Umfjöllun og myndir: Þór/KA - Breiðablik 1-2 | Tíu ára bið Blika á enda Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. september 2015 19:15 vísir/auðunn níelsson
Breiðablik eru Íslandsmeistarar eftir 10 ára bið. Þetta var ljóst eftir 1-2 endurkomusigur Blika á Þór/KA fyrir norðan í kvöld. Blikakonur hafa verið með langbesta liðið í Pepsi-deild kvenna í sumar og eru verðskuldaðir meistarar. Kópavogsliðið hefur skorað flest mörk allra liða (48) og aðeins fengið á sig fjögur mörk í 17 leikjum sem er mögnuð tölfræði. Þetta var 16. Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í kvennaflokki en ekkert lið hefur unnið titilinn jafn oft.Auðunn Níelsson myndaði leikinn fyrir Vísi en afraksturinn má sjá hér að ofan. Blikar voru heillum horfnir í fyrri hálfleik og voru heppnir að vera ekki nema 1-0 undir að honum loknum. Lillý Rut Hlynsdóttir kom Þór/KA yfir á 25. mínútu og á lokamínútu fyrri hálfleiks small boltinn svo í stöng Blikamarksins. En leikurinn snerist algjörlega við í seinni hálfleik. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, gerði tvöfalda skiptingu i hálfleik og hún virkaði vel. Blikar juku sóknarþungann, sem var enginn í fyrri hálfleik, og strax eftir tveggja mínútna leik jafnaði Telma Hjaltalín Þrastardóttir metin með frábæru skoti fyrir utan teig. Gestirnir héldu áfram að þjarma að heimakonum með Svövu Rós Guðmundsdóttur í fantaformi á hægri kantinum. Svava, sem kom til Blika frá Val fyrir tímabilið, lagði upp gott færi fyrir Fanndísi Friðriksdóttur á 55. mínútu og tveimur mínútum síðar komst Svava sjálf í dauðafæri en Roxanne Kimberly Barker varði skot hennar í stöng. Roxanne kom hins vegar ekki neinum vörnum við á 62. mínútu þegar Fanndís skoraði sitt 19. deildarmark með góðu skoti frá vítapunkti eftir fyrirgjöf Svövu frá hægri. Blikar voru nær því að bæta þriðja markinu við en norðanstúlkur að jafna og svo fór að Blikar unnu 1-2 sigur sem tryggði þeim langþráðan Íslandsmeistaratitil.vísir/auðunn níelssonvísir/auðunn níelssonvísir/auðunn níelsson
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Körfubolti Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á Sumardaginn fyrsta Sport Fleiri fréttir Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar „Ég fer bara sáttur á koddann“ Uppgjörið: ÍA - Vestri 0-2 | Taplausir Vestramenn sóttu sigur á Skagann „Gæti vel verið en það er bara fókus á næsta leik“ Uppgjörið: FH - KR 2-2 | Bæði lið enn án sigurs Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Jónatan Ingi sýndi sínar bestu hliðar í fyrsta sigri Vals Þórdís Hrönn með stoðsendingu fyrir sjötta félagið í efstu deild „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Sjá meira