Eldgos og jarðhræringar
133 134 135 136 ›
Gosið virðist færast í aukana Gosið í Grímsvötnum virðist vera að færast í aukana. Friðrik Þór Halldórsson kvikmyndatökumaður er við barm gígsins fyrir neðan Háubungu þar sem hann horfir austur yfir Grímsvötn og segir hann mikið ganga á. Gífurlegir bólstrar koma úr gígnum og segir Friðrik að miðað við þá rúmu klukkustund sem hann hafi fylgst með gosinu virðist það vera að aukast. Innlent 13.10.2005 14:54
Meira en fyrir sex árum Vísindamenn sem voru að koma úr flugi yfir gosstöðvarnar segja að eldgosið nú sé meira en síðasta Grímsvatnagos fyrir sex árum. Nú undir kvöld gaf Flugmálastjórn það út að flug væri hvorki heimilað á Akureyri né Egilsstaði. Innlent 13.10.2005 14:54
Stærsta hlaup síðan 1996 Hlaupið nú er það stærsta sem komið hefur í Skeiðará eftir hamfarahlaupið 1996. Helgi Björnsson jöklafræðingur telur að hlaupinu verði lokið seinnipartinn á morgun. Innlent 13.10.2005 14:54
Veginum við Skeiðarársand lokað Lögreglustjórarnir í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa samkvæmt ráðleggingum jarðvísindamanna og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra ákveðið að loka veginum um Skeiðarársand á miðnætti. Veginum verður lokað af öryggisástæðum. Lokanirnar verða við Núpsstað að vestan og við afleggjarann að Skaftafelli að austan. Innlent 13.10.2005 14:54
Stöðugur gosórói í Grímsvötnum Fullvíst má nú telja að eldgos sé hafið í eða við Grímsvötn. Samkvæmt tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna hófst stöðugur gosórói í Grímsvötnum um kl. 22:10 í kvöld. Í tilkynningunni segir að jarðvísindamenn og starfsfólk í samhæfingarstöð almannavarna fylgist með framvindu mála. Innlent 13.10.2005 14:54
Eldgos líklega hafið í Grímsvötnum "Það er margt sem bendir til þess að gos sé hafið í eða við Grímsvötn. Við vitum ekki mikið meira um það í bili, hvort það er enn ofan í vatninu sjálfu eða undir ís, eða hvort það hefur brotið sér leið upp. Þetta er á mjög svipuðum slóðum og eldgosið í Grímsvötnum 1998," sagði Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands í kvöld. Innlent 13.10.2005 14:54
Ljóst að um gos er að ræða "Smám saman hefur orðið ljósara að um gos er að ræða í eða við Grímsvötn og það upp úr ísnum," segir í tilkynningu sem Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni sendi frá sér rétt í þessu. Innlent 13.10.2005 14:54