Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Breiðablik 2-2 | Vítaspyrnu-Ívar bjargaði stigi Tómas Þór Þórðarson á Víkingsvelli skrifar 13. september 2015 19:30 Ívar Örn tryggði Víkingum stig með marki úr vítaspyrnu undir lokin. vísir/stefán
Víkingur og Breiðablik skildu jöfn, 2-2, í skemmtilegum leik á Víkingsvelli í 19. umferð Pepsi-deildar karla í dag. Með úrslitunum er Breiðablik væntanlega endanlega úr leik í baráttunni um titilinn og Víkingar færast nær því að bjarga sæti sínu. Eftir að liðin voru aðeins búin að þreifa hvort á öðru hóf Andri Rafn Yeoman fyrri hálfleikinn fyrir alvöru með fínu skoti sem fór rétt framhjá markinu. Hinum megin reyndi Vladimir Tufegdzic skot úr góðu færi beint á markið og Arnþór Ingi Kristinsson þrumaði frákastinu hátt yfir tómt markið. Þetta var merki um það sem var á döfinni í ansi fjörlegum fyrri hálfleik. Fínt hraði var í leiknum þó það voru Blikar sem sóttu meira á meðan Víkingar reyndu að beita skyndisóknum Erlendur Eiríksson var ansi duglegur að flauta í fyrri hálfleik, eitthvað sem er ólíkt honum. Blikar fengu nokkrar aukspyrnur í kringum teiginn og hótaði Oliver Sigurjónsson úr þeim öllum. Hann gerði svo meira en að hóta þegar hann skoraði fyrsta markið á 18. mínútu leiksins beint úr aukaspyrnu. Blikar fengu aukaspyrnu beint á móti markinu rétt fyrir utan D-bogann og smellti Oliver boltanum í samskeytin. Virkilega fallegt mark hjá Oliver og ekki hans fyrsta beint úr aukaspyrnu í sumar. Fyrir utan markið átti hann þrusu góðan leik, en miðað við frammistöðu hans í sumar hjá Blikum og U21 árs landsliðinu má reikna með að hann kveðji klakann aftur í vetur. Tufegdzic var mjög sprækur í fremstu víglínu Víkings. Þetta er einfaldlega ljómandi góður knattspyrnu og mun sterkari en hæð hans og líkamsburðir gefa til greina. Hann hélt annars frábæru miðvarðapari Blika á tánum allan tímann og fékk nokkur góð færi. Tufegdzic fékk lang besta færi Víkinga í fyrri hálfleik þegar hann fór ansi illa með Elfar en Gunnleifur bjargaði honum með glæsilegri markvörslu. Staðan 1-0 í hálfleik fyrir Breiðablik. Serbinn öflugi hélt áfram að láta vita af sér og uppskar fyrir erfiði sitt eftir sléttar 60 sekúndur í fyrri hálfleik. Damir Muminovic var að drolla með boltann í teignum og Tufegdzic hirti boltann af honum. Hann var svo gríðarlega yfirvegaður í færinu og skoraði framhjá Gunnleifi, 1-1. Kristinn Jónsson átti líka sinn þátt í markinu en það er ekki oft sem varnarmenn Blika eru svona sofandi. Seinni hálfleikurinn var jafn fjörugur og sá fyrri. Mikill hraði var í leiknum og þegar Blikar fóru að opna sig aðeins til baka nýttu Víkingar plássin sem mynduðust þar. Þeir voru vel meðvitaðir um að jafntefli gerði lítið fyrir Blika í toppbaráttunni. Eftir ríflega tíu mínútur í seinni hálfleik tóku Blikarnir völdin og fór að sækja miklu meira. Kristinn Jónsson var, eins og svo oft áður, virkilega eitraður á vinstri vængnum og kom mikið sóknarlega í gegnum hann. Sóknarlota Blika skilaði marki á 71. mínútu þegar Höskuldur Gunnlaugsson fékk sendingu inn á teiginn, sendi Alan Lowing á afturendann og skoraði með góðu skoti. 2-1. Hann fékk sendingu inn á teiginn frá Andra Rafni Yeoman sem var góður í leiknum. Andri Rafn á oft þessa leiki þar sem lítið fer fyrir honum en samt er hann að spila vel. Í dag var hann frekar áberandi; hlaupandi út um allan völl að vinna boltann og hafði sig meira frammi í sóknarleiknum. Stoðsendingin til marks um það. Þegar allt virtist stefna í sigur Breiðabliks fengu Víkingar vítaspyrnu á 88. mínútu. Eftir aukaspyrnu inn á teiginn virtist boltinn fara í höndina á einum Blikarnum. Erlendur virtist fyrst ekki ætla að dæma en benti svo allt í einu á punktinn. Ívar Örn Jónsson, sem er nú frekar kallaður Vítasspyrnu-Ívar en Aukaspyrnu-Ívar, fór á punktinn og skoraði af miklu öruggi, 2-2, á 89. mínútu. Ívar búinn að skora úr þremur vítaspyrnum í seinni umferðinni og tryggja Víkingum með þeim fimm stig. Lokatölurnar, 2-2 í fjörugum leik á Víkingsvelli. Milos: Fannst við vera betri aðilinn í dag„Það er ekki spurning, við áttum jafnvel skilið þrjú stig. Við áttum fleiri góð færi en þeir hérna í dag,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, aðspurður hvort Víkingur hefði átt skilið stig í leiknum í kvöld. „Boltinn vildi ekki fara inn svo að það var ánægjulegt að fá eitt stig eftir vítaspyrnuna. Ég er er ánægður með stig gegn jafn sterku liði þótt þau hefðu mátt vera þrjú.“ Leikmenn Víkings léku afar kaflaskiptan leik í dag. „Þú spilar eins mikið og andstæðingurinn leyfir þér. Breiðablik er með mjög gott lið og við sáum hversu góðir þeir eru á köflum en mér fannst þeir ekkert betri en við í dag.“ Milos sagðist ekki hafa séð brotið þegar dæmd var vítaspyrna undir lok venjulegs leiktíma. „Ég sá ekki hvað gerðist en strákarnir sögðu að vinstri bakvörður þeirra hefði fengið boltann í höndina sem var fyrir ofan höfuðið á honum. Þeir sögðu að þetta hefði aldrei verið spurning.“ Milos var ekki tilbúinn að segja að sætið í deild þeirra bestu á næsta ári væri tryggt. „Það er stór brekka fyrir Leiknismenn að klífa en það eru þrír leikir eftir og níu stig í pottinum. Ef við nælum í þrjú stig þar þá erum við öruggir en við erum ekkert hættir þar. Við ætlum okkur níu stig.“ Arnar: Hægt að óska FH til hamingju með titilinn„Þetta voru tvö stig töpuð úr því sem komið var. Við vorum að mínu mati sterkara liðið í fyrri hálfleik og fórum með sanngjarnt forskot inn í hálfleik,“ sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Blika, vonsvikinn eftir leik. „Þeir fá jöfnunarmark strax í upphafi seinni hálfleiks sem var heppnismark að mínu mati. Þetta var ólíkt okkur að fá á okkur þetta mark.“ Arnar tók undir að það hefði verið meira jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. „Þetta varð meiri barningur í seinni hálfleik og liðin skiptust á því að sækja. Við fáum mark eftir góða sókn en svo fáum við á okkur víti í lokin sem var helvíti súrt,“ sagði Arnar sem vildi ekki skammast út í Erlend Eiríksson, dómara leiksins. „Ég var í engri aðstæðu til þess að dæma um hvort þetta var víti eða ekki. Ef dómari dæmir víti er það víti, sama hvað ég segi og ég vona að þetta hafi verið rétt.“ Arnar var hrifinn af Víkingsliðinu. „Víkingur er með flott lið og við vissum að við þyrftum að eiga algjöran toppleik til þess að vinna í dag. Þeir hafa ekki gefið mörg færi á sér og spiluðu líkt og ég átti von á.“ Arnar fór ekkert í felur með það að staðan væri orðin afar erfið hjá Breiðablik í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. „Þó að það sé tölfræðilegur möguleiki þá held ég að þessu sé lokið. Við munum halda áfram en ég held að við getum óskað þeim til hamingju með titilinn. Þeir eru vel að því komnir þótt ég vona að þeir verði ekki meistarar í næstu umferð.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Körfubolti Adam Ingi í ótímabundið hlé frá knattspyrnu Fótbolti „Holan var of djúp“ Körfubolti „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Körfubolti „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ Körfubolti „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Handbolti Spiluðu óvart rangt lag fyrir stórleikinn á Villa Park Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Körfubolti „Gott að vera komin heim“ Íslenski boltinn „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 6-1 | Meistararnir byrja af krafti „Gott að vera komin heim“ Uppgjörið: Þróttur - Fram 3-1 | Nýliðarnir máttu þola tap í endurkomunni Hin næstum fertuga Sif fær félagaskipti í Víking „Komin ótrúlega langt miðað við hversu stutt er síðan hún átti sitt fyrsta barn“ „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ „Það verður alltaf talað um hana“ „KA búið að leggja það í vana sinn að bregðast mjög seint við“ „Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“ Besta spáin 2025: Skjöldurinn fer ekki neitt Besta-spáin 2025: Nýir tímar en sömu væntingar á Hlíðarenda Stúkan ræddi umdeilt víti KR-inga: „Þetta er ekkert eðlilega heimskulegt“ „Við erum búnir að brenna skipin“ Markmenn Bestu deildar kvenna: Hásætið laust „Þetta er fyrir utan teig“ „Mínir menn geta borið höfuðið hátt“ Daði leggur skóna á hilluna Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 2-1 | Tveir sigrar í röð hjá Stjörnumönnum Uppgjörið: KR - Valur 3-3 | Ótrúleg dramatík í Laugardalnum „Þetta var eitt af þessum stóru augnablikum sem ég mun aldrei gleyma“ KA búið að landa fyrirliða Lyngby Versti sóknarleikur nýliða í meira en þrjá áratugi Lærðu að fagna eins og verðandi feður Besta-spáin 2025: Áframhaldandi hamingja í Víkinni „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla „Við erum að reyna að skapa vonir og trú á þetta verkefni“ Uppgjörið: Víkingur - KA 4-0 | Meiðslum hrjáðir Víkingar léku KA-menn grátt Sjá meira