
Hótel á Íslandi

Landsbankinn selur hlutinn í Keahótelum sem tekinn var upp í skuldir
Landsbankinn hefur auglýst 35 prósent hlut sinn í Keahótelum ehf. til sölu. Bankinn eignaðist hlutinn eftir endurskipulagningu félagsins sem fól í sér að skuldum við bankann var breytt í hlutafé.

Starfsmaður hótels dæmdur fyrir að nauðga gesti með þroskahömlun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann, Philip Dugay Acob, í þriggja ára fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir að hafa nauðgað manni með þroskahömlun á hótelherbergi í október 2021.

Lokun Northern Light Inn: Fjölmiðlaumfjöllun „ekki í neinu samræmi við raunveruleikann“
Hótelið Northern Light inn, sem staðsett er við Svartsengi hefur farið að frumkvæði Bláa lónsins og verður lokað næstu vikuna. Eigandi hótelsins segir lokunina þó einungis stafa af umfjöllun fjölmiðla um ástandið á Reykjanesskaga vegna jarðhræringa.

Segja löðrunginn eiga sér enga hliðstæðu hér á landi
Íslenskir leiðsögumenn fordæma atvik á Hótel Örk nýlega þar sem kona, sem sögð er fararstjóri, löðrungaði skólastelpu frá Bretlandi. Þetta ömurlega háttalag er sagt ekki eiga sér hliðstæðu meðal leiðsögumanna hérlendis.

Bókaði stærstu svítuna en varð til vandræða þegar hann fékk hana ekki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í dag kölluð út vegna manns sem var verið að vísa út af hóteli. Þegar lögregla kom á vettvang ræddi hún við manninn sem kvaðst hafa bókað stærstu svítuna á hótelinu en ekki fengið hana. Honum var vísað út af lögreglu.

Upplifðu skíðagönguævintýri og dekur á Siglufirði
Skíðaganga nýtur vaxandi vinsælda hér á landi og má segja að íþróttin sé ein vinsælasta vetraríþrótt Íslendinga.

Kærð fyrir að löðrunga skólastelpu á Hótel Örk
Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar uppákomu á Hótel Örk liðna helgi þar sem fullorðin hvít kona löðrungaði unga stúlku, dökka á hörund, á gangi hótelsins. Myndskeið af löðrungnum er í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum og hefur vakið hörð viðbrögð.

Kokkinum sem lét ferskmetið standa hafnað í þriðju tilraun
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni yfirkokks á hóteli á Norðvesturlandi sem hafði krafist þess að fá laun á uppsagnarfresti, orlof, orlofsuppbót og desemberuppbót eftir að hafa verið rekinn úr starfi.

Booking.com í tugmilljóna skuld við danska hótelrekendur
„Við höfum heyrt að það eru einhverjir aðilar sem eru ennþá að verða varir við þetta en við höfum ekki heyrt af því að vandamálið hafi aukist eða að það hafi batnað.“

Frábær nostalgíu kvöldstund með öllum lögunum sem þú elskar
Tónlistarveislan Aftur í tímann hefst á Grímsborgum laugardaginn 7. október en þar fara gestir aftur í tímann til níunda áratugar síðustu aldar.

Hafa tröllatrú á fjórðungnum og opna heilsárshótel í Sælingsdal
Eftir meira en tveggja áratuga óvissu um framtíð skólabygginganna að Laugum í Sælingsdal er búið að opna þar heilsárshótel. Hótelhaldarar segjast hafa tröllatrú á ferðaþjónustu á Vesturlandi og á Vestfjörðum.

Slógu met á Norðurlandi í júní
Metfjöldi skráðra gistinótta mældist á hótelum á Norðurlandi í júnímánuði. Nemur aukningin átta prósentum frá sama mánuði í fyrra og hefur nýting hótelherbergja ekki verið betri frá því mælingar hófust.

Met slegið sjötta mánuðinn í röð
Metfjöldi gistinótta var skráður í júní og nemur fjölgunin um 17 prósentum frá fyrra metárinu 2022. Met hafa verið slegin í öllum mánuðum það sem af er þessu ári samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Ísböð og heitar laugar á lúxushóteli Hreiðars
Fyrirhugað hótel Hreiðars Hermannsonar á Orustustöðum í Skaftárhreppi verður með ísböðum og heitum laugum og tugkílómetra stígakerfi fyrir viðamikla afþreyingu. Enn ríkir þó óvissa um hvort leyfi fáist til að leggja varanlegan veg að hótelinu.

Hreiðar hyggst setja hótelbyggingu á fullt
Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða í Skaftárhreppi, segir að framkvæmdir við tíu milljarða króna hótel á jörðinni fari núna fullt en hann hafði betur í dómsmáli um vegtengingu fyrir helgi. Hann vonast til að hótelið verði opnað eftir átján til tuttugu mánuði.

Hreiðar hafði betur í deilu um veg að Orustustöðum
Hreiðar Hermannsson, eigandi jarðarinnar Orustustaða í Skaftárhreppi, hafði betur í dómsmáli sem tveir eigendur nágrannajarðarinnar Hraunbóls/Sléttabóls 2 höfðuðu til að meina honum að nota og endurbæta vegslóða sem liggur að Orustustöðum um land Hraunbóls. Lögregla hefur ítrekað verið kölluð til vegna þessara nágrannadeilna og hafa þær sett áform Hreiðars um tíu milljarða króna hótelbyggingu í uppnám.

Íslendingar kvarti en ferðamönnum sé nokkuð sama
Hótelrekendur eru alsælir með sumarið fram að þessu og ánægðir með að hafa náð vopnum sínum á ný eftir erfiðan heimsfaraldur. Fjöldi gistinátta í maí sló öll fyrri met samkvæmt tölum Hagstofunnar og Hagfræðideild Landsbankans spáir því að fjöldi erlendra ferðamanna geti náð yfir 2,1 milljón í ár. Gangi sú spá eftir mun 2023 taka við af árinu 2019 sem næst stærsta ferðamannaár Íslandssögunnar.

Minnst tólf nóróveirutilfelli á hóteli á Austurlandi
Tólf manns hið minnsta smituðust af nóróveiru og einn var lagður inn á sjúkrahús eftir að hópsýking kom upp á hóteli á Austurlandi á miðvikudag.

Sveitarstjórinn hvetur aðila til að semja um hótelveginn
Skaftárhreppur styður hóteluppbyggingu á jörðinni Orustustöðum og hefur skipulagt nýjan veg mun fjær þeim nágrönnum sem verða fyrir mestu ónæði. Sveitarstjórinn kveðst vænta þess að deiluaðilar leysi málið sjálfir með samningum.

Hótelsmíði í uppnámi vegna nágrannadeilu um vegagerð
Tíu milljarða króna hóteluppbygging í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs er í uppnámi vegna nágrannadeilna um lagningu vegar að hótelinu. Ítrekað hefur soðið upp úr og lögregla verið kölluð til.

Sérstakt Eric Clapton herbergi á Hótel Blönduósi
Heilmikið líf er að kvikna í gamla bænum á Blönduósi því þar er búið að vera að gera upp gömul hús og koma þeim í rekstur, meðal annars Hótel Blönduósi þar sem Eric Clapton á sitt eigið herbergi.

Fjögur ný hótel rísa undir Eyjafjöllum og á Hvolsvelli
Fjögur ný hótel eru í undirbúningi í Rangárþingi eystra með gistirými fyrir samtals um tvöþúsund manns. Þrjú hótelanna yrðu undir Eyjafjöllum og eitt á Hvolsvelli.

Alfa Framtak kaupir Hótel Hamar og Hótel Höfn
Alfa Framtak hefur samið um kaup á tveimur hótelum; Hótel Hamri sem er skammt frá Borgarnesi og Hótel Höfn sem er í Hornafirði. Beðið er eftir úrskurði Samkeppniseftirlitsins varðandi kaupin.

Keahótel taka við Hótel Grímsborgum
Keahótel hafa tekið við rekstri Hótel Grímsborga í Grímsnesi, með undirritun samnings þess efnis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kea Hótelum.

Lykilstærðir í hótelgeiranum að komast í svipað horf og fyrir faraldurinn
Í stórum dráttum eru helstu lykilstærðir í hótelgeiranum að komast í svipað horf og þær voru fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn. Dvalarlengdin er áþekk og verð í fyrrasumar, leiðrétt fyrir verðlagsbreytingum, voru ekki fjarri því sem fyrir farsóttina einkum þegar leið á sumarið, að sögn formanns Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG).

Eitt fínasta hótel borgarinnar komið í rekstur
Í Íslandi í dag var farið í heimsókn á Hótel Alþingi eins og hið nýja Parliament Hotel útleggst á íslensku. Eftir langt og strangt ferli er risið glæsilegt hótel á þessum sögufræga stað sem stílar á betur borgandi ferðamenn – og slær ekkert af í lúxus. Sjón er sögu ríkari og vísast til innslagsins hér að ofan.

Örstutt í fimm stjörnu hótelin fyrir stórstjörnurnar
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er nú að taka þátt í uppbyggingu nýrra fjölbýlishúsa í Gufunesinu með fasteignaþróunarfélaginu Spildu þar sem Anna Sigríður Arnardóttir sér um val á arkitektum og hönnun og hefur yfirumsjón með verkefninu.

Ingólfur og Lijing til Íslandshótela
Ingólfur Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fasteigna hjá Íslandshótelum og Lijing Zhou sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá sama fyrirtæki.

Ófyrirséð skakkaföll Berjaya og Icelandair Group fara fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Berjaya Hotels og Icelandair Group gegn fasteignafélaginu Suðurhúsum vegna húsaleigu sem fyrirtækin greiddu ekki í kórónuveirufaraldurinn. Málið er sagt hafa fordæmisgildi fyrir áhrif ófyrirséðra og óviðráðanlegra atvika á samninga.

Opna hótel í gamalli síldarverksmiðju
Stefnt er að því að hefja deiliskipulagsvinnu í sumar við uppbyggingu hótels í húsnæði gömlu síldarverksmiðjunnar á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Stefnt er að því að sjóböð verði einnig opnuð þar á næstunni.