Dempsey tryggði Bandaríkin áfram og sigur í riðlinum | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2016 11:51
Bandaríkin tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Copa América, Suður-Ameríkukeppninnar, og sigur í A-riðli með 1-0 sigri á Paragvæ á Lincoln Financial Field í Philadelphia. Clint Dempsey skoraði eina mark leiksins á 27. mínútu með skoti úr teignum eftir sendingu frá Gyasi Zardes. Staðan var 1-0 í hálfleik en strax á þriðju mínútu í seinni hálfleik fékk DeAndre Yedlin sitt annað gula spjald á örskömmum tíma og þar með rautt og Bandaríkjamenn því einum færri. Það kom þó ekki að sök. Bandaríkjamenn spiluðu sterkan varnarleik með John Brooks sem besta mann og Paragvæar ógnuðu sjaldan. Brad Guzan varði í tvígang frá Jorge Benítez og Miguel Almiron þegar átta mínútur voru til leiksloka en annars átti hann nokkuð náðugan dag í marki bandaríska liðsins. Sigurinn tryggði Bandaríkjamönnum ekki einungis sæti í 8-liða úrslitum heldur einnig sigur í riðlinum þar sem Kólumbía tapaði 3-2 fyrir Kosta Ríku í Houston. Kólumbíumenn voru öruggir áfram fyrir leikinn og hvíldu nær alla lykilmenn sína í nótt. Og það gæti reynst þeim dýrkeypt því þeirra bíður nú væntanlega leikur gegn Brasilíu í 8-liða úrslitum. Johan Venegas kom Kosta Ríku yfir strax á 2. mínútu með frábæru skoti eftir skyndisókn en Frank Fabra jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Fabra var aftur á ferðinni á 34. mínútu þegar hann skoraði sjálfsmark og kom Kosta Ríku yfir. Celso Borges kom Kosta Ríku-mönnum svo í 3-1 þegar hann rak smiðshöggið á laglega sókn á 58. mínútu. Marlos Moreno Duran minnkaði muninn í 3-2 á 73. mínútu en nær komust Kólumbíumenn ekki. Lokatölur 3-2, Kosta Ríku í vil.
Fótbolti Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi Sjá meira