Ná Stólarnir fyrstu Suðurnesjaþrennunni í tæp 23 ár? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2014 16:45 Pétur Rúnar Birgisson. Vísir/Valli
Tindastólsmenn heimsækja Grindvíkinga í kvöld í lokaleik áttundu umferðar Dominos-deildar karla í körfubolta en þetta verður fimmti Mánudagsleikurinn í vetur sem verður sendur út í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn fer fram í Röstinni í Grindavík og hefst hann klukkan 19.15. Sjónvarpsútsending Stöðvar 2 Sport hefst klukkan 19.00. Tindastóll hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjum tímabilsins og þar á meðal 11 stiga sigur á Njarðvík (86-75) og 13 stiga sigur á Keflavík (97-74). Stólarnir eiga því möguleika á því að ná Suðurnesjaþrennunni í kvöld. Það þarf að fara tæp 23 ár aftur í tímann til að finna Suðurnesjaþrennu hjá Tindastól á einu tímabili í úrvalsdeild karla. Stólarnir unnu síðast Suðurnesjaliðin þrjú í einni röð í febrúar 1992. Tindastóll vann þá Keflavík 5. febrúar (74-72, heima), Grindavík 9. febrúar (97-94, úti) og loks Njarðvík 28. febrúar (83-81, úti). Frá því að Stólarnir náðu þessari þrennu fyrir tæpum 23 árum hefur liðið aðeins unnið 28 af 112 deildarleikjum sínum á móti Suðurnesjaliðunum þremur og þá eru meðtaldir sigurleikirnir tveir fyrr í vetur. Tindastóll fékk tvö tækifæri til að ná Suðurnesjaþrennunni tímabilið 1999-2000 en tapaði þriðja leiknum í bæði skiptin. Fyrir jól unnu Stólarnir Keflavík (93-79) og Grindavík (97-77) en töpuðu svo á móti Njarðvík (84-101). Eftir jól unnu Stólarnir Njarðvík (90-75) og Keflavík (80-67) en töpuðu svo á móti Grindavík (80-86).
Dominos-deild karla Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Fleiri fréttir Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Sjá meira