
Hlaupársdagur

Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ
29. febrúar árið 1968 líður Árnesingum seint úr minni en þá varð mesta flóð í Ölfusá frá því byggð hófst á Selfossi.

Stjörnulífið: Rúrik með súpermódeli í Mexíkó
Liðin vika var afar viðburðarrík hjá stjörnum landsins. Söngvakeppnin, raunveruleikastjörnur í eyðimörkinni og Rúrik með súpermódeli bar þar hæst.

Rithöfundar nýttu aukadaginn í brúðkaup
Bragi Páll Sigurðsson og Bergþóra Snæbjörnsdóttir eru hjón. Sannkölluð rithöfundahjón. Þau létu pússa sig saman við persónulega athöfn á heimili sínu í gær, 29. febrúar. Átta ára dóttir þeirra stýrði athöfninni.

Fyrsta hlaupársdagsbarn ársins kom í heiminn 00:13
Fyrsta hlaupársdagsbarn ársins kom í heiminn á fæðingardeild Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík þrettán mínútum eftir að hlaupársdagur gekk í garð á miðnætti.

Hefði verið skelfilegt að byrja ævina á skjalafalsi
Hlaupár er á fjögurra ára fresti líkt og flestum er kunnugt. Í ár bættist auka dagur við almanakið, 29. febrúar. Mest fæddust þrjátíu börn á Íslandi á hlaupársdaginn árið 1980, tuttugu og sjö börn árið 1988 en aðeins sjö börn þennan dag árið 2020.

Davíð Oddsson síðastur í stólinn
Lýður Sörlason lokaði stofu sinni í gær.

Um 300 landsmanna eiga afmæli fjórða hvert ár
Ein afmælisbarna dagsins er Rakel Júlía Jónsdóttir, birtingastjóri hjá Símanum, en hún segist sjálf kippa sér lítið upp við þennan sjaldséða afmælisdag.

Fyrsta hlaupársbarnið kom í heiminn á áttunda tímanum í Reykjavík
Annað barn kom í heiminn á Akureyri skömmu fyrir klukkan níu.

Elsta hlaupársbarn þjóðarinnar 22 ára
Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir á einungis afmæli á fjögurra ára fresti og heldur því upp á 22 ára afmælið sitt í dag. Hún er elsti Íslendingurinn fæddur á hlaupári 29. febrúar og hefur lifað í 88 ár, þrátt fyrir að hafa átt mun færri afmælisdaga. „Það er oft sagt í gríni að ég sé svona ung. En ég hef upplifað ýmislegt á minni ævi sem 22 ára manneskja hefði sennilega ekki getað,“ segir Ragnheiður. Fyrir um tíu árum byrjaði hún að missa sjónina og er lögblind í dag.

Yfir 200 Íslendingar eiga afmæli í dag, hlaupársdag
208 Íslendingar eiga afmæli í dag, hlaupársdag, en fjögur ár eru síðan að þeir gátum haldið upp á afmælið á réttum degi.