færir virði fisksalans Gadusar niður um nærri helming Akur fjárfestingarfélag færði niður eignarhlut sinn í belgíska fisksölufélaginu Gadus um 43 prósent milli ára. Árið 2020 var ríflega helmingshlutur í fyrirtækinu metinn á 2,3 milljarða en þemur árum síðar var virði hans yfir 800 milljónir í bókum félagsins sem er í eigu lífeyrissjóða, VÍS og Íslandsbanka. Innherji 12.7.2024 10:43
Greinendur vænta þess að afkoma bankanna haldi áfram að versna Greinendur gera að jafnaði ráð fyrir því að hagnaður stóru viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast nokkuð saman milli ára á öðrum ársfjórðungi. Útlit er fyrir að hagnaður bankanna fyrir tekjuskatt dragist saman um 18 til 20 prósent en miðað við þær spár munu þeir ekki ná arðsemismarkmiðum sínum. Innherji 11.7.2024 07:54
Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. Viðskipti innlent 8.7.2024 08:29
Tveir af stærstu hluthöfunum seldu í Íslandsbanka fyrir vel á annan milljarð Tveir af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Íslandsbanka minnkuðu stöðu sína fyrir samanlagt vel á annan milljarð króna í liðnum mánuði þegar bankinn bauðst til að kaupa bréf hluthafa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Hlutabréfaverð bankans hefur rétt úr kútnum undanfarna daga en stjórnvöld áforma að ráðast í tugmilljarða sölu síðar á árinu í gegnum almennt útboð. Innherji 7.7.2024 12:24
Íslandsbankahúsið rústir einar Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi er rústir einar. Unnið hefur verið að niðurrifi hússins í rúma tvo mánuði. Innlent 2.7.2024 19:42
Mygla og spilliefni hafi flækt framkvæmdirnar Fokdýrum framkvæmdum við niðurrif gamla frystihússins á Kirkjusandi fer senn að ljúka og stefnt á að hefja uppbyggingu yfir tvöhundruð íbúða á svæðinu í haust. Árum saman hefur húsið staðið tómt síðan rakaskemmdir komu í ljós. Innlent 26.6.2024 22:30
Geta líka miðað við dagslokagengi fyrir útboðslýsingu við sölu á Íslandsbanka Almennu hlutafjárútboði á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður skipt í tilboðsbók A og B. Í tilboðsbók A, sem er ætluð minni fjárfestum, verður annaðhvort miðað við 15 daga meðalverð eða síðasta dagslokagengi áður en útboðslýsing er birt. Um er að ræða breytingu á frumvarpi. Innherji 14.6.2024 11:17
Greinandi er „ekki sérlega“ bjartsýnn á þjónustutekjur Íslandsbanka í ár Það mun vera þungur róður í fjárfestingarbankastarfsemi. Jakobsson Capital er „ekki sérlega bjartsýnt“ á þjónustutekjur Íslandsbanka í ár. Uppgjör bankans á fyrsta ársfjórðungi var lítillega undir væntingum greiningarfyrirtækisins að teknu tilliti til einskiptisliðar. Engu að síður er nýtt verðmat mun hærra en markaðsverð. Innherji 10.6.2024 16:54
Íslandsbanki lokaði skortstöðu sinni á Kviku Íslandsbanki hefur lokað skortstöðu í Kviku sem hann tók síðastliðna viku, samkvæmt upplýsingum Innherja. Athygli vekur að Íslandsbanki er með viðskiptavakt á hlutabréf Kviku og lánar að auki fjárfestum meðal annars til að kaup hlutabréf. Frá áramótum hefur gengi Kviku lækkað um ellefu prósent. Það er nokkru lægra en gengi Íslandsbanka sem hefur lækkað um 16 prósent, rétt eins og gengi Arion banka. Innherji 10.6.2024 14:21