Vel heppnuð umbreyting Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2015 06:00 Fjölnismenn fagna einu fjölmargra marka sinna í síðustu átta leikjum sínum. vísir/valli
Fyrir tímabilið gáfu Fjölnismenn það út að þeirra markmið í ár væri að bæta besta árangur liðsins í efstu deild, sem var 6. sæti og 31 stig sem Grafarvogsliðið náði árið 2008, á sínu fyrsta tímabili í efstu deild. Eftir sigurinn á Víkingi í síðustu umferð var því markmiði náð. Fjölnismenn eru með 33 stig í 5. sæti og það sem meira er, þá er möguleikinn á Evrópusæti enn fyrir hendi en Fjölnir er aðeins þremur stigum frá KR, sem situr í 3. sætinu, þegar tvær umferðir eru eftir. Fjölnismenn eiga reyndar eftir að spila við tvö efstu lið deildarinnar, FH og Breiðablik, en þrátt fyrir það hafa Grafarvogsbúar trú á verkefninu. „Við erum í þessu til að vinna en verkefnið er ærið, að fara í Krikann og ætla að gera einhverja stóra hluti. En það er allt hægt í þessu,“ sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, í samtali við Fréttablaðið í gær. Miðað við gengi Fjölnis á undanförnum vikum er ástæða til bjartsýni. Fjölnismenn eru ósigraðir í síðustu átta leikjum sínum, hafa unnið fjóra þeirra og gert fjögur jafntefli. Vörn Fjölnismanna er reyndar ekki jafn sterk og í upphafi móts en sóknarleikurinn er það góður að það hefur engu breytt. Tuttugu mörk skoruð í síðustu átta leikjum gefa til kynna hversu beittur sóknarleikurinn er. Kennie Chopart hefur skorað fimm þessara marka en þessi öflugi Dani hefur farið fyrir þessari þriðju útgáfu Fjölnisliðsins í sumar. Lið Fjölnis í dag er nefnilega talsvert breytt frá því sem hóf mótið.Strákarnir hans Ágústs eiga fína möguleika á að ná Evrópusæti.vísir/pjeturFjölnir náði í 17 stig í fyrstu átta umferðunum en þá dundu áföllin yfir. Makedónski varnarmaðurinn Daniel Ivanovski hélt til síns heima eftir 3-0 sigur á Leikni og skömmu síðar kölluðu FH-ingar Emil Pálsson til baka úr láni. Fjölnismenn voru því búnir að missa tvær af sterkustu stoðum liðsins út á miðju tímabili. En sem betur fer fyrir þá var félagaskiptaglugginn handan við hornið. Þar náði Ágúst í Chopart, sem spilaði vel með Stjörnunni árin 2012 og 2013, og spænska miðvörðinn Jonathan Neftali, auk þess sem Illugi Þór Gunnarsson byrjaði aftur að æfa með liðinu. Þessi andlitslyfting leit reyndar ekki vel út í upphafi en Fjölnir steinlá, 4-0, fyrir ÍBV í fyrsta leiknum sem Chopart og Neftali spiluðu. En þessir leikmenn þurftu bara einn leik í aðlögun og eftir þennan skell hafa Fjölnismenn verið á mikilli siglingu og halað inn 16 stig í síðustu átta leikjum. „Það er dálítið erfitt að setja fingur á það sem hefur breyst til batnaðar hjá okkur. Það eru eiginlega leikmennirnir sem eiga stærstan þátt í þessu. Þetta er mjög góður hópur,“ sagði Ágúst sem viðurkennir að það hafi ekki verið óskastaða að þurfa að byggja upp nýtt lið um mitt mót. „Þetta var dálítil endurskipulagning. Það komst rót á þetta og það tók smá tíma að koma þessu í samt lag aftur. Við töpuðum fjórum leikjum í röð og það er ákveðin kúnst að snúa því við,“ sagði Ágúst sem hlakkar til leiksins í dag. „Ég er mjög spenntur fyrir þessum leik, að mæta á erfiðasta útivöll landsins og ná í úrslit.“fréttablaðið
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Fjölnismenn vonast til að halda Chopart Kennie Chopart hefur reynst Fjölnismönnum mikill happafengur síðan hann kom til liðsins í félagaskiptaglugganum í júlí. 26. september 2015 08:00 Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Fleiri fréttir Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Sjá meira
Fjölnismenn vonast til að halda Chopart Kennie Chopart hefur reynst Fjölnismönnum mikill happafengur síðan hann kom til liðsins í félagaskiptaglugganum í júlí. 26. september 2015 08:00