Fótbolti

Börsungar bikar­meistarar eftir fram­lengingu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jules Kounde fagnaði sigurmarkinu vel og innilega. Eðlilega svo sem.
Jules Kounde fagnaði sigurmarkinu vel og innilega. Eðlilega svo sem. Fran Santiago/Getty Images

Barcelona er spænskur bikarmeistari eftir 3-2 sigur gegn erkifjendum sínum í Real Madrid í framlengdum úrslitaleik spænska konungsbikarsins, Copa del Rey, í kvöld.

Börsungar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og uppskáru mark eftir tæplega hálftíma leik þegar Lamine Yamal lagði boltann út á Pedri sem þrumaði honum í netið með skoti fyrir utan teig. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks og staðan því 1-0, Barcelona í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Eftir frekan slappan fyrri hálfleik Madrídinga tóku þeir loksins við sér eftir hlé. Kylian Mbappé kom inn af varamannabekknum í hálfleik og hann átti heldur betur eftir að setja mark sitt á leikinn.

Franski sóknarmaðurinn jafnaði metin fyrir Madrídinga með marki beint úr aukaspyrnu á 70. mínútu, áður en Aurélien Tchouaméni kom liðinu yfir með góðum skalla sjö mínútum síðar.

Börsungar gáfust þó ekki upp og Ferran Torres jafnaði metin fyrir liðið sex mínútum fyrir leikslok eftir að hafa leikið á Thibaut Courtois í marki Madrídinga. Börsungar héldu svo að þeir væru að fá vítaspyrnu í uppbótartíma eftir að Raphinha fór niður innan vítateigs, en eftir skoðun myndbandsdómara var Brassinn spjaldaður fyrir leikaraskap.

Niðurstaðan eftir venjulegan leiktíma því 2-2 jafntefli og því þurfti að grípa til framlengingar.

Í framlengingunni var það svo Jules Kounde sem reyndist hetja Börsunga. Bakvörðurinn komst þá inn í sendingu frá Luka Modric á 116. mínútu og renndi boltanum í fjærhornið með hnitmiðuðu skoti.

Niðurstaðan því 3-2 sigur Barcelona í vægast sagt sveiflukenndum leik og bikarmeistaratitillinn er þeirra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×