Svisslendingar náðu ekki að tryggja sig áfram en eru í fínum málum | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2016 17:45
Sviss og Rúmenía gerðu 1-1 jafntefli í öðrum leik sínum í A-riðli á Evrópumótinu í fótbolta í Frakklandi. Svisslendingar gátu tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum með sigri en svissnesku leikmönnunum gekk illa að nýta færin sín í leiknum. Sviss er með fjögur stig en Rúmenar voru þarna að ná í sitt fyrsta stig eftir tap á móti gestgjöfum Frakka í fyrsta leiknum sínum. Bogdan Stancu kom Rúmenum yfir í fyrri hálfleik með sínu öðru marki á Evrópumótinu en Admir Mehmedi jafnaði fyrir Sviss í seinni hálfleiknum. Svissneska liðið var sterkara liðið og fékk mun fleiri færi í þessum leik. Rúmenarnir ógnuðu þó inn á milli og gátu vissulega skorað fleiri mörk. Bogdan Stancu skoraði markið sitt úr vítaspyrnu á 18. mínútu sem var dæmt á fyrirliðann Stephan Lichtsteiner fyrir peysutog. Bogdan Stancu er fyrstur til að skora tvö mörk á mótinu en hann hefur skorað þau bæði úr vítum. Svisslendingar náðu ekki að jafna fyrr en á 57. mínútu þegar boltinn datt fyrir Admir Mehmedi í teignum eftir hornspyrnu. Mehmedi hikaði ekki og náðu frábæru skoti í fjærhornið. Það þarf mikið að gerast til að þessi fjögur stig dugi Sviss ekki til að komast upp úr riðlinum en lokaleikur liðsins er reyndar á móti Frökkum. Frakkar mæta Albaníu í lokaleik dagsins og geta alveg eins og Svisslendingar tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum með sigri.Bogdan Stancu kemur Rúmeníu í 1-0 Stancu skorar út vítaspyrnu og kemur Rúmeníu yfir gegn Sviss. 1-0. #EMÍsland pic.twitter.com/JobWCZEp5S— Síminn (@siminn) June 15, 2016 Admir Mehmedi jafnar fyrir Sviss Mehmedi jafnar. Glæsilegt mark. Rúmenía 1, Sviss 1. pic.twitter.com/693lBVNrSy— Síminn (@siminn) June 15, 2016
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Sjá meira