
Féll í sprungu í Grindavík

Fréttamynd ársins er af sprunguleit í Grindavík
Eggert Jóhannesson og Golli hlutu í dag verðlaun fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins 2024. Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en þar var á sama tíma opnuð ljósmyndasýning sem verður opin til 27. apríl 2025.

Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík
Lögreglan á Suðurnesjum lauk í síðustu viku rannsókn sinni á banaslysi í Grindavík þann 10. janúar í fyrra. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings í málinu að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Málið er nú á borði héraðssaksóknara.

Krefjast þess að faðir þeirra verði úrskurðaður látinn
Börn Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rétt tæpu ári, hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að ákveðið verði með dómi að faðir þeirra sé talinn látinn.

Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara.

Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað
Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess.

Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði
Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði.

„Þetta er óþarfa tjón“
Jarðeðlisfræðingur segir andvaraleysi hafa ríkt í skipulagsmálum með tilliti til náttúruvár. Til að mynda hefði verið hægt að koma í veg fyrir tjón í Grindavík.

Unnur minnist unnusta síns Lúðvíks sem hvarf í sprungu
Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Segir ekki hægt að kalla fall mannsins í sprunguna slys
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ekki hægt að kalla það þegar maður féll í sprungu í Grindavík slys. Hann telur óafsakanlegt að vinna hafi þegar verið hafin við að fylla í sprungur sem ekki var nauðsynlegt að fylla í, né heldur að hann hafi verið einn að störfum.

Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu
Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið.

Fjölskyldan kallar eftir rannsókn óháðra aðila á hvarfinu
Fjölskylda mannsins sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar á þessu ári vill að hvarf hans verði rannsakað af óháðum aðilum. Fjölskyldan vill svör um aðdraganda og aðstæður á vettvangi þar sem maðurinn, Lúðvík Pétursson, var við störf.

Áfram líkur á að gossprungur opnist án fyrirvara
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en of snemmt er að segja til um hraða landrissins svo snemma eftir eldgos. Samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins, þar virðist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara.

Gefa sér ekki tíma til að óttast
Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega.

Bein útsending: Íbúafundur Grindvíkinga
Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll hefst klukkan 17 í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér að neðan.

Brotnir verktakar fari grjótharðir áfram á hnefanum
Fjöldi íbúa Grindavíkur hefur skrifað undir pappíra sem heimila viðbragðsaðilum að fara inn í hús þeirr,a til þess að kanna ástand hitakerfa fasteigna, og afhent þeim lykla að heimilum sínum. Einn þeirra segir einsýnt að halda verði viðgerðum í bænum áfram. Verktakar hafi brotnað við slysið í bænum en fari áfram á hnefanum.

Forsetinn boðar samstöðu og enga uppgjöf
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands vitnaði í forvera sinn Kristján Eldjárn og Snorra goða í ávarpi um kvöldmatarleytið þar sem hann blés baráttuhug í landsmenn. Skilaboðin voru skýr; við gefumst ekki upp.

Nafn mannsins sem saknað er eftir vinnuslysið
Maðurinn sem saknað er eftir vinnuslys sem varð í Grindavík þann 10. janúar heitir Lúðvík Pétursson.

Almannavarnir funda með ráðamönnum um áhættu í Grindavík
Almannavarnir funda í dag með ráðamönnum og hagaðilum um framhaldið í Grindavík. Áhættur sem fylgja því að vera í bænum verða metnar.

Ekki hægt að réttlæta áframhaldandi leit
Ekki var hægt að réttlæta áframhaldandi leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík í gær vegna lífshættulegra aðstæðna við björgun, að sögn lögreglustjóra. Svipað hættulegar sprungur finnist víða í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í bænum.

Hætta að meta tjón í Grindavík í bili
Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum.

Hætta leitinni að manninum
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru.

Hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag
Leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík er hafin á ný. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir leit ganga vel og að hann sé hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag.

Hefja leit á ný
Leit að manninum, sem talið er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík á miðvikudag, er hafin á ný. Leit var frestað í gærkvöldi vegna hættulegra aðstæðna á svæðinu.

Hlé gert á leitinni í Grindavík í nótt
Á tólfta tímanum í gærkvöldi var gert hlé á leitinni að manninum sem féll í sprungu í Grindavík sökum aðstæðna á slysstað.

„Það styttist í það eftir því sem lengur er unnið“
Enn er leitað að manni sem féll ofan í sprungu við framkvæmdir í Grindavík í gær. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu að aðstæður við björgunarstarfið séu erfiðar.

Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag.

Hægur gangur í leitinni en rofar til
Hjálmar Hallgrímsson, sem stýrir aðgerðum á vettvangi í Grindavík, segir að unnið sé hörðum höndum að því að greiða fyrir aðgengi í sprungunni, sem talið er að maður hafi fallið ofan í.

„Við erum bæði sorgmædd og slegin“
Bæjarstjóri Grindavíkur segir bæjarbúa bæði vera sorgmædda og slegna eftir atburði gærdagsins og yfirstandandi leit að manni, sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í bænum. Hugur allra Grindvíkinga sé hjá aðstandendum mannsins.

Stöðug viðvera í sprungunni en telja óöruggt að senda kafara
Sigmenn á vegum Landsbjargar hafa stöðuga viðveru ofan í sprungunni í Grindavík, sem talið er að maður hafi fallið ofan í, en ekki er talið öruggt að senda kafara til leitar í vatni sem tekur við á margra metra dýpi ofan í sprungunni. Aðgengi íbúa að Grindavík helst óbreytt.

Mikið vatn í djúpri sprungunni
„Leit stendur yfir, maðurinn er ekki fundinn,“ sagði Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í morgun um leitina að manninum sem er talinn hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í gær. Mikið vatn er í sprungunni að hans sögn.