
Lögmennska

Gerður ráðin til BBA//Fjeldco
Gerður Guðmundsdóttir lögmaður hefur verið ráðin til starfa hjá BBA//Fjeldco þar sem hún verður hluti af skattateymi stofunnar.

Örlætisgerningur
Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 20/2023, 21/2023, 22/2023 og 23/2023, frá 27. mars 2024 (71. gr.), segir: Samkvæmt öllu framansögðu fólst í raun í samkomulaginu einhliða ákvörðun fyrrverandi ríkislögreglustjóra um nærri 50% hækkun á grunnlaunum stefnda sem hvorki var í samræmi við kjara- né stofnanasamning.

Heimta hundrað milljóna króna tryggingu
Gunnar Hauksson, sem á jörðina Sandeyri á Snæfjallaströnd, hefur lagt fram beiðni um lögbann við sjókvíaeldi Arctic Sea Farm á Sandeyri. Er þetta meðal annars á þeim forsendum að sjókvíaeldið sem heimilað er sé innan hans jarðarmarka.

Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn
„Hér er Landsréttur að taka fram fyrir hendurnar á ákæruvaldinu, koma fram við það eins og lítið barn sem nýtur ekki lögræðis,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson verjandi hjúkrunarfræðings, sem var sýknaður af ákæru fyrir manndráp á geðdeild Landspítala á síðasta ári. Í dag var dómur héraðsdóms ómerktur í Landsrétti og lagt fyrir héraðsdóms að taka málið til meðferðar á ný.

Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna
Skiptastjóri veit ekki hvað skal gera með fjármuni sem fundust í búi félags þar sem engin gögn eru til. Geri enginn tilkall til fjármunanna mun skiptastjórinn þurfa sjálfur að velja góðgerðarfélag sem fær peningana.

Skipaður deildarforseti lagadeildar HR
Dr. Gunnar Þór Pétursson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur verið skipaður deildarforseti lagadeildar HR.

Ráðuneytið greitt Juris hundruð milljóna vegna þjóðlendumála
Á undanförnum tíu árum hefur fjármálaráðuneytið greitt lögmannastofunni Juris slf. 354 milljónir króna vegna þjóðlendismála auk greiðslna vegna lögfræðiaðstoðar. Meðal þekktra eigenda Juris eru Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður Árvarkurs og einn innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins, Andri Árnason sem varði Geir H. Haarde í Landsdómsmálinu og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ og fyrrverandi stjórnarformaður Bankasýslunnar.

Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna.

Rögnvaldur nýr yfirlögfræðingur hjá Landspítala
Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson hefur verið ráðinn sem yfirlögfræðingur Landspítala. Hann hóf störf í síðasta mánuði.

Ráðin yfirlögfræðingur VÍS trygginga
Bergrún Elín Benediktsdóttir hefur verið ráðin sem yfirlögfræðingur VÍS trygginga.

Fíll í postulínsbúð? Svigrúm ríkisins til athafna á samkeppnismarkaði
Þegar ríkisfyrirtæki kaupir eignir eða rekstur þarf að sama skapi að sýna fram á að ákvörðun standist prófið um skynsamlega hegðun markaðsaðila. Ef leiða má að því líkur að eignarhald ríkisins feli í sér einhvers konar forskot, til dæmis að því er varðar fjármögnun kaupanna eða arðsemiskröfu, fellur ríkið á prófinu og þá er um ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins að ræða, að sögn lögmanns og sérfræðings í Evrópurétti.

Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ
Sigurður Árnason hefur verið ráðinn í starf lögfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum.

Kæra Ómar til lögreglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar
Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins.

Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum
Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur, ásamt lögmannsstofu sinni ESJA Legal, verið dæmdur til að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 490 þúsund krónur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu síðastliðinn fimmtudag.

Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals
Par segir Ómar Valdimarsson lögmann hafa hótað þeim málsókn eftir að þau sögðu hann hafa höfðað dómsmál fyrir þeirra hönd án vitneskju þeirra. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebook og sagði þau skorta lesskilning. Parið skoðar hvort tilefni sé til að kæra birtingu Ómars á persónuupplýsingum þeirra og íhuga að kvarta yfir honum til úrskurðarnefndar lögmanna.

Segir lesskilningi fara hrakandi og baunar á formanninn
Ómar R. Valdimarsson, lögmaður og eigandi Flugbóta.is, gefur lítið fyrir gagnrýni á störf hans þegar mál var höfðað fyrir hönd ungra hjóna, að því er virðist að þeim forspurðum. Máli sínu til stuðnings birtir hann tölvupóstsamskipti við umbjóðendur sína opinberlega á Facebook.

Segir formanninn haldinn „athyglissýki á lokastigi“
Sveinn Andri Sveinsson verjandi sakborninga í hryðjuverkamálinu segir Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands, vera haldinn athyglissýki á lokastigi vegna ummæla hans í viðtali við Ríkisútvarpið fyrr í dag.

Kolbrún tekin til starfa hjá Eurojust
Kolbrún Benediktsdóttir hóf í dag störf sem fyrsti sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust í dag. Hún segir um að ræða mikilvægt skref fyrir Ísland.

Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því
Par sem sótti bætur í gegnum flugbaetur.is vissi hvorki að dómur hefði fallið í málinu né að þeim hefði verið dæmt að greiða málskostnað. Formaður lögmannafélagsins segir að slíkt eigi ekki að geta gerst. Ómar R. Valdimarsson sem rekur Flugbætur segir að skjólstæðingar beri ekki kostnaðinn þegar mál fari á þennan veg.

Lögmaðurinn John Van De North bætist í hóp eigenda BBA//Fjeldco
Íslenska lögmannsstofan BBA//Fjeldco, sem starfrækir meðal annars skrifstofu í Mayfair í London, hefur stækkað teymi sitt þar í borg með því að fá til liðs við sig bandaríska lögmanninn John Van De North. Hann er með áratuga reynslu af ráðgjöf við stór fjármögnunarverkefni og var áður einn eiganda alþjóðlegu lögmannsstofunnar Goodwin í London.

Anna Kristín og Diljá bætast í eigendahóp MAGNA
Anna Kristín Kristjánsdóttir og Diljá Catherine Þiðriksdóttir hafa gengið til liðs við eigendahóp lögmannsstofunnar MAGNA.

Grafalvarlegt að Höskuldur hafi reynt að villa um fyrir nefndinni
Formaður Lögmannafélagsins segir grafalvarlegt að lögmaður hafi reynt að hafa áhrif á niðurstöðu úrskurðanefndar með því að veita henni villandi upplýsingar. Hann kannast ekki við að annað slíkt hafi gerst á síðustu árum.

Fyrrverandi þingmaður áminntur fyrir lögmannsstörf
Höskuldur Þór Þórhallsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins um árabil, var á dögunum áminntur fyrir störf sín sem lögmaður. Hann hélt eftir fjármunum erfingja í dánarbúi og reyndi að villa um fyrir úrskurðarnefnd lögmannafélagisns.

Utanaðkomandi lögmaður fékk aðgang að sakamáli
Umboðsmaður Alþingis hefur beint ábendingum til Ríkissaksóknara og dómsmálaráðherra vegna athugunar hans á máli þar sem lögmaður fékk aðgang að gögnum sakamáls, sem var honum alls óviðkomandi.

Lögmaður skammaður fyrir framkomu gagnvart erfingjum
Lögmaður á Íslandi sem skipaður var skiptastjóri í dánarbúi konu hefur verið áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir að hafa haldið eftir fjármunum erfingjanna og reyna að villa um fyrir nefndinni. Hann heldur þó þóknun sinni sem erfingjar konunnar töldu allt of háa.

Fyrirmæli um stjórnarskrárbrot
Kosningalög voru uppfærð síðasta vor, í þeim breytingum var mælt fyrir um nokkrar reglugerðir, drög að þeim reglugerðum liggja nú fyrir. Því miður eru á þeim alvarlegir gallar, allt að því að mæla fyrir um framkvæmd sem gengur gegn stjórnarskrá.

Einar Oddur og Unnsteinn til Lögmáls
Lögmennirnir Einar Oddur Sigurðsson og Unnsteinn Örn Elvarsson hafa bæst í hóp eigenda lögmannsstofunnar Lögmáls. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Mannréttindi. Upplýsingaöflun lögreglu um einkamálefni manna
Með 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar er öllum sem staddir eru innan íslenskrar lögsögu tryggður réttur til friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Í 2. mgr. sömu greinar er mælt fyrir um að ekki megi gera tilteknar rannsóknaraðgerðir sem skerða friðhelgi einkalífs nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild.

Heift milli stjörnulögmanna brýst upp á yfirborðið
Svo virðist sem stríð hafi brotist út milli lögmanna á samfélagsmiðlum og víðar. Eigast þar við Brynjar Níelsson annars vegar og hins vegar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson auk þess sem Sveinn Andri Sveinsson blandast í slaginn.

Gamlar erjur tóku sig upp á Þorrablóti Stjörnunnar
Uppistandari á Þorrablóti Stjörnunnar, Helgi Brynjarsson sonur Brynjars Níelssonar, lét Vilhjálm Vilhjálmsson lögmann ekki slá sig út af laginu þegar hann vildi fá orðið. Það er ef marka má Smartland Moggans.