Southgate og Hoddle líklegastir til að taka við enska landsliðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2016 12:33 Næstu landsliðsþjálfarar Englands? vísir/epa/getty
Samkvæmt veðbönkum er Gareth Southgate líklegastur til að taka við enska landsliðinu af Roy Hodgson sem sagði af sér eftir tapið fyrir Íslandi í gær. Southgate hefur þjálfað enska U-21 ára liðið frá 2013 en hann var áður knattspyrnustjóri Middlesbrough.Sjá einnig: The Times gaf öllum leikmönnum Englands núll í einkunn Næstur á blaði hjá veðbönkum er Glen Hoddle, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands. Hoddle, sem er 58 ára gamall, hefur ekki stýrt liði frá 2006 þegar hann hætti hjá Wolves. Síðan þá hefur Hoddle rekið knattspyrnuakademíu á Spáni og starfað sem álitsgjafi í sjónvarpi. Eddie Howe, knattspyrnustjóri Bournemouth, er þriðji líklegasti kosturinn í landsliðsþjálfarastarfið samkvæmt veðbönkum og Alan Shearer, sem hefur litla sem enga reynslu af þjálfun, sá fjórði.Shearer er ofarlega á lista veðbanka yfir næsta landsliðsþjálfara Englands þrátt fyrir afar takmarkaða reynslu af þjálfun.vísir/gettySjálfur vill Shearer sjá Southgate og Hoddle taka við enska landsliðinu. „Hoddle er frábær þjálfari sem hefur enn margt að bjóða,“ sagði Shearer sem lék undir stjórn Hoddles í landsliðinu. Honum líst líka vel á Southgate. „Þetta snýst um að hafa leiðtoga og Southgate er klárlega svoleiðis týpa, líkt og Hoddle sem var frábær fyrir England.“Sjá einnig: Aumingja Roy Hodgson: Launahæsti þjálfarinn gagnrýndur og svo þetta vandræðalega myndband Harry Redknapp, sem var sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastöðuna 2012, er ekki jafn spenntur fyrir Southgate. „Af hverju ætti hann að vera ofar á lista en stjórar sem hafa sannað sig eins og Steve Bruce og Sam Allardyce?“ sagði Redknapp. „Ég kann vel við Southgate, hann er frábær náungi, en hvað hefur hann afrekað?“ bætti Redknapp við en hann hefur ekki mikla trú á að enska knattspyrnusambandið finni rétta manninn í starf næsta landsliðsþjálfara. Hann stakk hins vegar upp á Tim Sherwood í starfið. „Hann hefur ástríðu og áhuga. Hann er ungur, fullur af orku og þekkir leikinn,“ sagði Redknapp en Sherwood var rekinn frá Aston Villa í lok október 2015.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Fleiri fréttir Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Sjá meira