Umfjöllun: Úkraína - Ísland 1-1 | Stig í Kænugarði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. september 2016 21:00 Alfreð fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/EPA
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Úkraínu í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2018. Leikurinn fór fram við undarlegar aðstæður en leikið var á tómum Ólympíuleikvanginum í Kænugarði. Íslenska liðið fékk draumabyrjun þegar Alfreð Finnbogason skoraði strax á 5. mínútu en Andriy Yarmolenko jafnaði metin fjórum mínútum fyrir hálfleik. Úkraínumenn fengu kjörið tækifæri til að tryggja sér sigurinn sjö mínútum fyrir leikslok þegar Arnór Ingvi Traustason braut á Bohdan Butko innan vítateigs. Yevhen Konoplyanka fór á punktinn en Íslendingum til happs skaut hann í stöng.Ávallt hættulegir Íslenska liðið spilaði mun betur í fyrri hálfleik en þeim seinni þar sem Úkraínumenn höfðu yfirhöndina án þess þó að ógna marki Íslands að ráði. Íslensku strákarnir byrjuðu leikinn af krafti. Úkraína var meira með boltann en íslenska liðið var ávallt hættulegt þegar það sótti. Á 5. mínútu stakk Birkir Bjarnason boltanum inn á Alfreð, Andriy Pyatov varði skot hans en boltinn hrökk af Oleksandr Kucher og aftur til Alfreðs sem skoraði úr erfiðri stöðu. Sex mínútum síðar var Alfreð aftur á ferðinni þegar hann steig Kucher út, fann Jón Daða Böðvarsson sem átti skot sem Pyatov varði. Frákastið hafnaði hjá Jóni Daða sem náði ekki að stilla sig af og setti boltann yfir fyrir opnu marki. Mark þarna hefði farið langt með að klára leikinn. Úkraínumenn voru á köflum óöryggir og töpuðu boltanum nokkrum sinnum illa á miðjunni. Íslendingar náðu þó ekki að gera sér mat úr því.Yarmolenko og Rakitskyi Aðalógn heimamanna í fyrri hálfleik var tvíþætt. Annars vegar var það Yarmolenko sem var síógnandi á hægri kantinum og lét Ara Frey Skúlason hafa verulega fyrir hlutunum. Hins vegar var það miðvörðurinn Yaroslav Rakitskyi sem ógnaði með langskotum. Hannes varði þrumuskot hans beint úr aukaspyrnu á 23. mínútu með herkjum en honum tókst ekki jafn vel upp þegar Rakitskyi lét vaða á 41. mínútu. Hannes sló boltann beint út í teiginn á Yarmolenko sem lagði hann fyrir sig og skoraði svo með góðu skoti. Íslendingar voru einum færri á þessum tímapunkti eftir að Ari Freyr fór meiddur af velli. Hörður Björgvin Magnússon kom inn á fyrir hann en ekki fyrr en eftir markið.Úkraínumenn með yfirhöndina Seinni hálfleikurinn var ekki jafn vel spilaður af Íslands hálfu og sá fyrri. Íslenska liðinu gekk bölvanlega að halda boltanum og leikurinn minnti um margt á leikinn við Ungverjaland á EM í sumar þar sem Íslendingar gáfu boltann alltof auðveldlega frá sér en vörðust aftur á móti mjög vel. Birkir Már Sævarsson, Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson áttu allir skínandi leik í vörninni og björguðu í þau fáu skipti sem heimamenn gerðu sig líklega upp mark Íslands. Úkraínumenn spiluðu ekki með hreinræktaðan framherja og ógnin inni í vítateig var því lítil. Þrátt fyrir bitleysið þrýsti Úkraína íslenska liðinu alltaf aftar og aftar og það bauð hættunni heim. Úkraínumenn fengu fá tækifæri en samt sem áður það besta þegar Clément Turpin dæmdi vítaspyrnuna á 83. mínútu. En sem betur fer setti Konoplyanka boltann í stöngina. Íslendingar fengu því stigið sem þeir hefðu væntanlega sætt sig við fyrir leikinn. Frammistaðan í kvöld var misjöfn en stigið vel ásættanlegt.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti „Ég trúi þessu varla“ Sport United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Galatasaray sakar Mourinho um rasisma Fótbolti Fleiri fréttir Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Sjá meira