
Alvotech

Róbert Wessmann tekinn af Mannlífi
Allar fréttir um Róbert Wessmann, eiganda lyfjafyrirtækisins Alvogen, eru horfnar af vef fjölmiðilsins Mannlíf. Halldór Kristmannsson, sem hefur átt í deilum við Róbert segir hvarf fréttanna ekki tengjast sátt milli hans og Róberts.

Halldór og Róbert slíðra sverðin
Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara.

Alvotech ræður Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóra gæðaeftirlits
Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október næstkomandi.

Íslenskir sjóðir fjárfestu í Alvotech fyrir á fimmta milljarð
Fjögur stærstu íslensku sjóðastýringarfélögin fjárfestu í Alvotech fyrir samtals vel yfir fjóra milljarða króna í aðdraganda þess að líftæknilyfjafyrirtækið var skráð á markað hér heima og í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum. Sjóðir opnir almennum fjárfestum í rekstri Íslandssjóða, dótturfélagi Íslandsbanka, voru þar umsvifamestir.

Halda sínu striki og stefna á að leysa úr athugasemdum FDA
Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech tilkynnti í dag um samskipti við Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, sem varða úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík, í kjölfar leyfisumsóknar Alvotech fyrir líftæknilyfjahliðstæðuna AVT02.

Alvotech stefnir á aðalmarkað
Stjórn Alvotech hefur samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi.

Halldór þarf ekki að leggja fram tölvupósta og greinagerð
Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, þarf ekki að verða við dómkröfu Björgólfs Thors um að leggja fram tugi tölvupósta, greinargerð og önnur dómsskjöl í máli Alvogen gegn Halldóri. Björgólfur stendur nú í málaferlum vegna falls Landsbankans árið 2008 og gerði kröfuna í tengslum við þau skaðabótamál.

DNB mælir með kaupum í Alvotech og verðmetur félagið á 700 milljarða
Hlutafé íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi í liðnum mánuði, er metið á rúmlega 5,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, samkvæmt nýju verðmati.

Róbert hringir lokabjöllunni í tilefni skráningar Alvotech
Hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í Nasdaq First North Growth markaðnum í morgun. Í tilefni af því mun Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, hringja lokabjöllu kauphallarinnar við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum félagsins.

Viðskipti með bréf Alvotech hafin á Íslandi
Hlutabréf Alvotech verða tekin til viðskipta á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík í dag. Félagið var skráð á markað í Bandaríkjunum fyrir viku síðan en um er að ræða fyrsta félagið sem skráð er á markað hér á landi og vestanhafs samtímis.

Hlutur Róberts metinn á um 226 milljarða króna
Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessman var í dag skráð á markað í Bandaríkjunum aðeins tíu árum eftir stofnun. Þá er fyrsta lyf fyrirtækisins nú komið í dreifingu í Kanada og Evrópu eftir að dómssátt náðist um leyfismál.

Stærsta stund ferilsins í dag
Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessmann, verður skráð á markað í Bandaríkjunum í dag. Fyrirtækið verður það fyrsta íslenska sem skráð er á markað í Bandaríkjunum og á Íslandi - og þá er þetta í fyrsta sinn í rúm tuttugu ár sem íslenskt fyrirtæki er skráð í bandarísku kauphöllina.

Hefur „óbilandi trú“ á Alvotech þótt aðstæður á markaði séu erfiðar
Hlutabréf íslenska fyrirtækisins Alvotech, sem hefur unnið að þróun líftæknilyfja frá stofnun þess fyrir um áratug og kostað til um einum milljarði Bandaríkjadala, jafnvirði yfir 130 milljarða króna, verða tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni, stærsta hlutabréfamarkaði heims, í New York eftir hádegi í dag. Alvotech verður með því eina íslenska félagið sem er á bandarískum hlutabréfamarkaði.

Samþykkja samruna Oaktree og Alvotech og skráning boðuð í næstu viku
Mikill meirihluti hluthafa sérhæfða yfirtökufélagsins Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti fyrr í kvöld öfugan samruna við íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum, og að hlutabréf Alvotech verði tekin til viðskipta á Nasdaq markaðnum í New York daginn eftir.

Samþykktu samruna Alvotech og Oaktree
Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Þá verður Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum þann 16. júní.

Hækkar verðmatið á Alvotech í 630 milljarða rétt fyrir skráningu á markað
Heildarvirði íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem verður skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi síðar í þessum mánuði, er metið á um 4,95 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 630 milljarða króna, í uppfærðu verðmati bandaríska fjárfestingabankans Nortland Capital á félaginu.

Tryggir sér 32 milljarða fjármögnun til að mæta mögulegum innlausnum fjárfesta
Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og Íslandi sem verður að óbreyttu í næsta mánuði, hefur gengið frá samkomulagi við tvo bandaríska fjárfestingasjóði sem tryggir félaginu aðgang að fjármögnun fyrir allt að 250 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 32 milljarða íslenskra króna.