Frakkar gerðu lítið úr Hvít-Rússum Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. janúar 2016 18:40 Luka Karabatic var frábær í vörninni í kvöld. vísir/epa
Heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka pökkuðu Hvíta-Rússlandi saman, 34-23, í fyrsta leik milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í dag. Þrátt fyrir stórsigur segja lokatölurnar nánast ekkert um gang leiksins því Frakkland hefði auðveldlega getað unnið leikinn með meira en 20 mörkum hefði það keyrt hraðann og spilað á sínum bestu mönnum allan tímann. Frakkar komust í 4-0 áður en Hvít-Rússar skoruðu fyrsta markið eftir tæpar sjö mínútur, en staðan eftir 14 mínútur var 10-4 fyrir meistarana. Þá skiptu Frakkarnir upp um gír, skoruðu átta mörk í röð og komust í 18-4. Í hálfleik munaði 15 mörkum, 20-5. Franska liðið var að spila ótrúlegan handbolta, þá sérstaklega varnarleik en leikmenn Hvíta-Rússlands litu út eins og byrjendur á móti Frökkunum. Nicola Karabatic gerði það sem hann vildi í sóknarleiknum og skoraði níu mörk úr níu skotum og þá varði Thierry Omeyer tíu skot í fyrri hálfleik. Frakkar sendu eðlilega „varaliðið“ inn í seinni hálfleikinn til að hvíla sínar helstu stjörnur enda leikurinn fyrir löngu unninn. Franski varnarveggurinn hélt fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik þar til Hvít-Rússar gengu á lagið gegn mátulega áhugalausum Frökkunum og skoruðu ellefu mörk á næstu tíu mínútum. Fleiri mörk en þeir skoruðu fyrstu 40 mínútur leiksins. Eftir að fá 67 prósent markvörslu í fyrri hálfleik frá Omeyer varði Vincent Gerard, markvörður Montpellier, aðeins sjö skot og var með 33 prósent hlutfallsmarkvörslu. Nicola Karabatic endaði markahæstur hjá Frökkunum með níu mörk þrátt fyrir að spila bara fyrri hálfleikinn en næstur kom Nedim Remili með fimm mörk. Hjá Hvíta-Rússlandi var Aliaksei Khadkevich markahæstur með níu mörk úr fjórtán skotum en í markinu varði Viachaslau Saldatsenka þrettán skot og var með 31 prósent hlutfallsmarkvörslu. Frakkar eru nú með fjögur stig í milliriðli eitt líkt og Noregur og Pólland. Þau mætast á morgun þegar Frakkar og Króatar eigast við en í kvöld mætast Makedónía og Króatía.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ Sport Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Handbolti Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið Handbolti Bikarævintýri Fram heldur áfram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn