Úkraína
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 79 ›
Forsetar þurftu að leita sér skjóls vegna eldflauga Háværar sprengingar heyrðust í Kænugarði í morgun eftir að Rússar skutu eldflaugum á borgina. Nokkrir forsetar Afríkuríkja eru staddir í Kænugarði, þar sem þeir munu ræða við ráðamenn um mögulegar friðarviðræður við Rússa. Því næst munu þeir fara til Pétursborgar í Rússlandi og hitta Vladimír Pútín, forseta. Erlent 16.6.2023 11:52
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Maraþon en ekki spretthlaup“ Harðir bardagar hafa geisað í suður- og austurhluta Úkraínu undanfarnar daga, þar sem gagnsókn Úkraínumanna er hafin. Nokkur þorp hafa verið frelsuð úr höndum Rússa en Úkraínumenn hafa sótt tiltölulega grunnt inn í varnir Rússa en á víðu svæði. Erlent 16.6.2023 08:01
Segja að 150 börnum hafi verið rænt og þau flutt til Rússlands Yfirvöld í Úkraínu segja að 150 börnum hafi verið rænt í Starobilsk í Luhansk 8. júní síðastliðinn og flutt á tvær stofnanir í Prikuban í Karachay-Cherkess í Rússlandi. Erlent 16.6.2023 07:02
Rússar skutu eldflaugum á Kherson í dag Rússar héldu áfram loftárásum á borgir í suðurhluta Úkraínu í dag. Flugskeyti hæfðu skrifstofubyggingu miðborg Kherson sem Rússar höfðu hertekið en var stökkt á flótta þaðan í nóvember. Erlent 15.6.2023 21:17
Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna. Erlent 14.6.2023 14:35
Úkraínumenn og Svíar sitja enn á hliðarlínu Atlantshafsbandalagsins Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins munu ekki leggja fram tímasetta áætlun um inngöngu Úkraínu á næstu ráðstefnu Nató í Vilníus í júlí heldur lofa styttra umsóknarferli þegar Úkraína fær boð um inngöngu, einhvern tímann þegar átökunum í landinu er lokið. Erlent 14.6.2023 12:23
Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu. Erlent 13.6.2023 17:15
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku. Innlent 13.6.2023 15:33
Gerðu loftárás á heimabæ Selenskís Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt. Erlent 13.6.2023 07:39
Segja að Rússar hafi sprengt aðra stíflu Úkraínumenn saka Rússa um að hafa sprengt aðra stíflu í landinu, í þetta sinn í Zaporizhzhia héraði. Erlent 12.6.2023 07:15
Segjast hafa endurheimt fyrstu þorpin Úkraínumenn segjast hafa endurheimt þrjú þorp í Dónetsk-héraði úr höndum Rússa. Úkraínuforseti staðfesti í gær að gagnsókn úkraínska hersins væri hafin. Erlent 11.6.2023 21:17
„Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53
Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna. Innlent 10.6.2023 15:17
Horfa þurfti á stöðu íslenskra kjúklingabænda Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segist skilja vel þá miklum umræðu, sem hefur átt sér stað á Alþingi síðustu daga og víða í þjóðfélaginu um kjúklingabringurnar frá Úkraínu. Hún segir að það hafi þurft að horfa á stöðu kjúklingabænda hér á landi gagnvart innflutningi. Innlent 10.6.2023 13:32
Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21
Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50
Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. Innlent 9.6.2023 13:16
Kaupfélag Skagfirðinga eigi ekki að flytja inn kjöt Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga, haldinn 6. júní, beindi því til stjórnar að Kaupfélagið og dótturfélög þess stæðu ekki í innflutningi á erlendum búvörum. Ályktunin kemur á sama tíma og Alþingi hættir tollfrjálsum innflutningi á úkraínsku kjöti. Innlent 9.6.2023 12:10
„Það er enn engin hjálp“ Fólk sem situr fast í húsum á austurbakka Dnipróár í Úkraínu segir litla hjálp berast frá Rússum. Fólk sem hefur reynt að koma öðrum til bjargar segist hafa lent í því að rússneskir hermenn taki báta þeirra. Aðrir segja að hermennirnir hjálpi ekki fólki nema þau hafi rússnesk vegabréf. Erlent 9.6.2023 10:34
Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31
Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8.6.2023 19:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
600 ferkílómetrar undir vatni og jarðsprengjur á víð og dreif Um 600 ferkílómetrar lands eru nú undir vatni eftir að Kakhova-stíflan í Dnipro-ánni í Úkraínu brast í fyrradag. Þetta segir héraðsstjórinn í Kherson en 68 prósent tjónsins er þó á austurbakkanum, landi sem Rússar hafa stjórn á. Erlent 8.6.2023 07:17
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30
Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7.6.2023 07:48
Árás á stífluna „umhverfislegt gjöreyðingarvopn“ Úkraínuforseti hefur sakað Rússa um að hafa sprengt stíflu í Kherson-héraði af ásettu ráði og segir þá hafa beitt „umhverfislegu gjöreyðingarvopni“ og framið stríðsglæp. Erlent 6.6.2023 23:05
Vissu af áætlun Úkraínumanna um árás á Nord Stream Yfirvöld í Bandaríkjunum fengu í júní í fyrra upplýsingar frá evrópskri leyniþjónustu um að Úkraínumenn hefðu skipulagt árás á Nord Stream gasleiðslurnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 22. september, sprungu sprengjur við Nord Stream 1 og 2 en skemmdarverkinu hefur verið lýst sem bíræfni árás á orkuinnviði Evrópu. Erlent 6.6.2023 16:48
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6.6.2023 12:16