Norður-Írar komnir á blað | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2016 17:45 Gareth McAuley fagnar marki sínu. Vísir/Getty
N-Írland bar sigurorð af Úkraínu með tveimur mörkum gegn engu í C-riðli EM 2016 í Lyon í dag. Þetta er fyrsti sigur Norður-Íra í lokakeppni EM frá upphafi en keppnin í Frakklandi er þeirra fyrsta í sögunni. Gareth McAuley kom N-Írlandi í 1-0 á 49. mínútu. Miðvörðurinn sterki stangaði þá aukaspyrnu Olivers Norwood í netið. Þetta var þriðja mark McAuleys í síðustu sex keppnisleikjum fyrir N-Írland. Úkraínumenn voru miklu meira með boltann en fundu engar leiðir í gegnum norður-írsku vörnina sem stóð sig vel í dag. Þá var Michael McGovern öruggur á milli stanganna. Þrátt fyrir að vera mun minna með boltann voru Norður-Írar hættulegri aðilinn í leiknum og þá sérstaklega í föstum leikatriðum. Það rigndi mikið í Lyon á meðan á leiknum stóð og eftir tæpan klukkutíma kom haglél, svo mikið að tékkneski dómarinn Pavel Královec þurfti að gera nokkurra mínútna hlé á leiknum. Úkraína sótti og sótti en skapaði sér ekki nógu góð færi til að skora. Það var svo varamaðurinn Niall McGinn sem gulltryggði sigur Norður-Íra þegar hann skoraði annað mark þeirra þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. McGinn fylgdi þá eftir skoti Stuart Dallas sem Andriy Pyatov varði. Lokatölur 2-0, N-Írlandi í vil. Norður-Írar eru nú komnir með þrjú stig í C-riðli en Úkraínumenn eru enn án stiga.Úkraína 0-1 N-Írland Enn 1-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. Hér er markið sem kom á 49. mínútu. #EMÍsland https://t.co/hy9DZPE3EI— Síminn (@siminn) June 16, 2016 Úkraína 0-2 N-Írland Mark á 6. mínútu uppbótartíma! 2-0 fyrir Norður-Írlandi gegn Úkraínu. #EMÍsland https://t.co/2qN3s6MfBp— Síminn (@siminn) June 16, 2016
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Hörkueinvígi hefst Körfubolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Fleiri fréttir „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Í beinni: Tottenham - Nott. Forest | Gestirnir á góðum stað FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Sjá meira