Harpa með þrennu í fjórða sigri stelpnanna í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2016 16:51 Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrjú mörk í Minsk. Vísir/Hilmar Þór Guðmundsson/KSÍ
Íslenska kvennalandsliðið er áfram með fullt hús í riðli sínum í undankeppni EM 2017 eftir flottan 5-0 útisigur á Hvíta Rússlandi í fyrsta mótsleik ársins. Stjörnukonan Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu í leiknum en það var fyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir sem kom íslenska liðinu í 1-0 eftir aðeins þrettán mínútna leik. Margrét Lára var þarna að skora sitt 76. mark fyrir A-landsliðið og bætir enn við metið sitt. Íslenska liðið er með tólf stig af tólf mögulegum og markatöluna 17-0. Liðið er enn í öðru sæti, þremur stigum á eftir Skotlandi en á leik inni á Skotana sem hafa líka unnið alla sína leiki. Íslenska liðið vann fyrri leik liðanna 2-0 á Laugardalsvellinum en heimastúlkur áttu fá svör við þeim íslensku á gervigrasinu í Minsk í dag. Næsti leikur íslenska liðsins er úti í Skotlandi 3. júní næstkomandi og er það án vafa annar af tveimur úrslitaleikjum riðilsins. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Íslandi í 1-0 á 13. mínútu með laglegu skoti frá vítateig eftir frábæra langa sendingu frá Fanndísi Friðriksdóttur. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði annað markið í tómt markið á 24. mínútu eftir að Dagný Brynjarsdóttir gaf boltann óeigingjarnt á hana. Harpa skoraði síðan fjórða markið á 34. mínútu með skalla eftir að Elín Metta Jensen skallaði fyrirgjöf Fanndísar Friðriksdóttur á hana. Harpa innsiglaði síðan þrennuna sína á 54. mínútu eftir stoðsendingu frá Fanndísi. Dagný Brynjarsdóttir kórónaði flottan leik sinn með því að skora fimmta markið á 86. mínútu og enn á ný kom markið eftir undirbúning Fanndísar Friðriksdóttur. Fanndís tók þá frábæra hornspyrnu og Dagný skoraði með laglegum skalla úr teignum. Það var lokamark leiksins og íslensku stelpurnar hafa farið á kostum í þremur útileikjum sínum í undankeppninni. Þrír sigrar og fimmtán mörk í þremur leikjum. Íslensku stelpurnar léku léttleikandi og skemmtilegan fótbolta í dag og helst mátti gagnrýna liðið fyrir fyrirgjafirnar sem voru oft ekki nógu góðar. Hápressan, samspilið og vinnslan í liðinu voru til mikillar fyrirmyndar og stelpurnar og þjálfarinn Freyr Alexandersson eigi mikið hrós skilið fyrir vel upp lagðan leik. Dagný Brynjarsdóttir vann boltann hvað eftir annað á miðjunni og Sara Björk Gunnarsdóttir stjórnaði spilinu eins og herforingi. Frábær leikur hjá þeim báðum. Fanndís Friðriksdóttir átti þrjár stoðsendingar í leiknum og eina sendingu að auki sem átti stóran þátt í marki. Fanndís var því allt í öllu í mörkum íslenska liðsins.
EM 2017 í Hollandi Fótbolti Íslenski boltinn Tengdar fréttir Margrét Lára: Verðum að brjóta þær snemma Kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar afar mikilvægan leik í Hvíta-Rússlandi á morgun í undankeppni EM 2017. 11. apríl 2016 16:30 Freyr: Ekkert svigrúm til þess að misstíga sig "Það eru allir heilir og í góðu líkamlegu ástandi. Það eru allir leikmenn klárir í að takast á við verkefnið á morgun,“ segir Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins. 11. apríl 2016 20:30 Verð aldrei laus við meiðslin Margrét Lára Viðarsdóttir verður líklega aldrei 100 prósent laus við meiðslin sem hafa hrjáð hana undanfarin ár. Hún verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Hvít-Rússum ytra í dag. 12. apríl 2016 06:00 Elín Metta í byrjunarliðinu á móti Hvít-Rússum Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir leikinn á móti Hvít-Rússum í undankeppni EM. 12. apríl 2016 13:47 Mest lesið „Bara „shout out“ á mömmu, takk fyrir þetta!“ Fótbolti Vann Meistaradeildina með Barcelona en vinnur nú í Intersport Fótbolti Steini stóryrtur í lok fundar: „We´re gonna fuckin beat you“ Fótbolti Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens Enski boltinn Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Enski boltinn Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda Íslenski boltinn „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Enski boltinn Ísland - Ísrael: Aðgengi fjölmiðla að íslenska liðinu til skoðunar Handbolti Eitthvað sem læknar segja ekki við þig að ástæðulausu Fótbolti Fleiri fréttir Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar „Margir með margar afsakanir af hverju þeir mæta ekki á völlinn“ LUÍH: Var gerð að fyrirliða Þróttar átján ára Tveir Bestu deildarslagir og bikarmeistararnir mæta KFA Steini stóryrtur í lok fundar: „We´re gonna fuckin beat you“ Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Vann Meistaradeildina með Barcelona en vinnur nú í Intersport Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Bara „shout out“ á mömmu, takk fyrir þetta!“ „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ „Sá það strax að boltinn myndi enda inni“ Uppgjörið: Fram - ÍA 0-1 | Stórglæsilegt mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigurinn gegn Fram Lyftu sér upp í annað sætið „Ekki fyrsta stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli“ Uppgjörið: KA - KR 2-2 | Tvö rauð á KR í markaleik á Akureyri Ekkert mark í grannaslagnum Stefán Ingi allt í öllu í sigri Sandefjord „Stundum þá skapar maður bara sína eigin heppni með alvöru vinnuframlagi“ Uppgjörið: Valur - Vestri 1-1 | Óvænt stig Djúpmanna á Hlíðarenda Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september Kristian og Nökkvi skoruðu báðir í sigri Sparta Eggert lagði upp mark og lærisveinar Freys sneru leiknum við í seinni Orri og félagar fóru heim frá Kanaríeyjum með öll þrjú stigin Þórir lagði upp jöfnunarmark í Íslendingaslag í Seríu A Þrjár landsliðskonur fengu áletrað úr frá KSÍ Fékk hjólhestaspyrnu í hausinn og endaði á sjúkrahúsi Sjá meira
Margrét Lára: Verðum að brjóta þær snemma Kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar afar mikilvægan leik í Hvíta-Rússlandi á morgun í undankeppni EM 2017. 11. apríl 2016 16:30
Freyr: Ekkert svigrúm til þess að misstíga sig "Það eru allir heilir og í góðu líkamlegu ástandi. Það eru allir leikmenn klárir í að takast á við verkefnið á morgun,“ segir Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins. 11. apríl 2016 20:30
Verð aldrei laus við meiðslin Margrét Lára Viðarsdóttir verður líklega aldrei 100 prósent laus við meiðslin sem hafa hrjáð hana undanfarin ár. Hún verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Hvít-Rússum ytra í dag. 12. apríl 2016 06:00
Elín Metta í byrjunarliðinu á móti Hvít-Rússum Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir leikinn á móti Hvít-Rússum í undankeppni EM. 12. apríl 2016 13:47