
Ferðaþjónusta fatlaðra

Bílstjórinn tekinn úr umferð hjá Pant
Bílstjóri Hreyfils sem skildi fatlaðan dreng eftir við Víkingsheimilið á fimmtudag í stað þess að aka honum heim ekur ekki lengur fyrir Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Það staðfestir Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils.

Fatlaður drengur fannst illa haldinn fjarri heimili sínu
Móðir fatlaðs drengs sem skilaði sér ekki heim úr akstursþjónustu segir heppni að ekki fór verr. Sonur hennar fannst í Víkingsheimilinu um hálftíma eftir að hann fór úr leigubíl frá Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Bílstjórinn keyrir ekki lengur fyrir Pant.

Iva klippt út úr myndbandi um gott aðgengi vegna skoðana sinna
Söngkonunni og laganemanum Ivu Marín Adrichem var illa brugðið þegar settur ferðamálastjóri, Elías Bj. Gíslason, tilkynnti henni að brugðið hafi verið á það ráð að taka myndband sem fjallar um bætt aðgengi á ferðamannastöðum úr birtingu og klippa hana út.

Kemstu heim um hátíð ljóss og friðar… samkenndar og kærleika?
Nú eru hátíðirnar framundan þar sem fjölskyldur og vinir hittast og eiga saman góða stund. Þetta er tími sem við viljum og eigum að geta notið saman og um leið skapað góðar minningar. Þetta er sá tími ársins sem við borðum saman góðan mat, opnum gjafir, spilum, horfum á áramótaskaupið og gerum í raun allt það sem við erum vön að gera með okkar nánasta fólki.

69 sagt upp hjá ferðaþjónustufyrirtæki
Vinnumálastofnun hefur borist ein hópuppsögn í morgun.

„Við erum ekki að lofa veirufríu samfélagi“
Frá og með næsta miðvikudegi verða allir skimaðir fyrir kórónuveirunni við landamærin og síðan aftur eftir fjóra til fimm daga að lokinni sóttkví. Forsætisráðherra segir ekki hægt að lofa veirufríu landi en verið sé að lágmarka áhættuna.

Fatlaður drengur týndur í þrjá tíma eftir að hafa verið skutlað á rangt sambýli
Fatlaður drengur týndist í þrjár klukkustundir síðdegis eftir að akstursþjónusta skutlaði honum á rangt heimilisfang.

Ósátt við fyrirkomulag aksturs fatlaðra
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í velferðarráði gera alvarlegar athugasemdir við ákvörðun stjórnar Strætó bs. að samþykkja framsal á rammasamningi hins gjaldþrota Prime Tours í ferðaþjónustu fatlaðra til Far-vel ehf.

Eigandi Prime Tours kaupir flotann á nýrri kennitölu
Strætó bs. hefur lagt blessun sína yfir framsal skiptastjóra Prime Tours á rammasamningi um akstursþjónustu fatlaðra til félagsins Far-vel ehf.

Strætó semur við Far-vel um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Strætó hefur samið við Far-vel ehf um akstursþjónustu fatlaðs fólks eftir að verktakafyrirtækið Prime Tours var úrskurðað gjaldþrota.

Hvetur þá sem synjað er um ferðaþjónustu til að áfrýja
Íbúar á hjúkrunarheimilum hafa ekki rétt á að nýta ferðaþjónustu fatlaðra hjá Reykjavíkurborg en geta átt rétt á akstursþjónustu fyrir aldraða, að uppfylltum skilyrðum. Framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis hvetur þá sem synjað er um þjónustu til að áfrýja til velferðarráðs.

„Algjörlega ófyrirgefanlegt og óeðlilegt“
Framkvæmdastjóri Strætó segir það með öllu óskiljanlegt hvernig tókst að gleyma fatlaðri konu.

Bílstjórinn gleymdi fatlaðri konu úti í bíl
Bílstjóri ferðaþjónustu fatlaðra gleymdi að skutla fatlaðri konu til vinnu og fór heim til sín í kaffi. Á meðan var konan ein og yfirgefin í bílnum. Konan er mikið flogaveik og því aldrei skilin ein eftir. Málið er litið mjög alvarlegum augum.

Röð mistaka hjá ferðaþjónustu fatlaðra
Fleiri atriði skoðuð af neyðarstjórn en bara stúlkan sem týndist í gær.

Dagur segir atvikið í gær of alvarlegt til að grípa ekki til ákveðnari aðgerða
Neyðarstjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðra hefur víðtækar heimildir til að gera breytingar.

Neyðarfundur í ráðhúsinu: Stefán settur yfir neyðarstjórn
Neyðarfundur borgastjóra og bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu er hafinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Auk bæjarstjóranna er stjórn Strætó á fundinum.

Stjórnendur ÍTR funduðu með starfsmönnum Hins hússins í morgun
Enginn tók á móti stúlkunni og ekki uppgötvaðist að hún væri týnd fyrr en hún átti að vera komin heim.

Ökumaðurinn ekki yfirheyrður: Verður rætt við hann síðar í dag til að skýra atburðarásina
Málið er til skoðunar hjá lögreglu og litið alvarlegum augum.

Saka bílstjórann um vítavert gáleysi
Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands harma þann alvarlega atburð sem átti sér stað í gær hjá Akstursþjónustu Strætó b.s.

Erfitt fyrir ráðherra að fá skýr svör frá Strætó um ferðaþjónustu fatlaðra
Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, segir atvikið í gær þar sem þroskaskert stúlka gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra mjög alvarlegt.