Umfjöllun: Skotland - Ísland 0-4 | Ísland með annan fótinn á EM Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júní 2016 19:45 Harpa Þorsteinsdóttir hefur skorað sex mörk í undankeppninni. mynd/hilmar þór/ksí
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið í lokakeppni EM eftir stórsigur, 0-4, á Skotum í Falkirk í kvöld. Þarna mættust bestu lið riðilsins og þau voru bæði ósigruð. Eftir þennan leik er aðeins Ísland ósigrað og ekki heldur búið að fá á sig mark. Stelpunum dugar sigur gegn Makedóníu á þriðjudag til að gulltryggja EM-sætið. Makedónía er stigalaust í riðlinum og Ísland vann leikinn gegn þeim ytra, 0-4. Íslensku stelpurnar mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og tóku völdin á vellinum strax í upphafi. Á 9. mínútu leiksins komst Ísland yfir. Hallbera Guðný Gísladóttir átti aukaspyrnu utan af kanti sem sigldi í gegnum allan pakkann í teignum og endaði í fjærhorninu. Okkar stúlkur efldust við markið og héldu áfram að sækja. Þær komust oft í ákjósanlegur stöður en lykilsendingar voru að klikka. Einfaldar sendingar inn fyrir vörn þegar komið var gott hlaup. Skotar gerðu sig einnig seka um slæm mistök er þær töpuðu boltanum fyrir framan eigið mark. Fanndís hefði getað refsað en skotið var ekki nógu gott. Sóknarþungi Skota var enginn og liðið átti ekki skot að marki Íslands í fyrri hálfleik. Er þær nálguðust teiginn þá var Glódís Perla Viggósdóttir mætt og hrifsaði til sín alla bolta. Hún kom bolta einnig vel í leik. Miklir yfirburðir hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik en munurinn aðeins eitt mark. Síðari hálfleikur byrjaði með látum og mínúta var liðin af hálfleiknum er Anna Björk fékk langbesta færi leiksins. Frír skalli um metra frá marki en Anna hitti ekki markið. Hrikalega illa farið með frábært færi. Skotum óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Læddist að manni sá grunur að íslenska liðinu myndi hefnast fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. Á 61. mínútu voru Skotar mjög nálægt því að jafna leikinn. Vantaði eitt skónúmer upp á að framherji þeirra skoraði. Það vakti stelpurnar. Aðeins mínútu síðar var staðan nefnilega orðin 2-0 fyrir Ísland. Hólmfríður með sendingu í miðjan teiginn þar sem Harpa skallaði boltann af krafti í netið. Aðeins þremur mínútum síðar kláraði íslenska liðið leikinn. Hallbera með hornspyrnu sem varmaðurinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skallaði inn fyrir marklínuna. Frábærlega gert. Þriðja markið á sjö mínútna kafla kom svo. Aftur var það skallamark og að þessu sinni var komið að Margréti Láru að stanga boltann í netið eftir sendingu Hörpu. Geggjaður sjö mínútna kafli sem gjörsamlega slátraði þessum leik. Leikur íslenska liðsins í kvöld var í einu orði sgt frábær. Liðið var gríðarlega vel skipulagt, gaf nánast engin færi á sér allan leikinn. Okkar stelpur voru sterkari, fljótari og miklu grimmari í alla bolta. Það var klassamunur á liðunum í þessum uppgjörsleik toppliðanna. Glódís Perla var besti maður íslenska liðsins en allar stelpurnar léku vel. Það var klassi, yfirvegun og öryggi yfir öllum aðgerðum Glódísar. Frábær og verður bara betri og betri. Ef að líkum lætur verður EM-hátíð í Dalnum eftir helgi og vonandi að fólk fjölmenni.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjörutíu mínútna hlé eftir að pening var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Sjá meira