Guðmundur: Bylting að fá dúkinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júní 2015 14:00 Daði Freyr Guðmundsson svarar í keppni í tvíliðaleik í morgun og Magnús Kristinn Magnússon fylgist með. Þeir töpuðu fyrir keppendum frá Svartfjallalandi í morgun. Vísir/Vilhelm
Guðmundur Stephensen, landsliðsþjálfari í borðtennis og margfaldur Íslandsmeistari, er hæstánægður með þá aðstöðu sem byggð hefur verið upp í tengslum við Smáþjóðaleikana sem nú fara fram í Reykjavík. Í fyrsta sinn á Íslandi er nú keppt á sérstökum gólfdúk frá Gerflor, sem framleiðir dúka sem er notað í fjölda íþróttagreina um allan heim. „Hingað til höfum við bara spilað á trégólfinu,“ segir Guðmundur við Vísi og bendir á gólfið í TBR-húsinu við Gnoðarvog. „Það er alls ekkert slæmt en það er hrikalega flott að geta verið með dúk. Það er dúkur á öllum stærstu mótunum úti í heimi og algjörlega til fyrirmyndar að fá svona heima.“ Guðmundur segir að framleiðandinn hafi gefið Borðtennissambandi Íslands dúkinn vegna Smáþjóðaleikanna. „Það er ekki nokkur spurning að íþróttin mun njóta góðs af þessu um ókomin ár.“ Það þarf þó að leggja dúkinn og líma fyrir hvern viðburð og telur Guðmundur að hann verði aðeins notaður fyrir stærstu mótin hér á landi. Hann segir að borðtenniskeppnin á Smáþjóðaleikunum sé sterk að þessu sinni, sérstaklega í kvennaflokki.Guðrún Björnsdóttir og Aldís Rún Lárusdóttir í tvíliðaleiknum í morgun. Þær töpuðu fyrir pari frá Svartfjallalandi, 3-0.Vísir/Vilhelm„Það eru tvær kínverskar konur að keppa á mótinu sem eru einfaldlega í heimsklassa. Önnur keppir fyrir Lúxemborg og hin fyrir Mónakó. Það eru virkilega flottir spilarar,“ sagði Guðmundur en keppni í einliðaleik karla og kvenna fer fram á morgun og á laugardag. „Það er jafnari keppni í karlaflokki en þar eru þó ekki leikmenn sem eru í saman gæðaflokki og bestu konurnar.“ Ísland hefur ekki átt mikilli velgengni að fagna á leikunum til þessa. Bæði karla- og kvennalið Íslands töpuðu öllum sínum viðureignum í liðakeppninni fyrr í vikunni en í dag hófst keppni í tvíliðaleik. Íslensku pörin töpuðu fyrstu viðureignum sínum í morgun en spila aftur síðar í dag.
Íþróttir Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Fleiri fréttir Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Sú yngsta í sögunni til að vinna: „Var rosalega stresuð“ Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum „Eigum skilið að finna til“ Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira