Aron kvaddi Kiel með meistaratitli | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2015 19:31 Leikmenn Kiel fögnuðu 20. meistaratitli félagsins vel og innilega. vísir/getty
Aron Pálmarsson lék sinn síðasta leik með Kiel þegar liðið vann öruggan fjögurra marka sigur, 33-29, á Lemgo á heimavelli í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Með sigrinum gulltryggði Kiel sér Þýskalandsmeistaratitilinn, fjórða árið í röð, og sjötta sinn alls undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Aron skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar leiknum í kvöld sem var, eins og áður sagði, hans síðasti með Kiel. Landsliðsmaðurinn er sem kunnugt er á leið til Veszprém í Ungverjalandi. Aron varð alls fimm sinnum þýskur meistari með Kiel. Kiel tapaði ekki leik eftir áramót og vann 14 af 15 síðustu leikjum sínum í þýsku deildinni. Alfreð, Aron og félagar fengu alls 65 stig, tveimur meira en Rhein-Neckar Löwen sem vann fimm marka sigur, 27-32, á Geir Sveinssyni og lærisveinum hans í Magdeburg.Kiel vann 14 af síðustu 15 deildarleikjum sínum á tímabilinu.vísir/gettyAlexander Petersson lék ekki með Löwen í kvöld og Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með níu mörk. Magdeburg endaði í 4. sæti deildarinnar en liðið tapaði þremur síðustu leikjum á tímabilinu. Dagur Sigurðsson stýrði Füchse Berlin í síðasta sinn í kvöld þegar Berlínarrefirnir töpuðu 29-32 fyrir Flensburg. Fuchse Berlin endaði í 7. sæti en Flensburg í því þriðja. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk og Rúnar Kárason eitt þegar Hannover-Burgdorf tapaði 29-26 fyrir Melsungen á útivelli. Hamburg vann eins marks sigur á Gummersbach á heimavelli, 32-31. Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt marka Gummersbach. Sigurbergur Sveinsson lék ekki með Erlangen sem tapaði fyrir Lübbecke á útivelli, 28-23. Erlangen féll úr deildinni ásamt Minden, Friesenheim og Bietigheim.Filip Jicha, fyrirliði Kiel, lyftir skildinum góða.vísir/getty
Handbolti Mest lesið Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Barcelona Spánarmeistari Fótbolti „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ Sport Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Handbolti Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið Handbolti Bikarævintýri Fram heldur áfram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn